Fotbolti.net
Besta deildin
@saebjornthSæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Besta-deild kvenna
Sauðárkróksvöllur
Tindastóll
Tindastóll
1 - 0
Stjarnan
Stjarnan
Murielle Tiernan 58'1 - 0
Dómari: Birgir Þór Þrastarson

SKÝRSLAN: Töfrar Murielle hluti af fullkomnu leikplani

Hvað réði úrslitum?

Tindastóll nýtti sitt besta færi í leiknum en Stjarnan nýtti ekki sína sénsa. Mér fannst fyrri hálfleikur Stjörnunnar betri en sá seinni, liðið náði ekki að skapa opin færi í seinni og varnarleikur Tindastóls hélt vel. Að sama skapi fengu heimakonur fleiri upphlaup í seinni hálfleik og leikplan þeirra virtist heppnast fullkomlega.

Bestu leikmenn

1. Monica Wilhelm

Frábær í leiknum, gerði vissulega tvennt sem mætti skrá sem mistök en slapp í bæði skiptin. Greip svona hundrað bolta og varði þau skot sem á markið komu.

2. Murielle Tiernan

Þvílík gæði í markinu, móttakan var snerting sem kom í veg fyrir að Málfríður kæmist í boltann og á sama tíma til að komast í skotfæri og afgreiðslan svo frábær. Hún var frábær í að halda boltanum í leiknum og er svo sannarlega í lykilhlutverki á Króknum.

Atvikið

110. mark Murielle fyrir Tindastól. Magnaður leikmaður. Leikirnir alls 113 og því mark rétt tæplega að meðaltali í leik.

Hvað þýða úrslitin?

Fyrsti sigur Tindastóls á tímabilinu og liðið komið upp í 8. sæti. Stjarnan er í fimmta sæti tveimur stigum fyrir ofan. Annað tap liðsins á tímabilinu, Norðurlandsgrýla í Garðabænum?

Vondur dagur

Norðankonurnar Andrea Mist Pálsdóttir og Heiða Ragney Viðarsdóttir fá þetta frá mér. Hef séð þær eiga miklu betri leiki.

Dómarinn - 7,5

Birgir átti ágætis leik. Gerir virðist vera hárrétt að dæma ekki víti heldur aukaspyrnu í lok leiks. Atvikin voru ekki mörg en set spurningarmerki hvernig Eyrún fékk ekki gula spjaldið fyrir brot á Murielle. Svo er mjög erfitt að meta atvikið þegar Gunnhildur fór niður þegar Hannah sveiflaði fætinum. Gunnhildur bað allavega ekki um neitt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.