SKÝRSLAN: Stórmeistarajafntefli á Kópavogsvelli
Hvað réði úrslitum?
Járn í járn á Kópavogsvelli. Breiðablik voru betri aðilinn í fyrri hálfleik og leiddu sanngjarnt í hlé en Víkingar komu brattir út í síðari hálfleikinn og jafntefli kannski bara sanngjörn niðurstaða þegar öllu er á botnin hvolft.
Bestu leikmenn
1. Danijel Djuric
Var gríðarlega öflugur í liði Víkinga og drifkraftur í sóknarleik Víkinga. Skoraði jöfnunarmarkið og er að byrja sinn feril virkilega vel.
2. Dagur Dan Þórhallsson
Var flottur í liði Blika og fór illa með varnarmenn Víkinga þegar hann lagði upp mark Blika í leiknum.
Atvikið
Rauða spjaldið á Damir settu Víkinga í framsætið fyriri lokakafla leiksins en blessunarlega fyrir Blika náðu Víkingar ekki að nýta sér liðsmuninn.
Hvað þýða úrslitin?
Breiðablik eru áfram á toppi deildarinnar með 8 stiga forskot á bæði Víkinga og 6 stig á KA.
Víkingar sitja í 3.sæti deildarinnar með leik til góða á KA í 2.sætinu og geta endurheimt 2.sætið með hagstæðum úrslitum.
Vondur dagur
Davíð Örn Atlason var borinn af velli svo hann hefur átt betri daga þó þessi dálkur sé kannski ekki ætlaður í þetta þá finnst mér ósanngjarnt að setja einhvern leikmann hérna.
Dómarinn - 5
Ætla að sleppa Jóhann Inga með 5. Allt í lagi ekki gott myndu kannski margir segja.




