Toppliðið vill Anderson - Erkifjendur á eftir leikmanni Real Madrid - Lewandowski og Greenwood til Juve?
Mjólkurbikar karla
Völsungur
13:00 0
0
Kormákur/Hvöt
Mjólkurbikar karla
Þróttur R.
12:30 0
0
Víkingur Ó.
Keflavík
1
1
Fylkir
0-1 Pétur Bjarnason '35
Edon Osmani '77 1-1
23.06.2023  -  19:15
HS Orku völlurinn
Besta-deild karla
Aðstæður: Rigning en þó ekki rok. Völlurinn fjarskafallegur en alls ekki góður þegar á hann er komið
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Maður leiksins: Magnús Þór Magnússon
Byrjunarlið:
13. Mathias Rosenörn (m)
3. Axel Ingi Jóhannesson ('87)
5. Magnús Þór Magnússon (f) (f)
6. Sindri Snær Magnússon
10. Dagur Ingi Valsson
16. Sindri Þór Guðmundsson ('74)
18. Ernir Bjarnason
22. Ásgeir Páll Magnússon
24. Gunnlaugur Fannar Guðmundsson
25. Frans Elvarsson (f)
38. Jóhann Þór Arnarsson ('62)
- Meðalaldur 30 ár

Varamenn:
2. Gabríel Máni Sævarsson
7. Gabríel Aron Sævarsson
7. Viktor Andri Hafþórsson ('62)
19. Edon Osmani ('74)
21. Róbert Ingi Njarðarson
50. Oleksii Kovtun ('87)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Haraldur Freyr Guðmundsson (Þ)
Sigurður Ragnar Eyjólfsson (Þ)
Ómar Jóhannsson
Þórólfur Þorsteinsson
Margrét Ársælsdóttir
Ásgeir Orri Magnússon
Stefán Bjarki Sturluson
Guðmundur Árni Þórðarson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Jafntefli niðurstaðan
1-1 eru lokatölur hér í Keflavík og verður að segjast að það sé sennilega sanngjarnt svona heilt yfir.

Stigið gerir þó takmarkað þannig fyrir bæði lið á þessum tímapunkti en gæti mögulega gert gæfumunin þegar öllu er á botnin hvolft
91. mín
Inn:Ómar Björn Stefánsson (Fylkir) Út:Ólafur Karl Finsen (Fylkir)
90. mín
Uppbótartími er að minnsta kosti þrjár mínútur.
89. mín
Óskar Borgþórsson með skot af löngu færi en boltinn langt yfir markið.
87. mín
Inn:Oleksii Kovtun (Keflavík) Út:Axel Ingi Jóhannesson (Keflavík)
84. mín
Frábær útfærsla!
Skemmtileg útfærsla á horninu, boltinn fastur með jörð inn á teiginn þar sem Dagur Ingi mætir og nær skotinu en því miður hárfínt framhjá af samherja.
83. mín
Heimamenn fá hornspyrnu. Sindri Snær mætir til að taka hana.

Ernir Bjarnason vinnur aðra hornspyrnu.
82. mín
Pétur Bjarnason með skot en boltinn beint á Mathias.
79. mín
Inn:Frosti Brynjólfsson (Fylkir) Út:Benedikt Daríus Garðarsson (Fylkir)
77. mín MARK!
Edon Osmani (Keflavík)
Stoðsending: Viktor Andri Hafþórsson
Heimamenn að jafna metin Viktor Andri fær boltann úti til hægri og setur hann fast meðfram jörðinni inn á markteig. Varnarlína Fylkis klikkar, Ólafur límdur á marklínuna og Edon nýtir sér það og mætir á fjær og rennir boltanum í markið af stuttu færi.

75. mín
Mjög lítið að gerast í þessum leik. Keflavík reynir en gestirnir verið virkilega þéttir til baka og ekki hleypt þeim nálægt marki sínu.

Núta svo tækifærið við og við og freista þess að pressa Keflvíkinga en hafa ekkert skapað sér sjálfir heldur.
74. mín
Inn:Edon Osmani (Keflavík) Út:Sindri Þór Guðmundsson (Keflavík)
69. mín
Viktor Andri með skalla að marki en nær engum krafti í skallann og Ólafur ekki í teljandi vandræðum með að handsama boltann.
68. mín
Það er ekki alveg sama stuðið hér og í Kórnum, ögn verra veður reyndar sem spilar aðeins inn í.

Vonumst eftir kraftmiklum endi á þessum leik.
64. mín
Óskar Borgþórsson með hörkuskot sem fer af varnarmanni og afturfyrir endamörk.
62. mín
Inn:Viktor Andri Hafþórsson (Keflavík) Út:Jóhann Þór Arnarsson (Keflavík)
60. mín
Magnús Þór með hörkuskalla að marki eftir aukaspyrnu en boltinn í Ragnar Braga og þaðan í fang Ólafs í markinu.

Keflvíkingar að færast nær?
58. mín
Inn:Elís Rafn Björnsson (Fylkir) Út:Birkir Eyþórsson (Fylkir)
51. mín
Óskar Borgþórsson að sleppa einn í gegn eftir skyndisókn Fylkis. Mathias mætir vel út á móti og lokar á hann.
48. mín
Keflvíkingar að ógna en gestirnir koma boltanum í hornspyrnu.
47. mín
Axel vallarþulur þeirra Keflvíkinga er að verða gráhærður hérna í næsta boxi við hliðina á mér. Vallarklukkan verið með vesen við hann í dag og hann er ekki að skemmta sér neitt sérstaklega vel yfir því.
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn
Heimamenn sparka þessum síðari hálfleik í gang.
45. mín
Hálfleikur
Keflavík var heilt yfir sterkari aðilinn í þessum fyrri hálfleik en það reynist dýrt að skora ekki m-mörk. Fylkismenn refsuðu þeim grimmilega fyrir það og leiða.

Við komum aftur að vörmu spori með síðari hálfleikinn.
45. mín
Jóhann Þór reynir skotið frá vinstra vítateigshorni en setur boltann talsvert yfir markið.
45. mín
Uppbótartími er að minnsta kosti tvær mínútur.
44. mín
Magnús Þór með skalla úr teignum eftir aukaspyrnu en nær ekki að setja boltann í átt að marki. Fylkir á markspyrnu.
39. mín
Jóhann Þór í dauðafæri en hittir ekki boltann.
Aleinn í teignum en eftir sendingu frá vinstri en hittir ekki boltann.
35. mín MARK!
Pétur Bjarnason (Fylkir)
Stoðsending: Óskar Borgþórsson
Pétur fær alltof mikið pláss til að ná skallanum að marki úr markteignum eftir hornið. Mathias ver og boltanum komið frá en AD1 með arnaraugu og sér boltann inni.

Miðað við endursýningu þá var boltinn inni en sjónarhornið getur vissulega blekkt. Kjaftshögg fyrir Keflavík en guðsgjöf fyrir Fylkismenn sem hafa alls ekki verið góðir til þessa.

34. mín
Stórhætta í teig Fylkis
Axel Ingi með fyrirgjöf frá hægri sem fer í varnarmann, þaðan í Sindra Þór og í átt að marki en Orri Sveinn nær að komast fyrir boltann og koma honum frá.
33. mín
Lítið gerst síðustu mínutur hér. Keflavíkurliðið heilt yfir sterkara og Fylkisliðið lítið komist áleiðis.
26. mín
Sindri Þór í hörkufæri!
Flott spil Keflavíkur upp vinstra megin, boltinn fyrir markið frá að mér sýnist Sindra Snæ þar sem Sindri Þór tekur á móti honum og nær að koma honum á markið. Varnarmaður kemst fyrir skot hans á síðustu stundu og gestirnir bjarga í horn.

Keflavíkurliðið verið að vaxa síðustu mínútur.
20. mín
Fyrsta alvöru tilraun leiksins.
Jóhann Þór vinnur boltann af harðfylgi við teig Fylkis sem dettur fyrir Frans.

Frans lætur vaða úr D-boganum en Ólafur Kristófer með þetta allt á hreinu og kastar sér á boltann.
17. mín
Rek augun í það að Fylkismenn hafa gert breytingu á liði sínu eftir að leikskýrslan ver sett út upphaflega. Þórður Gunnar Hafþórsson dettur út en Benedikt Daríus kemur inn í hans stað.
13. mín
Ólafur Karl að detta í færi á markteig eftir snarpa sókn Fylkis. Mathias mætir honum vel og ver og fær Ólaf Karl í sig í kjölfarið og liggur eftir.

Rís þó fljótt upp aftur án aðhlynningar og leikur heldur áfram.
12. mín
Dagur Ingi með boltann fyrir frá vinsti en Orri Sveeinn skallar frá.
10. mín
Þessar fyrstu 10 mínútur leiksins hafa verið tilþrifalitlar svo ekki sé fastar að orði kveðið. Hvorugt lið að taka neina sénsa svona í byrjun eins og kannski eðlilegt er.
5. mín
Sindri Þór með sprett upp hægri vænginn og bolta fyrir markið. Fylkimenn koma boltanum frá í horn.

Gestirnir hreinsa fram.
4. mín
Fer svona hálf kaotískt af stað. Liðin í smá basli með að hemja boltann á blautum velli og leikurinn ekki áferðarfallegur.
1. mín
Leikur hafinn

Það eru gestirnir sem hefja hér leik. Vonumst að sjálfsögðu eftir opnum og skemmtilegum leik.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru mætt í hús Keflavík gerir tvær breytingar frá liðinu sem mætti Stjörnunni fyrir landsleikjahlé. Oleksii Kovtun og Edon Osmani fá sér sæti á bekknum og inn í þeirra stað koma Gunnlaugur Fannar Guðmundsson og Jóhann Þór Arnarson.

Fylkismenn gera sömuleiðis tvær breytingar frá liði sínu frá leiknum gegn KA. Arnór Gauti Jónsson og Benedikt Daríus Garðarson víkja úr byrjunarliði fyrir Ólaf Karl Finsen og Axel Mána Guðbjörnsson
Fyrir leik
Leikmannafréttir úr Keflavík Marley Blair hefur yfirgefið Keflavík en hann hefur gert samkomulag við félagið um riftun á samningi.

Blair lék tólf leiki í efstu deild og þrjá í bikar með Keflavík sumarið 2021 en var ekkert með í deildarkeppninni á síðasta tímabili.

„Hann kom aftur inn í hópinn í vor en hefur ekki náð að skila því sem ætlast var til af honum og því varð það að samkomulagi að slíta samningnum," segir á heimasíðu Víkurfrétta.


Fyrir leik
Ívar Orri flautar leikinn.
Ívar Orri Kristjánsson sér um dómgæslu á HS Orkuvellinum í kvöld. Honum til aðstoðar eru Birkir Sigurðarson og Rúna Kristín Stefánsdóttir. Helgi Mikael Jónasson er til taks á hliðarlínunni sem fjórði dómari og eftirlitsmaður KSÍ er Eyjólfur Ólafsson.


Fyrir leik
Fyrri viðureignir í efstu deild frá aldamótum
35 leiki hafa liðin leikið innbyrðis í efstu deild frá aldamótum.
Keflavík hefur haft sigur í 11 þeirra, 9 leikjum hefur lokið með jafntefli og Fylkismenn hafa alls 15 sinnum farið með sigur af hólmi.

Marktalan er 63-47 gestunum í vil.

Liðin mættust í Árbænum í fyrstu umferð mótsins eins og áður segir en þar fór Keflavík með 2-1 sigur af hólmi. Benedikt Daríus Garðarsson kom Fylki yfir eftir hálftíma leik og leiddu Fylkismenn í hálfleik. Sami Kamel jafnaði fyrir Keflavík þegar rétt um stundarfjórðungur lifði leiks og það var síðan Dagur Ingi Valsson sem tryggði Keflavík sinn eina sigur í deildinni þetta sumarið með marki í uppbótartíma.


Fyrir leik
Keflavík
Á sama tíma og gestirnir geta fundið ástæðu til bjartsýni þurfa Keflvíkingar að grafa ansi djúpt til að finna ljósa punkta þetta sumarið en þeir sitja í botnsæti deildarinnar með sjö stig fjórum stigum frá öruggu sæti. Langt er liðið síðan Keflavík fagnaði síðast sigri í deildinni en það var einmitt gegn Fylki í fyrstu umferð mótsins þann 10.apríl síðastliðinn eða 74 dagar alls.

Svartnættið er þó ekki algjört og það er alls ekki svo að liðið hafi verið að tapa öllum leikjum og hvað þá stórt. Jafntefli gegn Val, Breiðablik og Stjörnunni hafa sett stig á töfluna fyrir þá í síðustu leikjum en betur má ef duga skal segir máltækið og það þurfa Keflvíkingar svo sannarlega að hafa hugfast í næstu leikjum.


Fyrir leik
Fylkir
Eftir slaka byrjun á mótinu hafa Fylkismenn heldur verið að rétta úr kútnum í síðustu 5 leikjum. Átta stig af fimmtán mögulegum hefur liðið fengið í þeim fimm leikjum eftir tvo sigra, tvö jafntefli og aðeins eitt tap en Fylkisliðið hafði einungis fengið þrjú stig í sex fyrstu leikjum mótsins þar á undan.

Ellefu stig og tíunda sæti er hlutskipti Fylkis þegar við hefjum þessa seinni umferð hefðbundinar deildarkeppni. Það er þó líkt og tölfræði síðustu leikja bendir til ákveðin ástæða fyrir Árbæinga að vera bjartsýnir en liðið gæti farið svo hátt sem sjötta sæti með sigri í dag verði önnur úrslit þeim hagfelld.


Fyrir leik
Besta deild karla rúllar aftur af stað eftir landsleikjahlé.
Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá leik Keflavíkur og Fylkis í tólftu umferð Bestu deildar karla en flautað verður til leiks á HS Orku vellinum á slaginu 19:15


Byrjunarlið:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
3. Arnór Breki Ásþórsson
5. Orri Sveinn Stefánsson (f)
8. Ragnar Bragi Sveinsson (f)
9. Pétur Bjarnason
10. Benedikt Daríus Garðarsson ('79)
15. Axel Máni Guðbjörnsson
17. Birkir Eyþórsson ('58)
18. Nikulás Val Gunnarsson
77. Óskar Borgþórsson
80. Ólafur Karl Finsen ('91)
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
12. Jón Ívan Rivine (m)
6. Frosti Brynjólfsson ('79)
11. Þórður Gunnar Hafþórsson
14. Þóroddur Víkingsson
21. Valgeir Árni Svansson
22. Ómar Björn Stefánsson ('91)
24. Elís Rafn Björnsson ('58)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Björn Metúsalem Aðalsteinsson (Þ)
Rúnar Páll Sigmundsson (Þ)
Ólafur Ingvar Guðfinnsson
Halldór Steinsson
Michael John Kingdon
Olgeir Sigurgeirsson
Smári Hrafnsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: