Fotbolti.net
Sigríður Dröfn Auðunsdóttir
Lengjudeild kvenna
Extra völlurinn
Fjölnir
Fjölnir
0 - 2
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 173' Sigdís Eva Bárðardóttir0 - 284' Sigdís Eva Bárðardóttir
Dómari: Árni Snær Magnússon

SKÝRSLAN: Sigdís Eva kom inn á og gekk frá Fjölniskonum

Hvað réði úrslitum?

Leikurinn var jafn og spennandi framan af og Fjölniskonur jafnvel ívið betri í fyrri hálfleiknum en þeim vantaði gæði á síðasta þriðjungi. Víkingar komu sterkari út í seinni hálfleikinn og áttu hættuleg færi, Sigdísi Evu var svo skipt inn á á 66. mínútu og landaði hún sigrinum fyrir Víkinga með því að setja tvö mörk.

Bestu leikmenn

1. Sigdís Eva Bárðardóttir

Ekki annað hægt þegar hún kemur inn á í stöðunni 0-0 á 66. mínútu og Víkingar eru komnir 2-0 yfir 20 mínútum seinna eftir tvö mörk frá henni.

2. Momolaoluwa Adesanm

Momolaoluwa var með allt upp á 10 í hjarta varnarinnar hjá Fjölni í kvöld og varðist sterkum sóknarmönnum Víkinga gríðarlega vel, hún var með góðar gætur á Christabel sem sást lítið sérstaklega í fyrri hálfleik og stoppaði margar sóknir. Mörk Víkinga voru grgíðarlega góð og erfitt að verjast þeim.

Atvikið

Sigdís Eva kemur Víkingum yfir á 66. mínútu og eftirleikurinn var nokkuð auðveldur fyrir Víkinga.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingar sitja í þriðja sæti deildarinnar eftir leiki kvöldsins, HK eiga þó möguleika á ð koma sér upp fyrir þær með sigri á morgun en FH og Tindastóll gera jafntefli svo Víkingar eru tveimur stigum nær toppsætunum heldur en fyrir leikinn í kvöld. Fjölniskonur sitja enþá í 9. sætinu fjarlægjast öruggt sæti aðeins eftir jafntefli Fylkis og Grindavíkur í kvöld.

Vondur dagur

Enginn einn sem átti vondan dag en þrjár fremstu konur Fjölnis þurfa að vinna betur úr góðum stöðum framarlega á vellinum ætli þær sér að fara vinna leiki.

Dómarinn - 8

Ágætis leikur hjá Árna og ekkert út á dómgæsluna að setja.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.