SKÝRSLAN: Þurfa að koma til baka í seinni hálfleiknum
Hvað réði úrslitum?
Frammistaða Vals í fyrri hálfleik var ekki til útflutnings og var það sanngjarnt að Slavia Prag væri yfir í hálfleik. Valur var sterkari aðilinn í seinni hálfleik og fékk fjölda færi til að jafna en inn vildi boltinn ekki. Að lokum voru Íslandsmeistararnir óheppnar að fá ekki að minnsta kosti jafntefli úr leiknum.
Bestu leikmenn
1. Arna Sif Ásgrímsdóttir (Valur)
Gríðarlega sterk í vörninni að venju. Var best í liði Vals í leiknum.
2. Lára Kristín Pedersen (Valur)
Sýndi gæði sín á miðsvæðinu, sérstaklega í seinni hálfleiknum. Sandra var þá frábær í markinu.
Atvikið
Þegar Slavia Prag bjargaði á línu undir lokin. Frábær björgun hjá varnarmanni Slavia sem sá til þess að tékkneska liðið er með forystuna fyrir seinni leikinn.
Hvað þýða úrslitin?
Slavia leiðir einvígið þegar 90 mínútur af 180 eru liðnar. Valur þarf að koma til baka í seinni hálfleiknum sem fer fram í Tékklandi að viku liðinni.
Vondur dagur
Fremstu þrjár hjá Val voru ekki alveg á deginum sínum. Cyera fékk dauðafæri til að jafna og hafa bæði Sólveig og Þórdís átt betri daga. Þá var þetta ekki góður dagur fyrir Mist Edvardsdóttur sem þurfti að fara meidd af velli í fyrri hálfleik. Vonandi er það ekki alvarlegt.
Dómarinn - 6
Var stundum bara eitthvað að giska fannst manni en þetta var heilt yfir ekkert skelfilegur leikur hjá henni.



