SKÝRSLAN: Vinnslusigur KR á Akureyri
Hvað réði úrslitum?
Rosalegir yfirburðir heimamanna og magnað að þeir skyldu ekki að minnsta kosti ná að jafna. Varnarleikur og markvarsla hjá KR flott en að sama skapi fóru KA menn illa með færin.
Bestu leikmenn
1. Beitir Ólafsson
Varði allt sem á markið kom. Traustur í rammanum.
2. Theódór Elmar Bjarnason
Svakaleg vinnsla í manninum. Var alltaf mættur og til í slaginn.
Atvikið
Víta dramað undir lokin. KA menn vildu fá vítaspyrnu og það urðu smá læti sem enduðu með því að Arnar Grétarsson þjálfari KA var rekinn í sturtu.
Hvað þýða úrslitin?
KR fer uppfyrir Keflavík í 6. sætið og er því í efri hlutanum, með jafnmörg stig og Valur sem situr í 5. sæti. KA áfram í 3. sæti þremur stigum á undan Stjörnunni sem á leik gegn Fram á morgun. Þá missti KA af tækifæri á því að fara uppfyrir Víking í 2. sæti.
Vondur dagur
KA menn voru ekki rétt stilltir í dag. Hallgrímur Mar átti erfitt uppdráttar þegar hann kom inná strax eftir 10 mínútur, margar feilsendingar og svo áttu þeir engin svör við varnarleik KR.
Dómarinn - 3
Bæði lið hefðu hæglega getað fengið víti. Furðuleg lína oft á tíðum. Hann flautaði full snemma þegar KA var á leið í sókn og brotið var á Nökkva, stuttu seinna sauð svo uppúr þegar KA vildi víti.



