SKÝRSLAN: Sterkur sigur Fjölnis á Akureyri í kvöld
Hvað réði úrslitum?
Þórsarar voru bara betri í fyrri hálfleik en fengu á sig tvö mörk snemma í leiknum og stórleikur hjá Sigurjóni Daða Harðarsyni í marki Fjölnis í fyrri hálfleik lagði grunninn af þessum sigri.
Bestu leikmenn
1. Sigurjón Daði Harðarson
Magnaður, sérstaklega í fyrri hálfleik, varði vítaspyrnuna vel en fékk á sig mark í kjölfarið. Eftir það áttu Þórsarar nokkur góð færi en Sigurjón eins og klettur milli stanganna.
2. Lúkas Logi Heimisson
Virkilega flottur leikur hjá honum í dag. Skoraði og var líflegur í sóknarleik Fjölnis.
Atvikið
Þórsarar fengu vítaspyrnu eftir 20 mínútna leik sem Sigurjón varði en Willard náði að fylgja á eftir og minnka muninn í 2-1. Eftir það var nóg að gera hjá Sigurjóni og honum tókst að halda markinu hreinu eftir það.
Hvað þýða úrslitin?
Tveir sigrar hjá Fjölni í röð og þeir fara upp í 5. sætið með sigrinum í kvöld. Þeir eru fjórum stigum frá toppliði Fylkis.
Vondur dagur
Þórsarar voru steinsofandi í varnarleiknum í kvöld. Birgir Ómar átti ekki sinn besta dag þar sem hann missti boltann á stórhættulegum stað að minnsta kosti í tvö skipti og átti sendingu sem setti samherja sinn í erfiða stöðu.
Dómarinn - 7
Bara rocksolid frammistaða held ég nú, klárt víti. Annars ekkert mikið í sviðsljósinu.


