Leik lokið!
Jón Daði með mark Íslands. Ísland leikur á laugardaginn gegn Suður-Kóreu, klukkan 11 að íslenskum tíma.
89. mín
Lítið eftir af leiknum. Ekki hægt að segja að þetta hafi verið mikil skemmtun. Skelfileg útsending frá Tyrklandi.
81. mín
InnInnocent Esimu
ÚtGavin Mugweri Kizito
79. mín
InnDavíð Kristján Ólafsson
ÚtArnór Ingvi Traustason
74. mín
InnKristall Máni Ingason
ÚtViktor Karl Einarsson
Kristall Máni, leikmaður Víkings, að spila sinn fyrsta A-landsleik.
72. mín
Það er erfitt að lýsa því sem fyrir augu ber vegna þess hve lélegt samband er við Tyrkland. En staðan er allavega enn jöfn 1-1-
64. mín
Afskaplega léleg gæði í útsendingunni frá Belek. Arnór Ingvi með skottilraun en varið.
60. mín
InnHöskuldur Gunnlaugsson
ÚtViðar Ari Jónsson
60. mín
InnGísli Eyjólfsson
ÚtJón Daði Böðvarsson
60. mín
InnSveinn Aron Guðjohnsen
ÚtValdimar Þór Ingimundarson
58. mín
InnMuhamad Shaban Jagason
ÚtPatrick Henry Kaddu
58. mín
InnJunior Yunks Sentamu
ÚtMartin Kizza
58. mín
InnAshraf Mugume
ÚtSteven Dese Mukwala
55. mín
Jón Daði með skot eftir slakt úthlaup frá markmanni Úganda. Í kjölfarið á Viktor Karl snertingu á boltann sem fer svo í hönd varnarmanns Úganda en ekkert er dæmt, nokkur köll eftir vítaspyrnu.
55. mín
Leikurinn er kominn af stað og Patrick kominn inn á aftur.
53. mín
Markaskorarinn Patrick Kaddu fær aðhlynningu og leikurinn stopp á meðan.
53. mín
Markaskorarinn Patrick Kaddu fær aðhlynningu og leikurinn stopp á meðan.
51. mín
Finnur Tómas kemur boltanum í burtu eftir álitlega fyrirgjöf Úganda.
46. mín
InnHákon Rafn Valdimarsson
ÚtJökull Andrésson
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn, ein breyting hjá Íslandi.
45. mín
Hnífjafnt í hálfleik.
44. mín
Úganda í sókn. Fyrirgjöf. Martin Kizza skallar en hittir ekki markið.
42. mín
HÖRKUSKOT! Jón Daði með skottilraun, nær föstu skoti en nokkuð beint á Charles Lukwago markvörð Úganda sem slær boltann út úr teignum.
39. mín
Ísland í skyndisókn. Viktor Karl vinnur boltann, Jón Daði með sendingu sem var ætluð Valdimar en fór aðeins fyrir aftan hann.
36. mín
Úganda sækir en rangstaða flögguð.
32. mín
MAAAARK!
Patrick Henry Kaddu
Skaut á mitt markið en Jökull skutlaði sér til hliðar.31. mín
Gult spjald
Ari Leifsson
31. mín
Úganda fær víti. Ari Leifs brýtur af sér og réttilega dæmt víti. Sóknarmaður Úganda stakk sér framfyrir hann.
29. mín
Ari Leifsson tapar boltanum og Úganda sækir en Valgeir Lunddal nær að trufla og þetta rennur út í sandinn hjá andstæðingum okkar.
26. mín
George Kasonko leikmaður Úganda þarf aðhlynningu og leikurinn stopp.
23. mín
Úganda fær hornspyrnu, fín spyrna en Arnór Ingvi nær að koma boltanum í burtu. Úganda sækir meira núna án þess að skapa sér opin færi.
18. mín
Úganda með nóg af úrslitasendingum sem eru of fastar. Annars er mjög rólegt yfir leiknum þessar mínútur.
Þá á Úganda ágætis skottilraun en framhjá.
11. mín
Viðar Ari fær sendingu í teiginn en móttakan ekki nægilega góð.
8. mín
Þetta var fjórða landsliðsmark Jóns Daða, í 61. landsleiknum.
6. mín
MAAAARK!
Jón Daði Böðvarsson (stoðsending: Viðar Ari Jónsson )
Ísland nær forystunni eftir virkilega fallega sókn! Viðar Ari og Viktor Karl léku sín á milli hægra megin, Viðar átti frábæra fyrirgjöf sem Jón Daði skallaði í markið!5. mín
Ísland fékk aukaspyrnu með fyrirgjafarmöguleika. Arnór Ingvi með sendingu inn á teiginn en Úgandamenn hreinsa í burtu.
3. mín
Úganda með skot af löngu færi, langt framhjá. Jökull silkislakur í markinu.
1. mín
Leikurinn er hafinn á Titanic æfingasvæðinu.
0. mín
Verið að leika þjóðsöngvana. Íslenska liðið spilar alhvítt í dag. Það er 14 gráðu hiti og léttskýjað í Belek.
0. mín
Jæja leikurinn fer að hefjast á þessu æfingasvæði í Tyrklandi. Eins og áður segir þá er leikurinn sýndur beint á Stöð 2 Sport þar sem Gummi Ben sér um að lýsa.
Hér til hliðar er hægt að sjá byrjunarlið Úganda en allir leikmenn hópsins spila í Afríku og eru fótboltaáhugafólki ekki kunnir.
0. mín
Úganda mistókst að komast í Afríkukeppnina. Það er Serbinn Milutin Sredojevic sem stýrir liði Úganda en hann tók aftur við liðinu í sumar. Hann stýrði áður Úganda 2013-2017 en síðan hefur hann þjálfað landslið Sambíu, Suður-afríska félagsliðinu Orlando Pirates og Zamalek í Egyptalandi.
Á síðasta ári var hann dæmdur fyrir kynferðisofbeldi en þrátt fyrir það ákvað fótboltasamband Úganda að halda honum í starfi.
Úganda mistókst að komast í Afríkukeppnina. Það er Serbinn Milutin Sredojevic sem stýrir liði Úganda en hann tók aftur við liðinu í sumar. Hann stýrði áður Úganda 2013-2017 en síðan hefur hann þjálfað landslið Sambíu, Suður-afríska félagsliðinu Orlando Pirates og Zamalek í Egyptalandi.
Á síðasta ári var hann dæmdur fyrir kynferðisofbeldi en þrátt fyrir það ákvað fótboltasamband Úganda að halda honum í starfi.0. mín
Byrjunarlið Íslands er komið inn.
Sex leikmenn í byrjunarliðinu eru að spila sinn fyrsta landsleik á ferlinum. Það eru þeir Jökull Andrésson, Finnur Tómas Pálmason, Atli Barkarson, Viktor Örlygur Andrason, Viktor Karl Einarsson og Valdimar Þór Ingimundarson.
Arnór Ingvi Traustason er fyrirliði Íslands í leiknum og Jón Daði Böðvarsson spilar sinn fyrsta leik síðan í ágúst.
Brynjólfur Andersen Willumsson er ekki í hópnum en hann greindist með Covid á dögunum og er í einangrun inn á hótelherbergi sínu.
0. mín
Arnór Ingvi Traustason er fyrirliði Íslands í dag
Arnór Ingvi Traustason er fyrirliði Íslands í dag0. mín
"Það er mikilvægt ár framundan hjá okkur og áríðandi að nýta hvert einasta tækifæri sem við fáum til að stilla saman strengina, skoða leikmenn og halda áfram að byggja upp okkar lið til framtíðar. Leikirnir í þessum janúarglugga hafa reynst vel í gegnum tíðina og ég er viss um að svo verður líka núna," sagði Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari þegar hópurinn var tilkynntur.
"Leikmenn þurfa að halda áfram að taka skref á sínum ferli og við þurfum jafnframt að halda áfram að taka skref sem landslið. Það eru margir áhugaverðir leikmenn í þessum hópi og ég hlakka til að vinna með þeim öllum. Þetta er alvöru gluggi til að stimpla sig inn fyrir komandi verkefni."
Í hópnum eru átta leikmenn úr íslensku deildinni, fjórir leikmenn Breiðabliks og fjórir leikmenn Víkings. Tíu í hópnum hafa ekki spilað A-landsleik; Jökull, Hákon Rafn, Finnur Tómas, Damir, Atli Barkar, Viktor Karl, Valdimar Þór, Kristall Máni, Viktor Örlygur og Brynjólfur Willumsson.
"Það er mikilvægt ár framundan hjá okkur og áríðandi að nýta hvert einasta tækifæri sem við fáum til að stilla saman strengina, skoða leikmenn og halda áfram að byggja upp okkar lið til framtíðar. Leikirnir í þessum janúarglugga hafa reynst vel í gegnum tíðina og ég er viss um að svo verður líka núna," sagði Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari þegar hópurinn var tilkynntur.
"Leikmenn þurfa að halda áfram að taka skref á sínum ferli og við þurfum jafnframt að halda áfram að taka skref sem landslið. Það eru margir áhugaverðir leikmenn í þessum hópi og ég hlakka til að vinna með þeim öllum. Þetta er alvöru gluggi til að stimpla sig inn fyrir komandi verkefni."
Í hópnum eru átta leikmenn úr íslensku deildinni, fjórir leikmenn Breiðabliks og fjórir leikmenn Víkings. Tíu í hópnum hafa ekki spilað A-landsleik; Jökull, Hákon Rafn, Finnur Tómas, Damir, Atli Barkar, Viktor Karl, Valdimar Þór, Kristall Máni, Viktor Örlygur og Brynjólfur Willumsson.0. mín
Brynjólfur Andersen Willumsson er með Covid-19 og er í einangrun á hóteli íslenska landsliðsins í Tyrklandi. Hann tekur því ekki þátt í leiknum í dag.
Brynjólfur Andersen Willumsson er með Covid-19 og er í einangrun á hóteli íslenska landsliðsins í Tyrklandi. Hann tekur því ekki þátt í leiknum í dag.0. mín
Velkomin með okkur í þessa beinu textalýsingu!
Íslenska landsliðið er við æfingar í Belek í Tyrklandi um þessar mundir og leikur þar tvo vináttuleiki í vikunni. Fyrst mætir liðið Úganda í dag kl. 14:00 að íslenskum tíma og síðan Suður-Kóreu á laugardag kl. 11:00 .
Ísland hefur aldrei áður mætt þessum þjóðum í A-landsliði karla. Báðir leikirnir verða í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Ekki er um alþjóðlega leikdaga að ræða og margir af okkar bestu leikmönnum voru því ekki fáanlegir í þetta verkefni.
Leikmannahópurinn:
Ingvar Jónsson - Víkingur R. - 8 leikir
Hákon Rafn Valdimarsson - IF Elfsborg
Jökull Andrésson - Morecambe
Finnur Tómas Pálmason - IFK Norrköping
Ísak Óli Ólafsson - Esbjerg fB - 1 leikur
Damir Muminovic - Breiðablik
Ari Leifsson - Stromsgodset IF - 1 leikur
Atli Barkarson - Víkingur R.
Davíð Kristján Ólafsson - 2 leikir
Valgeir Lunddal Friðriksson - Häcken - 1 leikur
Alfons Sampsted - Bodo/Glimt - 7 leikir
Viktor Karl Einarsson - Breiðablik
Valdimar Þór Ingimundarson - Strömsgodset IF
Kristall Máni Ingason - Víkingur R.
Stefán Teitur Þórðarson - Silkeborg IF - 7 leikir, 1 mark
Viktor Örlygur Andrason - Víkingur R.
Alex Þór Hauksson - Östers IF - 3 leikir
Höskuldur Gunnlaugsson - Breiðablik - 1 leikur
Arnór Ingvi Traustason - New England Revolution - 41 leikur, 5 mörk
Gísli Eyjólfsson - Breiðablik - 2 leikir
Viðar Ari Jónsson - Sandefjord - 5 leikir
Jón Daði Böðvarsson - Millwall - 60 leikir, 3 mörk
Sveinn Aron Guðjohnsen - IF Elfsborg - 8 leikir
Brynjólfur Willumsson - Kristiansund BK