Fotbolti.net
Besta deildin
@antonfreeyrAnton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
Besta-deild karla
Framvöllur - Úlfarsárdal
Þungt yfir en fótboltalega séð mjög góðar!
Fram
Fram
3 - 3
Víkingur R.
Víkingur R.
Magnús Þórðarson 11'1 - 0Albert Hafsteinsson 55'2 - 02 - 157' Davíð Örn Atlason 2 - 262' Helgi Guðjónsson2 - 363' Erlingur Agnarsson Brynjar Gauti Guðjónsson 87'3 - 3
Dómari: Helgi Mikael Jónasson

SKÝRSLAN: Umdeilt jöfnunarmark þegar Fram og Víkingur skyldu jöfn í rosalegum fótboltaleik

Hvað réði úrslitum?

Víkingar stjórnuðu leiknum frá upphafi til enda. Fóru ílla með nokkur dauðafæri í fyrri hálfleik. Framarar fengu ekki mörg færi en nýttu vel þau færi sem liðið fékk og komst óvænt 2-0 yfir eftir klukkutímaleik. Víkingar sýndu gríðarlegan karakter og snéru leiknum sér í vil á 10. mínútna kafla í síðari hálfleik og jöfnunarmarkið kom svo undir lokin þegar Brynjar Gauti skoraði að miklu harðfylgi.

Bestu leikmenn

1. Helgi Guðjónsson (Víkingur R)

Helgi Guðjónsson kom inn á með gríðarlegan kraft og skoraði og lagði upp á þessum stutta tíma sem hann var inn á. Maður sem virðist vera taka við keflinu af Kristal Mána sem yfirgaf félagið um mánaðarmótin.

2. Magnús Þórðarson (Fram)

Magnús Þórðarson var sprækur í kvöld og lagði upp og skoraði í kvöld. Fínasti dagur á skrifstofuni hjá Magnúsi.

Atvikið

Jöfnunarmarkið - Tiago tekur hornspyrnu frá vinstri inn á teiginn og Guðmundur Magnússon nær góðum skalla sem Ingvar ver en missir og nær síðan til boltans og Brynjar Gauti kemur á ferðinni og nær að pota boltanum yfir línuna.

Hvað þýða úrslitin?

Framarar sjöunda sæti deildarinnar með 19.stig. Víkingar sitja í öðru sæti deildarinnar 30.stig og átta stigum á eftir toppliði Breiðablik og liðið á leik inni.

Vondur dagur

Kyle McLagan - Kyle hefur átt betri daga en hann var í allskonar vandræðum í kvöld og fékk klaufalegt gult spjald í leiknum.

Dómarinn - 5

Helgi Mikael og hans menn voru ágætir í kvöld fyrir utan stóra atvikið þegar Fram jafnaði þar sem Ingvar Jónsson virtist vera komin með hendur á boltann.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.