Fotbolti.net
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fótbolta.net mótið - Úrslitaleikur
Samsungvöllurinn
Gervigras, 5 stiga hiti og rigning.
Stjarnan
Stjarnan
3 - 1
Breiðablik
Breiðablik
0 - 136' Damir MuminovicAdolf Daði Birgisson 40'1 - 1Einar Karl Ingvarsson 56'2 - 1Ólafur Karl Finsen 86'3 - 1
Dómari: Pétur Guðmundsson
Áhorfendur: Áhorfendabann

SKÝRSLAN: Fróðlegur leikur í Garðabæ

Hvað réði úrslitum?

Stjarnan virtist eiga meira á tanknum og virkaði einhvern veginn orkumeira liðið í dag. Í fyrri hálfleik var jafnræði með liðunum en Stjarnan var öflugra liðið í seinni hálfleik og verðskuldaði sigurinn. Pressan hjá Stjörnunni gerði leikinn mjög skemmtilegan fyrir augað og ef þessi þróun heldur áfram á Stjörnuliðinu þá verður liðið til alls líklegt í sumar.

Bestu leikmenn

1. Jóhann Árni Gunnarsson

Það verður ofboðslega spennandi að fylgjast með Jóhanni í sumar. Löðrandi gæði og virkar í hörkustandi.

2. Óli Valur Ómarsson

Hann er sennilega ennþá einhvers staðar hlaupandi og að reyna vinna boltann af einhverjum. Stoppaði ekki í eina sekúndu í kvöld.

Atvikið

Markið hjá Damir. Það er ekki hægt að lýsa þessu almennilega, sturlað mark.

Hvað þýða úrslitin?

Stjarnan er Fótbolta.net meistari - janúarmeistarar árið 2022.

Vondur dagur

1. Það sást að Blikar söknuðu Kristinn Steindórssonar, og mögulega fleiri leikmanna í dag - það vantaði talsvert í bæði lið. En munurinn á Antoni Loga sem 'níu' og Kristni Steindórssyni, eins og hann spilaði í fyrra og í vetur, er talsverður. 2. Bras á streyminu frá leiknum 3. Svo í alvörunni... opnið hliðin, þetta var fantafínn leikur og fínasta veður!!!!

Dómarinn - 8

Solid sjöa (en samt átta), einhver köll eftir vítum og fleira en Pétur dæmdi þetta heilt yfir vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.