SKÝRSLAN: Klukkan slær gleði í Fossvoginum
Hvað réði úrslitum?
Víkingar voru flottir heilt yfir í þessum leik, vörnin var frábær og gáfu lítð af færum á sig, markvarslan flott þegar Ingvar fékk skot á sig og Víkingar voru "clinical" í færunum sem þeir fengu og eru verðskuldaðir meistarar.
Bestu leikmenn
1. Pablo Punyed
Þvílikur leikmaður þessi gaur, tvö assist og var frábær í dag. What a guy.
2. Ingvar Jónsson
Margir sem komust nálægt "næst bestur" en Ingvar varði frábærlega á stórum moment-um þegar Víkingar þurftu á honum að halda, sérstaklega 1v1 gegn Gísla Laxdal og svo skotið frá Steinari Þ, bæði í stöðunni 2-0 þar sem ÍA hefðu rækilega komist inn í leikinn. Ingvar er Big Game Player.
Atvikið
Annað mark Víkinga sem Kári Árnason skorar með nánast seinustu snertingu fyrri hálfleiks, alvöru kjaftshögg fyrir ÍA að fara með inn í hálfleikinn og þetta mark gaf Víkingum helling.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingar úr Reykjavík eru Mjólkurbikarmeistarar 2021 eftir mjög skemmtilegan leik. Til hamingju allir Víkingar !
Vondur dagur
Erfitt að setja þetta á eitthvern einn en Sindri Snær hefur átt betri daga í gulu treyjunni og fannst mér Sindri þurfa að stíga meira upp í leiknum til þess að gefa ÍA alvöru möguleika, Sindri var svo tekinn útaf vellinum og leit út fyrir að vera mjög svekktur með sjálfan sig.
Dómarinn - 6,5
Fínasta frammistaða Jóhanns í dag þótt línan var smá skrítin og nokkrir dómar sem maður var ekki sammála en burt séð frá því bara fínasta frammistaða.



