Leik lokið!
ÍBV Í UNDANÚRSLIT
93. mín
ÍBV TRYGGIR SÉR SIGURINN Í UPPBÓTARTÍMA
Bjarki Björn Gunnarsson (stoðsending: Hermann Þór Ragnarsson)
Flott spil og Bjarki Björn, lánsmaður frá Víkingi, skorar laglegt mark. Enn og aftur slæm mistök í vörn Blika.91. mín
Uppbótartími í gangi.
87. mín
Skalli frá Höskuldi en Guy Smit slær boltann yfir.
86. mín
ÍBV klúðrar dauðafæri
Breki Ómarsson í dauðafæri en skýtur beint á Anton. Ekki góð afgreiðsla hjá Breka! Þarna hefði ÍBV átt að taka forystuna.
84. mín
Ágúst Hlyns með fyrirgjöf sem Eiður Aron Sigurbjörnsson skallar afturfyrir.
81. mín
Hægt að bóka það að þetta verða undanúrslitaleikirnir á laugardaginn
Valur - Víkingur
KA - ÍBV
KA - ÍBV
79. mín
Gult spjald
Ágúst Eðvald Hlynsson
Jón Ingason liggur eftir.78. mín
Blikar þurfa þrjú mörk á lokakaflanum til að koma sér áfram... erfitt að sjá það gerast.
76. mín
Eyjamenn biðja um rangstöðu en það var aldrei til í dæminu, varnarmenn liðsins bara illa samstilltir. Guðjón Ernir spilaði Patrik réttstæðan.
MAAAARK!
Patrik Johannesen (stoðsending: Höskuldur Gunnlaugsson)
Höskuldur vippar boltanum inn á teiginn og Patrik skorar af stuttu færi.Eyjamenn biðja um rangstöðu en það var aldrei til í dæminu, varnarmenn liðsins bara illa samstilltir. Guðjón Ernir spilaði Patrik réttstæðan.
74. mín
InnBjarki Björn Gunnarsson
ÚtFilip Valencic
71. mín
Gult spjald
Arnór Sveinn Aðalsteinsson
Blikar elska að brjóta á Filip.68. mín
InnHermann Þór Ragnarsson
ÚtSverrir Páll Hjaltested
68. mín
InnBreki Ómarsson
ÚtHalldór Jón Sigurður Þórðarson
67. mín
InnÁgúst Eðvald Hlynsson
ÚtJason Daði Svanþórsson
67. mín
InnOliver Sigurjónsson
ÚtAnton Logi Lúðvíksson
66. mín
Filip með skot við vítateig Blika en Anton Ari grípur það.
Nú sitja tveir leikmenn ÍBV á vellinum, þreyttir.
Nú sitja tveir leikmenn ÍBV á vellinum, þreyttir.
65. mín
Höskuldur með skot með vinstri fyrir utan teig ÍBV en hittir ekki markið.
62. mín
Gult spjald
Alex Freyr Elísson
59. mín
Oliver Sigurjónsson fer að koma inná hjá Breiðabliki, Óskar Hrafn var að gefa honum merki.
54. mín
Blikarnir þurfa núna fjögur mörk. Allt stefnir í að ÍBV komist í undanúrslitin og leiki þar gegn KA á laugardaginn.
51. mín
Alex Freyr Hilmarsson með skot rétt framhjá!
Eyjamenn eru að líta mjög vel út.
Eyjamenn eru að líta mjög vel út.
48. mín
EYJAMENN KOMAST YFIR!
Halldór Jón Sigurður Þórðarson (stoðsending: Filip Valencic)
Valencic gerir vel, kemur boltanum fyrir á Halldór Jón sem skorar! Áfram heldur Breiðabliksvörnin að vera í alls konar vandræðum.46. mín
Seinni hálfleikur er farinn af stað
Óskar Hrafn gerir þrefalda skiptingu í hálfleik, væntanlega ekki sáttur með gang mála í fyrri hálfleiknum.
46. mín
InnÁgúst Orri Þorsteinsson
ÚtGísli Eyjólfsson
46. mín
InnArnór Sveinn Aðalsteinsson
ÚtViktor Örn Margeirsson
46. mín
InnEyþór Aron Wöhler
ÚtStefán Ingi Sigurðarson

45. mín
Hálfleikur
Breiðablik þarf þrjú mörk
Eins og staðan er þá er ÍBV á leiðinni í undanúrslit Lengjubikarsins. Breiðablik þarf að bretta upp ermar. Blikar töpuðu fyrir Leikni fyrr í riðlinum og þurfa að vinna með þriggja marka mun til að komast áfram.
44. mín
Patrik Johannesen með skot í varnarmann.
43. mín
Jason Daði að sleppa en fyrsta snertingin sveik hann og Guy Smit gerir vel, kemur úr markinu og hirðir boltann.
42. mín
Mark dæmt af Blikum vegna rangstöðu
Stefán Ingi kemur boltanum í markið eftir fyrirgjöf frá Höskuldi en flögguð rangstaða. Sýndist þetta vera réttur dómur, þó tæpt hafi verið.
40. mín
Gult spjald
Patrik Johannesen
Fyrir brot.38. mín
Viktor Örn reynir að skýla boltanum en Halldór Jón Sigurður vinnur boltann, kemur honum á Sverri sem leggur hann á Alex í teignum. Hann skorar af öryggi af stuttu færi.
Viktor í vandræðum.
Blikar í miklu brasi varnarlega
Alex Freyr Hilmarsson (stoðsending: Sverrir Páll Hjaltested)
Pressan hjá ÍBV að skapa mikið vesen fyrir heimamenn.Viktor Örn reynir að skýla boltanum en Halldór Jón Sigurður vinnur boltann, kemur honum á Sverri sem leggur hann á Alex í teignum. Hann skorar af öryggi af stuttu færi.
Viktor í vandræðum.
36. mín
Breiðablik miklu meira með boltann og reynir að skapa sér tækifæri.
32. mín
Gult spjald
Halldór Jón Sigurður Þórðarson
Braut á Gísla sem liggur eftir og þarf aðhlynningu.29. mín
Það er líf og fjör hjá mönnum í boðvöngunum. Hemmi Hreiðars tók léttan trylling áðan þegar ÍBV fékk ekki aukaspyrnu.
28. mín
Gult spjald
Elvis Okello Bwomono
Elvis sópar Alex Frey niður við hliðarlínuna.25. mín
Sverrir Páll Hjaltested með skot en nær ekki krafti í það. Beint á Anton. ÍBV er að fá sín færi.
23. mín
Patrik með stangarskot!
Gjörsamlega galinn varnarleikur hjá ÍBV! Það var bara opin búð og Patrik er hleypt inn á vítateiginn án þess að nokkur maður kom nálægt honum. Stórfurðulegt. Guy Smit nær hinsvegar að verja skot hans í stöngina!
19. mín
Damir með skottilraun eftir hornspyrnu en vel framhjá.
18. mín
Davíð Ingvarsson er meiddur hjá Blikum og Kristinn Steindórsson veikur. Kristinn átti að spila í kvöld. Flensa að ganga.
15. mín
ÍBV með stangarskot
Valencic með skot í stöngina! Munaði litlu að það kæmi jöfnunarmark. Hösuldur hafði átt slæma sendingu og Breiðablik tapaði boltanum á slæmum stað.
13. mín
Nú þurfa Blikar tvö mörk!
Breiðablik skorar úr skyndisókn
Patrik Johannesen (stoðsending: Jason Daði Svanþórsson)
Gísli Eyjólfsson gerir frábærlega, Jason Daði með sendinguna á Patrik sem tekur skotið í fyrsta við vítateigsendann og setur hann snyrtilega í hornið.Nú þurfa Blikar tvö mörk!
9. mín
Eyjamenn að vinna með þessa pressu hátt á vellinum sem hefur verið áberandi í leik liðsins eftir að það kom heim úr æfingaferðinni.
7. mín
Klæmint Olsen er utan hóps hjá Blikum. Talsvert verið rætt og ritað um færeyska sóknarmanninn sem er alls ekki búinn að stimpla sig inn hjá Kópavogsliðinu. Óskar Hrafn var í viðtali í gær um Klæmint, sem lesa má hér.
Klæmint ekki í hóp

Klæmint Olsen er utan hóps hjá Blikum. Talsvert verið rætt og ritað um færeyska sóknarmanninn sem er alls ekki búinn að stimpla sig inn hjá Kópavogsliðinu. Óskar Hrafn var í viðtali í gær um Klæmint, sem lesa má hér.
5. mín
Skyndilegt dauðafæri ÍBV!
Sverrir Páll Hjaltested í dauðafæri í teignum en Anton Ari náði að loka á hann. Fyrsta færi leiksins og það var vægast sagt gott.
1. mín
Leikur hafinn
Einar Ingi Jóhannsson dómari er búinn að flauta leikinn á. Það er kalt í veðri, um -6 gráður, og flestir leikmenn með vettlinga. Heiðskírt og fallegt í Kópavoginum. Sannkallað gluggaveður.
Fyrir leik
Ótímabæra spáin
Í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 á laugardaginn var farið yfir síðustu ótímabæru spá Bestu deildarinnar fyrir tímabilið 2023. Breiðablik er ríkjandi Íslandsmeistari og liðinu er spáð efsta sætinu. ÍBV er spáð áttunda sæti og fer upp um tvö sæti frá síðustu spá.
Smelltu hér til að sjá ótímabæru spánna í heild sinni.
Smelltu hér til að sjá ótímabæru spánna í heild sinni.
Fyrir leik
Óskar Hrafn var í viðtali í gær
Óskar Hrafn: Óþolandi og eitthvað sem við þurfum að laga https://t.co/2BvBz40nhw
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) March 13, 2023
Fyrir leik
Eyjamenn á töluvert betri stað en fyrir ári
Sagði þjálfarinn Hermann Hreiðarsson í viðtali á dögunum:
Hemmi Hreiðars: Erum á töluvert betri stað en fyrir ári https://t.co/4Lpuw8LuZP
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) March 8, 2023
Fyrir leik
Þrír nýir í byrjunarliði Eyjamanna
Eyjamenn komu inn í Lengjubikarinn með trukki og dýfu og unnu þrjá leiki á einni viku. Í byrjunarliði þeirra í dag eru þrír leikmenn sem komu til félagsins í vetur. Þar á meðal er hollenski markvörðurinn Guy Smit sem kom á láni frá Val.

Slóvenski sóknarmiðjumaðurinn Filip Valencic hefur litið vel út hjá ÍBV en hann gerði garðinn frægan í finnsku deildinni áður en hann mætti til Eyja. Þá er sóknarmaðurinn Sverrir Páll Hjaltason sem lék með Kórdrengjum í fyrra í treyju númer níu.

Slóvenski sóknarmiðjumaðurinn Filip Valencic hefur litið vel út hjá ÍBV en hann gerði garðinn frægan í finnsku deildinni áður en hann mætti til Eyja. Þá er sóknarmaðurinn Sverrir Páll Hjaltason sem lék með Kórdrengjum í fyrra í treyju númer níu.
Fyrir leik
Alex og Patrik byrja hjá Blikum
Í byrjunarliði Breiðabliks eru tveir leikmenn sem gengu í raðir félagsins í vetur. Það eru Alex Freyr Elísson, bakvörðurinn sem kom frá Fram, og færeyski landsliðsmaðurinn Patrik Johannesen sem kom frá Keflavík.

Í liðinu má einnig finna Stefán Inga Sigurðarson (á mynd) sem hefur verið iðinn við markaskorun á undirbúningsmótunum og hinn ungi Anton Logi Lúðvíksson sem gæti verið í stóru hlutverki í sumar miðað við spiltíma í vetur.

Í liðinu má einnig finna Stefán Inga Sigurðarson (á mynd) sem hefur verið iðinn við markaskorun á undirbúningsmótunum og hinn ungi Anton Logi Lúðvíksson sem gæti verið í stóru hlutverki í sumar miðað við spiltíma í vetur.
Fyrir leik
Þessir byrja fyrir Blika
Seinni LB leikur dagsins við ÍBV á Kópavogsvelli hefst 18:30. Þessir byrja fyrir Blika. pic.twitter.com/wRos10ysuI
— Blikar.is / Íslandsmeistarar 2022 (@blikar_is) March 14, 2023
Fyrir leik
Þetta er hreinn úrslitaleikur um sæti í undanúrslitum Lengjubikarsins
Breiðablik þarf að vinna með þriggja marka mun til að komast í undanúrslitin en ÍBV fer áfram með sigri, jafntefli eða tveggja marka tapi eða minna.

Undanúrslitin fara fram á laugardag. Liðið sem kemst áfram hér í kvöld mun mæta KA. Í hinum undanúrslitaleiknum leika Valur og Víkingur.

Undanúrslitin fara fram á laugardag. Liðið sem kemst áfram hér í kvöld mun mæta KA. Í hinum undanúrslitaleiknum leika Valur og Víkingur.
Fyrir leik
Gott og gleðilegt kvöld
Klukkan 18:30 er flautað til leiks á Kópavogsvelli þar sem Breiðablik og ÍBV mætast í lokaumferð riðils-2 í Lengjubikarnum. Í A-deild karla eru fjórir riðlar og efsta sæti hvers riðils gefur sæti í undanúrslitum. Valur, Víkingur R. og KA hafa þegar tryggt sér efsta sætið í sínum riðlum, en í þessum riðli er baráttan á milli Breiðabliks og ÍBV.






Eyjamenn verða í undanúrslitum Lengjubikarins á laugardag, mæta þar KA-mönnum. Valur og Víkingur eigast við í hinum undanúrslitaleiknum.