Fotbolti.net
@GunnarBjarturGunnar Bjartur Huginsson
Mjólkurbikar karla
Würth völlurinn
Fylkir
Fylkir
2 - 1
ÍBV
ÍBV
Mathias Laursen Christensen 44'1 - 0Ásgeir Eyþórsson 47'2 - 02 - 183' Alex Freyr Hilmarsson
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson

SKÝRSLAN: Fylkismenn komnir í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins

Hvað réði úrslitum?

Það verður að vera rauða spjaldið sem Tómas Bent fékk. Svo er verðugt að nefna að Fylkismenn skora rétt fyrir hálfleik sem setur gestina í ójafnvægi.

Bestu leikmenn

1. Ásgeir Eyþórsson

Steig ekki feilspor í hjarta varnarinnar og ekki skemmir mark fyrir.

2. Ólafur Kristófer Helgason

Frábær í markinu og öruggur í öllum sínum aðgerðum. Varði vel þegar ÍBV var nálægt því að jafna.

Atvikið

Mark ÍBV á hinum ,,besta tíma" eða rétt fyrir hálfleik. Mikill léttir fyrir heimamenn sem spiluðu mikið betur í fyrri hálfleiknum að ná að pota inn marki rétt fyrir lok fyrri hálfleiks.

Hvað þýða úrslitin?

Þetta þýðir einfaldlega að Fylkismenn séu komnir í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins.

Vondur dagur

Þetta skrifast á Tómas Bent fyrir að fá á sig heimskulegt rautt spjald þegar 36 mínútur eru liðnar af leiknum. Þessi atburður breytti algerlega gangi leiksins og í kjölfar hans skora heimamenn.

Dómarinn - 7

Nokkrir vafasamir dómar en flottur yfir það heila.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.