Fotbolti.net
@Johannthor21Jóhann Þór Hólmgrímsson
Pepsi-Max deild kvenna
SaltPay-völlurinn
Þór/KA
Þór/KA
0 - 0
Keflavík
Keflavík
Dómari: Sveinn Arnarsson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Keflvíkingar áfram í Pepsi Max eftir jafntefli á Akureyri

Hvað réði úrslitum?

Varnarleikur beggja liða mjög flottur. Tiffany góð í marki Keflavíkur. Keflvíkingar náðu ekki að skapa sér mikið og Aerial var mjög einmana í fremstu víglínu.

Bestu leikmenn

1. Tiffany Sompao

Tiffany varði nokkrum sinnum mjög vel í marki Keflavíkur, kom klárlega í veg fyrir að Þór/KA skoraði í dag.

2. Arna Sif Ásgrímsdóttir

Það var áhugaverð barátta milli Aerial og Örnu í dag. Aerial komst nokkrum sinnum í góðar stöður en Arna var alltaf klár og komst fyrir nokkur skot.

Atvikið

Aerial féll í teig Þór/KA undir lok fyrrihálfleiks og það voru einhver köll um vítaspyrnu. Spurning um ef og hefði hvernig þessi leikur hafi þróast ef eitthvað hefði verið dæmt.

Hvað þýða úrslitin?

Lokaleikurinn á tímabilinu. Keflavík hefði geta fallið ef allt hefði farið á versta veg en þær ganga ánægðar frá borði í þriðja neðsta sæti fjórum stigum frá falli. Þór/KA stökk upp um eitt sæti og endar í 6. sæti deildarinnar, fallbaráttan var aldrei langt undan.

Vondur dagur

Rosa lítil gæði í þessum leik. Aerial var alein í sóknarleik Keflavíkur og sóknarmenn Þór/KA mjög týndar í leiknum og sköpuðu sér ekki mikið.

Dómarinn - 8

Fínasti leikur hjá honum, lét leikinn fljóta en það er spurning hvort Keflavík hafði eitthvað til síns máls þegar liðið vildi vítaspyrnu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.