SKÝRSLAN: Evrópugleði á Akureyri eftir sigur KA
Hvað réði úrslitum?
KA varðist vel í fyrri hálfleiknum en KR var mun meira með boltann án þess að skapa sér mikið. KA refsaði fyrir það og skoraði sigur markið snemma í síðari hálfleik.
Bestu leikmenn
1. Þorri Mar Þórisson
Flottur leikur hjá honum. Leggur upp sigurmarkið með glæsilegum sprett inn á teiginn og góð fyrirgjöf.
2. Ívar Örn Árnason
Lá vel á vörn KA sérstaklega í fyrri hálfleik og Ívar stóð vaktina vel.
Atvikið
Theodór Elmar hefði hæglega getað fengið sitt annað gula spjald undir lok leiksins þegar hann reif leikmann KA niður án þess að reyna nokkuð við boltann. Erlendur dómari gerði lítið í því.
Hvað þýða úrslitin?
KA komið langleiðina í Evrópukeppni og ætla sér að gera sitt besta til að ná titlinum. KR getur í mesta lagi náð fjórða sætinu.
Vondur dagur
KRingar naga sig í handarbökin að hafa ekki náð að nýta yfirburðina í fyrri hálfleik betur. Kjaftshögg að fá á sig mark í upphafi síðari hálfleiks.
Dómarinn - 6
Mjög sveiflukenndur leikur hjá honum. Flautaði oft á hluti sem hægt var að sleppa og svo öfugt.



