Fotbolti.net
@saebjornthSæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Pepsi Max-deild karla
Samsungvöllurinn
Vindur og átta gráður. Rigning á köflum.
Stjarnan
Stjarnan
0 - 4
FH
FH
0 - 119' Baldur Logi Guðlaugsson 0 - 235' Matthías Vilhjálmsson0 - 365' Jónatan Ingi Jónsson 0 - 482' Matthías Vilhjálmsson
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson

SKÝRSLAN: FH endar í sjötta sæti (Staðfest)

Hvað réði úrslitum?

FH var betra liðið á vellinum og verðskuldaði þennan sigur. Verkefnið varð ansi þægilegt eftir að FH komst yfir og var manni fleiri. Annað mark FH í raun kláraði svo bara leikinn.

Bestu leikmenn

1. Matthías Vilhjálmsson

Matti var ekki upp á sitt besta þegar FH átti erfitt uppdráttar á löngum kafla í sumar. Matti var frábær í dag líkt og í leikjum að undanförnu, skoraði tvö og lagði upp eitt. Gæði og vinnsla í honum allan leikinn, enginn afsláttur.

2. Baldur Logi Guðlaugsson

Skoraði fyrsta mark leiksins með stórkostlegu skoti úr aukaspyrnu. Baldur var besti maður vallarins í fyrri hálfleik og lagði svo upp mark í seinni. FH-liði í heild var mjög gott í dag, Jónatan Ingi og Logi Hrafn voru næstu menn á lista.

Atvikið

Aukaspyrnan og aukaspyrnudómurinn á nítjándu mínútu. Virkaði ódýr aukaspyrna úr blaðamannaaðstöðunni en Baldri var nákvæmlega sama og smellti boltanum í nærhornið. Frábært mark.

Hvað þýða úrslitin?

FH er áfram í sjötta sæti og endar tímabilið í því sæti. Stjarnan er í sjöunda sæti og getur bara horft í það að halda því sæti.

Vondur dagur

Þorsteinn Már Ragnarsson og Hilmar Árni Halldórsson voru þeir sem reyndu hvað mest en lítið sem ekkert gekk hjá þeim.

Dómarinn - 6,5

Heilt yfir fínasta dómgæsla, rétt niðurstaða með rauðu spjöldin en ég var strax á því að Óli Valur hefði unnið boltann af Baldri Loga þegar aukaspyrna var dæmd á nítjándu mínútu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.