Andri Lucas Guðjohnsen
Andri Lucas með sjálfstraustið í lagi og skorar núna!!!Markvörðurinn var í boltanum en nær ekki að verja fasta spyrnu Andra.
Maaaaark! Andri Lucas jafnar leikinn úr víti.#fyririsland pic.twitter.com/VgZP4YiEDP
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) January 8, 2023
Markus Soomets
Hendi víti. Hárréttur dómur.Jæja nýtum okkur þetta.
"Við eigum að vera sterkari í föstum leikatriðum," segir Hörður Magnússon. Í þessum skrifuðu orðum á Andri Lucas tilraun yfir markið eftir horn.
Rasmus Peetson
Ísland fær aukaspyrnu á hættulegum stað.Andri Lucas Guðjohnsen
Ekki góð spyrna hjá Andra. Skotið er varið.Þegar Andri steig á vítapunktinn furðaði Hörður Magnússon sig á því að Aron Sigurðarson tæki ekki spyrnuna. Er vítaskytta Horsens.
Réttlætinu kannski fullnægt, þetta átti ekki að vera víti.
Sergej Zenjov (stoðsending: Taijo Teniste)
Teniste leggur boltann frábærlega með hælnum fyrir Zenjov, sem hefur verið hættulegur í þessum fyrri hálfleik, og hann á virkilega fast ristarskot sem fer í slá og inn. Algjörlega óverjandi.Ken Kallaste
Fór aftan í Aron Sigurðarson. Of Seinn og fær fyrsta gula spjaldið hann Kallaste.Arnór Ingvi tekur aukaspyrnuna og lyftir boltanum inn í teiginn en Eistarnir skalla frá. Dagur Dan kemur svo með sendingu inn í teig sem markvörður Eista handsamar.
Patrik (m)
Guðlaugur Victor (f) - Damir - Róbert - Valgeir
Arnór Ingvi
Aron Sig - Kristall Máni - Dagur
Nökkvi - Andri Lucas
Eistar hófu leik.


???????? Byrjunarlið Íslands sem mætir Eistlandi í vináttuleik í dag á Algarve í Portúgal.
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) January 8, 2023
???? Leikurinn hefst kl. 17:00 og verður hann í beinni útsendingu á Viaplay.
???? Our starting lineup for the friendly against Estonia.#fyririsland pic.twitter.com/JtsjgrvlKV

Nökkvi Þeyr Þórisson, Sævar Atli Magnússon og Aron Bjarnason eru þeir þrír leikmenn í íslenska landsliðshópnum í Portúgal sem ekki hafa leikið A-landsleik.

„Fyrstu mánuðurnir hjá nýju liði hafa gengið vonum framar, ótrúlega vel. ég var mjög snöggur að aðlagast. Liðið spilar vel og ég eignaðist barn úti svo það er allt í blóma þar. Lífið leikur við mig þessa dagana og ég er mjög glaður," segir Nökkvi.
Nökkvi vonast að sjálfsögðu eftir því að spila sinn fyrsta landsleik í dag.
„Maður vonast alltaf eftir því að fá mínútur og vonandi koma þær. Mér lýst vel á þetta, við erum með marga góða leikmenn. Vallaraðstæður eru ekki frábærir en gæðin eru góð og tempóið hátt. Það eru flottir karakterar í liðinu og ég er spenntur fyrir komandi leik. Það er flott að hafa reynslubolta í hópnum sem aga menn til og passa upp á að þetta fari ekki í einhvern fíflagang. Við erum með mjög hæfileikaríka leikmenn og þetta er góð blanda."
Lífið leikur við Nökkva Þórisson þessa dagana. Hér hann í viðtali við KSÍ TV um fyrstu mánuðina í Belgíu og fyrsta landsliðsverkefnið. pic.twitter.com/W3aAQ66fha
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) January 7, 2023
„Þetta er mjög gott verkefni. Þetta eru mismunandi lið sem við mætum og geggjaður hópur. Ég er mjög spenntur. Við erum með góða blöndu, nokkra með reynslu sem geta leiðbeint. Svo eru ungir og graðir leikmenn sem vilja sýna sig og þetta er einmitt tíminn til að sýna sig og sanna; hvernig þú ert í hóp og hvernig þú ert innan og utan vallar."
Arnór Ingvi Traustason í viðtali við KSÍ TV um komandi vináttuleiki við Eistland og Svíþjóð. pic.twitter.com/7RaFuSuSMs
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) January 7, 2023

Þessi lið mættust ekki í Eystrasaltsbikarnum fyrir áramót en eistneski hópurinn er blanda af reynslumiklum og nánast reynslulausum leikmönnum. Alls tólf í hópnum hafa ekki leikið A-landsleik. Allir í hópnum spila í eistnesku deildinni.
Í hópnum eru fjórir reynsluboltar; fyrirliðinn Konstantin Vassiljev (38 ára) hefur leikið 146 landsleiki, framherjinn Sergei Zenjov (33) 102 leiki, varnarmaðurinn Taijo Teniste (34) 95 leiki og Ken Kallaste (34) 55 leiki.
Ellefu leikmenn í hópnum koma frá Flora Tallinn.
Verkefnið er utan alþjóðlegs landsleikjaglugga og því kemur bróðurpartur leikmanna í hópnum frá félagsliðum í Bestu deildinni, Svíþjóð og Noregi.
Tvær breytingar voru gerðar á upprunalega hópnum sem var tilkynntur. Bjarni Mark Antonsson bættist við hópinn og Sævar Atli Magnússon var kallaður inn í stað Arnórs Sigurðssonar.
Ísland og Eistland hafa sex sinnum áður mæst í og er um vináttuleiki að ræða í öllum tilfellum. Ísland hefur unnið þrjá leiki, tvisvar hafa liðin gert jafntefli og einu sinni vann Eistland sigur.

Markverðir
Frederik Schram – 6 leikir
Hákon Rafn Valdimarsson – 3 leikir
Patrik Sigurður Gunnarsson – 2 leikir
Aðrir leikmenn
Andri Lucas Guðjohnsen – 12 leikir, 2 mörk
Arnór Ingvi Traustason – 44 leikir, 5 mörk
Aron Bjarnason – 0 leikir, 0 mörk
Aron Sigurðarson – 6 leikir, 2 mörk
Bjarni Mark Antonsson - 2 leikir, 0 mörk
Dagur Dan Þórhallsson – 2 leikir, 0 mörk
Damir Muminovic – 4 leikir, 0 mörk
Danijel Dejan Djuric – 1 leikur, 0 mörk
Davið Kristján Ólafsson – 11 leikir, 0 mörk
Guðlaugur Victor Pálsson – 31 leikur, 1 mark
Höskuldur Gunnlaugsson – 7 leikir, 0 mörk
Ísak Snær Þorvaldsson – 2 leikir, 0 mörk
Júlíus Magnússon – 3 leikir, 0 mörk
Kristall Máni Ingason – 2 leikir, 0 mörk
Nökkvi Þeyr Þórisson - 0 leikir, 0 mörk
Róbert Orri Þorkelsson – 2 leikir, 0 mörk
Sævar Atli Magnússon - 0 leikir, 0 mörk
Sveinn Aron Guðjohnsen – 17 leikir, 1 mark
Valgeir Lunddal Friðriksson – 4 leikir, 0 mörk
Viktor Örlygur Andrason – 3 leikir, 0 mörk




Í blálok leiksins fékk Ioan Yakovlev hættulegt færi en skaut framhjá. Hefðu getað rænt þessu í lokin Eistarnir.
Á fimmtudag verður leikinn annar vináttuleikur í Portúgal, þá gegn Svíum.