Fotbolti.net
Magnús Þór Jónsson
Magnús Þór Jónsson
Pepsi Max-deild karla
Kórinn
Kórinn, það er logn og rigningarlaust.
HK
HK
1 - 0
Stjarnan
Stjarnan
Birnir Snær Ingason 75'Valgeir Valgeirsson 79'1 - 0
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson

SKÝRSLAN: Nýr dagur og ný dramatík þegar HK vann Stjörnuna

Hvað réði úrslitum?

Verulega góð afgreiðsla Valgeirs Valgeirssonar og öflugur varnarleikur HK.

Lokaður leikur kallar á það að menn nýti þegar færin detta og það gerði Valgeir. HK þurftu að hræra upp í varnarleiknum fyrir leik og í leiknum sjálfum en héldu búrinu hreinu.

Bestu leikmenn

1. Guðmundur Þór Júlíusson

Leiðtogi í leiknum í kvöld. Byrjar með Leif, Rauschenberg ekki með. Leifur meiðist á 53.mínútu, Guðmundur fær bandið og gargar sína menn áfram og stýrir svo varnarleiknum eftir að þeir komast yfir. Gríðarlega öflugur í kvöld.

2. Valgeir Valgeirsson

Síkvikur að venju, fyrst á kantinum og svo í bakverði þegar Leifur meiðist. Hraðinn svo sannarlega mikilvægur í kvöld og mikið hugrekki að vera kominn langt inn í teig til að afgreiða sendingu Ljubicic fyrir markið.

Atvikið

Hér þarf að ræða seinna gula spjald Birnis Snæs á 75.mínútu.
Darraðadans í teignum, Birnir pikkar boltanum framhjá Ólafi Karli Finsen og þegar hann snýr Ólaf af sér kemur snerting og Birnir fellur. Vilhjálmur metur að um óíþróttamannslega framkomu sé að ræða, réttir upp seinna gula sem þýðir rautt í fótbolta. Risaatvik sem þó má segja að hafi haft þau áhrif að kveikja neista í HK sem skora sigurmarkið 4 mínútum síðar.

Hvað þýða úrslitin?

HK fór upp fyrir ÍA og í hið gríðarmikilvæga 10.sæti. Þeirra verkefni er einfalt, bara vinna leikinn og þeir eru öruggir...eða...bíddu, það er Kópavogsslagur. Sá stærsti í sögunni einfaldlega. Watch the space for drama. Stjarnan fer inn í lokaumferðina í 7.sæti og gætu farið alveg niður í 9.sæti ef þeir tapa fyrir KR og úrslit fara á verri veg fyrir þá.

Vondur dagur

Fyrir alla sóknarmennina...nema Valgeir.

Lokaður leikur og menn fengu úr litlu að moða en þennan leik vantaði áræðni og grimmd sóknarlega. Af því sást lítið.

Dómarinn - 6,0

Ef leiknum hefði lokið eftir 75 mínútur hefði dómarakvartettinn klárlega verið með solid níu. Eftir að hafa glápt oft á Atvikið þá er ég jafn sannfærður og ég var á leiknum að gult spjald hafi verið röng ákvörðun hjá dómurunum, kannski ekki víti en aldrei seinna gula. Í kjölfarið fannst mér líka að Ólafur Karl Finsen slyppi ekki bara einu sinni heldur tvisvar við sitt seinna gula og því ósamræmi í stórum ákvörðunum. Öll leikstjórn að öðru leyti góð en þessar ákvarðanir draga einkunn niður að þessu sinni.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.