Fyrir leik
Komiði sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá viðureign FH og Selfoss í úrslitaleik 1. deildar kvenna.
Bæði lið tryggðu sér sæti í efstu deild að ári með því að leggja mótherja sína í undanúrslitum og nú er komið að því að komast að því hvaða lið er best í deildinni og fær að hampa bikar í leikslok.
Fyrir leik
Bæði lið unnu sína riðla. FH vann alla 12 leiki sína í A-riðli með markatölunni 81-11 og vann Hauka svo í umspilinu í báðum leikjum, samanlagt 14-1.
Selfoss vann 10 af 12 leikjum sínum, gerði eitt jafntefli og tapaði einum með markatölunni 32-4. Þær mættu Keflavík í umspili, töpuðu fyrst 3-2 og unnu svo seinni leikinn 6-1.
Fyrir leik
Leikið er á heimavelli FH, Kaplakrikavelli sem sumir setja spurningar við. Í fyrra mættust ÍBV og Þróttur á hlutlausum velli í Þorlákshöfn en árið þar á undan mættust FH og Haukar á Ásvöllum.
Fyrir leik
Fyrir leikinn verður mínútu þögn til minningar um Birgi Björnsson sem lést í gær. Birgir kom víða við í starfi FH, var frábær leikmaður hjá félaginu, þjálfari og síðar forstöðumaður Kaplakrika hússins.
Fyrir leik
Liðin ganga nú út á völlinn og styttist í að leikurinn hefjist. FH leikur í hvítum treyjum og svörtum buxum en Selfoss í vínrauðum treyjum og hvítum buxum.
Fyrir leik
Nú hefst mínútu þögn til minningar um Birgi Björnsson. Lið FH leikur með sorgarbönd í dag. Liðsstjórn og varamenn beggja liða ganga inn á völlinn og taka þátt í minningarathöfninni.
1. mín
Leikurinn er hafinn og það er FH sem byrjar með boltann.
1. mín
MAAAARK!
Aldís Kara Lúðvíksdóttir
FH tók aðeins 50 sekúndur í að komast yfir. Sigrún Ella Einarsdóttir stakk boltanum upp á Aldísi Köru Lúðvíksdóttur sem lék á Guðrúnu Arnardóttur og skoraði með góðu skoti á markið. Ótrúleg byrjun.9. mín
Munaði litlu að Aldís Kara bætti við öðru marki. Hún var með boltann fyrir utan vítateig Selfoss og skaut á markið en beint í samskeytin og út.
18. mín
MAAAARK!
Katrín Ýr Friðgeirsdóttir
Anna Þorsteinsdóttir sendi frábæran bolta af eigin vallarhelming inn í vallarhelming FH. Guðmunda var í baráttunni og næstum búin að skora en Katrín Ýr kom á ferðinni og kláraði færið.25. mín
MAAAARK!
Aldís Kara Lúðvíksdóttir
Aldís Kara bætir við öðru marki sínu og kemur FH í 2-1. Bryndís stakk boltanum inná hana inn fyrir vörn Selfoss og Aldís afgreiddi færið vel.30. mín
Sara Atladóttir bjargaði marklínu þegar hornspyrna Önnu Þorsteinsdóttur stefndi í markið.
33. mín
Eva Lind Elíasdóttir í dauðafæri eftir aukaspyrnu Selfyssinga en hitti ekki boltann.
34. mín
Það er fjör í þessu, því hinum megin á vellinum lék Aldís Kara á varnarmenn og skaut á markið rétt fyrir utan vítateig en yfir markið.
36. mín
Gult spjald
Bryndís Jóhannesdóttir
Bryndís Jóhannesdóttir fær fyrstu áminningu leiksins.38. mín
MAAAARK!
Bryndís Jóhannesdóttir
Bryndís kemur FH í 3-1. Eftir klafs í teignum náði hún loks til boltans og skaut yfir línuna.42. mín
Jóhanna Steinþóra í góðu færi fyrir framan markið eftir sendingu Sigrúnar Ellu frá vinstri. Hún hitti boltann hins vegar illa.
45. mín
Óli Njáll dómari flautar fyrri hálfleikinn af. Staðan í hálfleik er 3-1 fyrir FH.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn.
48. mín
Eva Lind komst í gott skotfæri utarlega í teignum en hikaði og ekkert varð úr færinu.
54. mín
Gult spjald
Sara Atladóttir
Sara Atladóttir fékk hér áminningu eftir ábendingu frá línuverði um eitthvað sem ég sá ekki.54. mín
InnGuðrún Björg Eggertsdóttir
ÚtJóhanna Steinþóra Gústavsdóttir
55. mín
MAAAARK!
Guðrún Björg Eggertsdóttir
Guðrún Björg var ekki lengi að stimpla sig inn í leikinn, í fyrstu snertingu skaut hún á markið og yfir Dagnýju í marki Selfoss. FH komið í 4-1.56. mín
Selfoss reyndi að svara strax fyrir sig. Eva Lind slapp ein gegn Nönnu sem kom langt út úr teignum og kom boltanum frá.
59. mín
MAAAARK!
Sigrún Ella Einarsdóttir
Sigrún Ella slapp ein í gegn var ein gegn Dagnýju og skoraði auðveldlega. Skömmu áður hafði Guðrún björg átt skot í þverslá.62. mín
InnÍris Sverrisdóttir
ÚtAnna Þorsteinsdóttir
65. mín
Bæði lið hafa átt fín skotfæri frá vítateigshorni hægra megin. Fyrst Berglind hjá FH og svo Katrín Ýr hjá Selfossi en báðar skutu framhjá.
68. mín
MAAAARK!
Anna María Friðgeirsdóttir
Fransiska Jóney Pálsdóttir tók aukaspyrnu hægra megin fyrir utan vítateiginn, Guðmunda kom boltanum áfram á Önnu Maríu sem setti hann í markið. Staðan orðin 5-2.70. mín
Guðmunda sneri á varnarmann af miklu harðfylgi og þrumaði á mark FH en Nanna náði að blaka boltanum yfir.
75. mín
InnKaren Inga Bergsdóttir
ÚtThelma Sif Kristjánsdóttir
82. mín
Guðrún Björg aftur með skot utan af kanti sem fór í þverslánna.
82. mín
InnElísabet Guðmundsdóttir
ÚtAníta Lísa Svansdóttir
83. mín
InnKristrún Rut Antonsdóttir
ÚtEva Lind Elíasdóttir
86. mín
InnIona Sjöfn Huntingdon-Williams
ÚtNanna Rut Jónsdóttir (m)
86. mín
InnMargrét Sif Magnúsdóttir
ÚtBryndís Jóhannesdóttir
86. mín
InnSveinbjörg Andrea Auðunsdóttir
ÚtBerglind Arnardóttir
87. mín
InnÞórhildur Svava Svavarsdóttir
ÚtFransiska Jóney Pálsdóttir
87. mín
InnInga Lára Sveinsdóttir
ÚtDagný Pálsdóttir (m)
89. mín
Það eru á milli 500-600 áhorfendur í Kaplakrikanum í kvöld.
90. mín
MAAAARK!
Aldís Kara Lúðvíksdóttir
Staðan orðin 6-2 fyrir FH. Aldís Kara með skot af stuttu færi í teignum. Nú er ljóst að FH er að verða 1. deildarmeistari kvenna 2011 enda aðeins uppbótartími eftir.90. mín
Leiknum er lokið með 6-2 sigri FH. FH vinnur 1. deild kvenna 2011 eftir að hafa unnið alla leiki sína í deild í sumar. Viðtöl og umfjöllun kemur hér á Fótbolta.net síðar í kvöld.



