Fotbolti.net
Selfoss
Selfoss
1.deild karla
Selfossvöllur
Mjög góðar
4 - 3
BÍ/Bolungarvík
BÍ/​Bolungarvík
0 - 120' Atli GuðjónssonMichael Abnett (sjm) 24'1 - 11 - 243' Sölvi G GylfasonTómas Leifsson 57'2 - 22 - 360' Andri Rúnar BjarnasonStefán Ragnar Guðlaugsson 75'3 - 3Joe Tillen 83'4 - 3
Dómari: Garðar Örn Hinriksson
1. mín
Sæl og velkomin í beina textalýsingu frá leik Selfoss og BÍ/Bolungarvík sem hefst kl: 14:00 á Selfossvelli. Aðstæður eru allar eins og best verður á kosið, gott veður, völlurinn góður og áhorfendur eru farnir að streyma á völlinn.
1. mín
Leikur hafinn á Selfossi og heimamenn byrjuðu með boltann og sækja í átt að frjálsíþróttavellinum fyrir þá sem þekkja til.
3. mín
Dauðafæri hjá Selfyssingum sem hafa byrjað leikinn mun betur. Viðar Örn komst einn í gegn en Þórður Ingason náði að loka vel á hann bjarga gestunum fyrir horn.
7. mín
Stefán Ragnar náði að skapa usla á vítateig BÍ/Bolungarvíkur eftir langt innkast sem Endre Brenne náði að koma fyrir sig í úrvalsfæri en var dæmdru brotlegur fyrir bakhrindingu í þann mund er hann var að munda skotfótinn.
8. mín
Andri Rúnar sóknarmaður BÍ/Bol var við það að komast í gegn en Jóhann Ólafur í marki Selfoss náði að loka vel á hann. Heimamenn eru sterkari í byrjun en gestirnir reyna að ógna með hröðum skyndisóknum.
17. mín
Góð sókn hjá Selfyssingum sem endar með skoti frá Jói Daða sem Þórður Ingason mátti hafa sig allan við að slá í burtu.
19. mín
Heimamenn heimta víti frá Garðari dómara þar sem skot frá Ivar Skjerve fór í hönd varnarmanns gestana. Rauði Baróninn var þó ekki á því og hefur líklega metið það sem svo að hann var með höndina að sér.
BÍ/Bolungarvík
20. mín
MAAAARK!

Atli Guðjónsson

MARK - Atli Guðjónsson skorar fyrir gestina heldur skrítið mark. Jóhann Ólafur misreiknaði illa úthlaup og missti boltann yfir sig þar sem Tomi Ameobi og Atli Guðjóns lúrðu og Atli afgreiddi boltann í stöngina þaðan sem hann rúllaði í hina stöngina og í netið. Selfyssingar héldu að brotið hefði verið á Jóhanni sem kveinkaði sér eitthvað eftir markið.
Selfoss
24. mín
MAAAARK!

Michael Abnett (sjm)

MARK - Selfyssingar jafna eins og skot! Jón Daði Böðvarsson átti fullkomlega allan heiðurinn af þessu marki en hann fór mjög illa með varnarmenn BÍ/Bol sem þorðu ekki að brjóta á honum. Jón Daði komst upp að endamörkum þar sem hann sendi fyrir markið þar sem boltinn fór í Abnett varnarmann gestana, þaðan í slánna og inn fyrir línuna.
31. mín
Ef að Tony Pulis stjóri Stoke er með njósnara hérna á Selfossi er ég nokkuð viss um að Stefán Ragnar fari til þeirra í janúar. Innköstin hjá honum er stórhættuleg og ná iðulega að skapa usla í vítateig andstæðinga Selfoss.
35. mín
Andri Rúnar mjög óheppinn að koma gestunum ekki yfir eftir að skot hans lak í stöngina á marki Selfyssinga. Stefán Ragnar var fyrstur að átta sig og sparkaði boltanum frá marki.
40. mín
Álitleg sókn hjá heimamönnum þar sem Viðar Örn, Jón Daði og Arilíus gerðu áhlaup á varnarmenn gestana. Arilíus fékk mikið frelsi til að bruna upp hægri kantinn en náði ekki að koma með nógu góða fyrirgjöf fyrir markið á þá Viðar og Jón Daða. Sendingin fór of nálægt markinu og Þórður átti ekki í vandræðum með að grípa inní.
42. mín
Babacar í dauðafæri eftir hornspyrnu frá Joe Tillen en hann skallaði rétt framhjá.
BÍ/Bolungarvík
43. mín
MAAAARK!

Sölvi G Gylfason

MARK - Sölvi G Gylfason með frábært mark, setti boltann efst í markhornið eftir skot fyrir utan teig. Andri Rúnar hafði náð að komast framhjá Stefáni Ragnari og koma boltanum á Sölva sem hamraði hann í netið.
45. mín
Hálfleikur á Selfossi og leikurinn að fara nokkurnvegin eftir plani hjá Guðjóni Þórðasyni og hans mönnum. Selfyssingar eru mun meira með boltann og sækja meira en gestirnir klára sín færi vel.
46. mín
Leikur hafinn að nýju og BÍ/Bol afrekuðu að missa boltann strax eftir miðju. Mjög skrítið þar sem Ameobi potaði boltanum aðeins áfram en Joe Tillen var fyrstur að átta sig og náði honum.
51. mín
Selfyssingar eru mun meira með boltann en ná ekki að brjóta varnarmúr gestana á bak aftur en eru mun líklegri eins og er.
Selfoss
57. mín
MAAAARK!

Tómas Leifsson

Mark - Arilíus Marteinsson jafnar metin eftir góðan sprett og fyrirgjöf frá Joe Tillen frá vinstri kanti. Þetta mark lá í loftinu.
59. mín
Frábær markvarsla frá Þórði Ingasyni en hann náði að verja frá Viðari sem var 2 metra frá marki.
BÍ/Bolungarvík
60. mín
MAAAARK!

Andri Rúnar Bjarnason

MARK - Andri Rúnar refsar heimamönnum grimmilega og kemur sínum önnum strax yfir aftur. Andri Rúnar slapp aleinn í gegn, Andri Freyr varnarmaður Selfoss náði honum en rann er hann ætlaði að loka á hann og Andri Rúnar átti ekki í vandræðum að klára færið. Fyrsta færi BÍ/Bol í seinni og það er engu líkara en þeir skori í hverri sókn.
BÍ/Bolungarvík
63. mín
InnSigþór Snorrason
ÚtSigurgeir Sveinn Gíslason
Selfoss
67. mín
Gult spjald

Ingvi Rafn Óskarsson

Gult á Babacar fyrir full harkalega tæklingu.
Selfoss
69. mín
InnIbrahima Ndiaye
ÚtPeter Klancar
Selfoss
75. mín
MAAAARK!

Stefán Ragnar Guðlaugsson

MAR - Heimamenn jafna enn á ný. Arilíus tók horspyrnu og eftir þvögu í teignum sýndist mér Joe Tillen vera sá síðasti sem potaði boltanum yfir línuna. Magnaður leikur. Leiðrétt - það var Stefán Ragnar sem skoraði fyrir Selfoss.
Selfoss
77. mín
InnSvavar Berg Jóhannsson
ÚtTómas Leifsson
Sævar Gísla kominn inná og hann var mjög nálægt því að koma sínum mönnum yfir er hann komst í gegn en náði ekki að fóta sig nógu vel áður en hann mundaði skotfótinn og Þórður lokaði vel á hann.
81. mín
Viðar Örn með skot í hliðarnetið úr þröngu færi eftir góðan undirbúning hjá Jóni Daða sem fann Viðar í markteignum.
BÍ/Bolungarvík
81. mín
InnPétur Georg Markan
ÚtGunnar Már Elíasson
83. mín
Svakalegt færi hjá heimamönnum sem pressa núna mjög stíft á gestina. Jón Daði fékk boltann inni á teig og hamraði að marki, Þórður varði mjög vel og út í teig en heimamenn náðu ekki að klára færið.
Selfoss
83. mín
MAAAARK!

Joe Tillen

MARK - Joe Tillen kemur heimamönnum yfir í fysta skipti í leiknum með frábæru skoti fyrir utan vítateig í bláhornið framhjá Þórði í markinu.
Selfoss
87. mín
InnIngólfur Þórarinsson
ÚtJoseph David Yoffe
90. mín
Ótrúlegum leik lokið með miklum seiglu sigri heimamanna sem fagna vel í leikslok með heimamönnum. Selfoss heilt yfir betri í leiknum en leikskpulag BÍ/Bolungarvíkur var einnig gott og þeir naga sig líklega í handarbökin að hafa ekki a.m.k. haft stig með sér vestur. Umfjöllun kemur seinna í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.