Martinelli til Sádi? - Brentford neitar að lækka sig - Alonso tilbúinn að selja - Elanga á leið til Newcastle
Lengjudeild karla
Fylkir
53' 1
1
ÍR
Lengjudeild karla
Leiknir R.
54' 0
1
Fjölnir
Lengjudeild kvenna
ÍBV
LL 5
1
Grind/Njarð
Ísland U19
1
1
Noregur U19
0-1 Alwande Roaldsøy '65 , víti
Eggert Aron Guðmundsson '89 1-1
07.07.2023  -  19:00
Tony Bezzina Stadium, Paola
Evrópumót U19 landsliða
Aðstæður: Um 25 stiga hiti og logn
Dómari: Juxhin Xhaja (Albanía)
Byrjunarlið:
1. Lúkas Petersson (m)
2. Hlynur Freyr Karlsson
4. Logi Hrafn Róbertsson
6. Sigurbergur Áki Jörundsson ('73)
8. Gísli Gottskálk Þórðarson ('58)
9. Adolf Daði Birgisson ('73)
10. Eggert Aron Guðmundsson
14. Daníel Freyr Kristjánsson
16. Róbert Frosti Þorkelsson ('58)
18. Arnar Daníel Aðalsteinsson
19. Ágúst Orri Þorsteinsson ('73)

Varamenn:
12. Halldór Snær Georgsson (m)
3. Arnar Númi Gíslason
5. Þorsteinn Aron Antonsson
11. Guðmundur Baldvin Nökkvason ('58)
11. Galdur Guðmundsson ('73)
13. Jóhannes Kristinn Bjarnason ('73)
17. Haukur Andri Haraldsson ('58)
20. Benóný Breki Andrésson ('73)

Liðsstjórn:
Ólafur Ingi Skúlason (Þ)

Gul spjöld:
Sigurbergur Áki Jörundsson ('45)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Við tökum þessu! Eftir að hafa lent undir og Norðmenn þar að leiðandi á leið í 4 liða úrslit var geggjað að jafna þetta og halda lífi í þessu

Nú þurfum við að treysta á svona 2 til 3-0 sigur hjá Spáni gegn Norðmönnum og við vinnum Grikki

Áfram Ísland!
Arnar Laufdal Arnarsson
92. mín
Já það voru +5 +i uppbót tvær mínútur eftir
Arnar Laufdal Arnarsson
92. mín
Eggert er í ham, fær boltann fyrir utan teig, keyrir inn á teig og reynir skot sem fer í varnarmann og þaðan í hornspyrnu
Arnar Laufdal Arnarsson
91. mín
Guðmundur Baldvin reynir fyrirgjöf inn á teig sem Rugland grípur þægilega
Arnar Laufdal Arnarsson
89. mín MARK!
Eggert Aron Guðmundsson (Ísland U19)
Stoðsending: Guðmundur Baldvin Nökkvason
HAHAHAHAHHA EGGERT !!!!!!! ÉG TEK ALLT TIL BAKA ÞVÍLÍKT MARK!!!!

Lúkas grípur boltann eftir fyrirgjöf og rennir boltanum á Eggert sem hleypur upp völlinn, gefur einn tvo við GBN og Eggert hleypur framhjá einhverjum þremur Norðmönnum og á skot fyrir utan teig í nærhornið

VÁ!!!! KOMA SVO STRÁKAR
Arnar Laufdal Arnarsson
88. mín
Eggert Aron með rosalega spes ákvörðun

Skot langt fyrir utan teig sem er langt framhjá og gefur Noreg tækifæri að tefja
Arnar Laufdal Arnarsson
85. mín
5 mínútur eftir + uppbót og við erum með Norðmenn upp við kaðlana

Við VERÐUM að skora annars eru Spánn og og Noregur komin áfram í 4 liða úrslit..
Arnar Laufdal Arnarsson
83. mín
Inn:Eirik Blikstad (Noregur U19) Út:Benjamin Faraas (Noregur U19)
Arnar Laufdal Arnarsson
82. mín
Enn og aftur hætta hjá íslenska liðunu, JKB fær boltann úti hægra meginn og rennir boltanum fyrir markið en hún er tækluð í hornspyrnu
Arnar Laufdal Arnarsson
81. mín
Nei!! Við verðum að nýta þessi færi!!!! Daníel Freyr með unaðslega takta á vinstri kantinum og fer framhjá bakverði Norðmanna og á fyrirgjöf inn á teig beint á kollinn á JKB sem á frían skalla en yfir markið

Erum búnir að fá svo góð færi í þessum leik...
Arnar Laufdal Arnarsson
80. mín
Inn:Dylan Murugesapillai (Noregur U19) Út:Daniel Bassi (Noregur U19)
Arnar Laufdal Arnarsson
79. mín
Íslenska liðið að koma sér í góðar stöður á köntunum en fyrirgjafirnar eru ekki að ganga upp, náum ekki að hitta á bláa treyju
Arnar Laufdal Arnarsson
77. mín
Norðmenn fá hornspyrnu
Arnar Laufdal Arnarsson
73. mín
Inn:Benóný Breki Andrésson (Ísland U19) Út:Ágúst Orri Þorsteinsson (Ísland U19)
Ætli Lúðvík aðstoðarþjálfari sé að lesa lýsinguna
Arnar Laufdal Arnarsson
73. mín
Inn:Galdur Guðmundsson (Ísland U19) Út:Adolf Daði Birgisson (Ísland U19)
Ætli Lúðvík aðstoðarþjálfari sé að lesa lýsinguna
Arnar Laufdal Arnarsson
73. mín
Inn:Jóhannes Kristinn Bjarnason (Ísland U19) Út:Sigurbergur Áki Jörundsson (Ísland U19)
Ætli Lúðvík aðstoðarþjálfari sé að lesa lýsinguna
Arnar Laufdal Arnarsson
72. mín
Þessi Albani á flautinni er ekki á góðu hliðinni minni
Arnar Laufdal Arnarsson
69. mín
Væri til í að sjá Jóhannnes Kristinn inn á fyrir Sigurberg Áka, færa Hlyn inn á miðju og Jóa í bakvörðinn því hann er með frábæran fót og getur komið með frábærar fyrirgjafir inn á teig
Arnar Laufdal Arnarsson
65. mín Mark úr víti!
Alwande Roaldsøy (Noregur U19)
Algjörlega gegn gangi leiksins...
Arnar Laufdal Arnarsson
64. mín
ég trúi þessu ekki það er víti fyrir norðmmenn Albaninn á flautunni úfff, leiddur í gildru, Eggert fer aðeins í bakið á honum og hann lætur sig falla... plís Lúkas verðu þetta
Arnar Laufdal Arnarsson
62. mín
Hornspyrna íslenska landsliðsins sem dettur fyrir Arnar ´Ice Fade´ Daníel sem reynir hælspyrnuskot en í varnarmann og aftur í hornspyrnu
Arnar Laufdal Arnarsson
60. mín
Undirritaður væri til í að sjá Galdur Guðmundsson koma inn á í þessum leik, leikmaður sem getur Galdrað upp á eigin spýtur og við þurfum helst að skora í þessum leik til
Arnar Laufdal Arnarsson
58. mín
Inn:Oskar Sivertsen (Noregur U19) Út:Henrik Skogvold (Noregur U19)
Arnar Laufdal Arnarsson
58. mín
Inn:Oliver Braude (Noregur U19) Út:Syver Aas (Noregur U19)
Arnar Laufdal Arnarsson
58. mín
Inn:Haukur Andri Haraldsson (Ísland U19) Út:Gísli Gottskálk Þórðarson (Ísland U19)
Arnar Laufdal Arnarsson
58. mín
Inn:Guðmundur Baldvin Nökkvason (Ísland U19) Út:Róbert Frosti Þorkelsson (Ísland U19)
Arnar Laufdal Arnarsson
57. mín
AFTUR FÆRI !!!! Eggert Aron með sendingu inn á teig, léleg hreinsun norðmanna sem dettur fyrir Ágúst Orra sem reynir skot og dettur boltinn svo fyrir Gísla Gottskálk sem á skot yfir

Veeeerðum að nýta þessi færi....
Arnar Laufdal Arnarsson
56. mín
Hlynur Freyr með aukaspyrnu frá svona 27 metrum, beint á Rugland Ree í markinu sem missir boltann frá sér í teignum

Þarna átti Sigurbergur Áki að klára hlaupið sitt inn á teignum þá hefði hann getað náð til boltans
Arnar Laufdal Arnarsson
55. mín
Norðmenn að undirbúa tvöfalda skiptingu

Almar Ormarsson lýsandi RÚV talaði líka um að Guðmundur Baldvin væri líklega að fara koma inn á
Arnar Laufdal Arnarsson
51. mín
NEI !!! Þetta var færi Frábærlega gert hjá Loga Hrafni sem á sendingu inn á miðju og þaðan berst boltinn á Adolf Daða á hægri kantinum, Adolf rekur og rekur boltann inn á teig að leita að sendingu og finnur Róbert Frosta inn á teignum sem er í dauðafæri en á skot yfir markið

Frábær sókn íslenska landsliðsins
Arnar Laufdal Arnarsson
49. mín
Ísland í skyndisókn, Eggert Aron keyrir upp völlinn og gefur til hliðar á Ágúst Orra sem reynir skot fyrir utan teig, illa farið með góða stöðu
Arnar Laufdal Arnarsson
46. mín
Norðmenn ekki lengi að ógna! Fyrirgjöf inn á teig þar sem að það kemur skalli út í teig og Flataker á laust skot en Lúkas þarf að hafa sig allann í þetta og blakar boltanum í hornspyrnu
Arnar Laufdal Arnarsson
46. mín
Seinni hálfleikurinn er farinn af stað KOMA SVO STRÁKAR!!!
Arnar Laufdal Arnarsson
45. mín
Hálfleikur
Það er komið leikhlé á Tony Bezzina Stadium í Paola á Möltu. Staðan er enn markalaus. Það væri geggjað ef strákarnir næðu inn einu marki í seinni hálfleik. Við fengum bæsta færið; þegar Ágúst Orri skaut að marki. Vonandi náum við að stela sigrinum hérna, þetta hefur verið hörkuleikur!

45. mín
Einni mínútu bætt við fyrri hálfleikinn
45. mín Gult spjald: Sigurbergur Áki Jörundsson (Ísland U19)
Sækir sér gult spjald fyrir tog á miðjum vellinum.
43. mín
Ísland í hraðri sókn en Eggert Aron týnir boltann. Þá koma Norðmenn hratt á okkur og vinna sér inn hornspyrnu.
42. mín
Norðmenn í langri sókn en Arnar Daníel og Hlynur skalla frá.
42. mín
Hlynur á svo skot af löngu færi eftir hornið. Ekki amaleg tilraun en skotið fer yfir markið.
40. mín
NÆSTUM ÞVÍ!!!!! Sigurbergur Áki gerir frábærlega inn á teignum og Ágúst Orri gerir enn betur. Ágúst kemur sér svo í mjög gott skotfæri og tilraunin er stórgóð, en markvörður Norðmanna ver gríðarlega vel.

Þarna vorum við næstum því komnir yfir!
38. mín Gult spjald: Nikolai Hopland (Noregur U19)
Fyrirliði Norðmanna stoppar Ágúst í hraðri sókn og fær réttilega gula spjaldið.
36. mín
Adolf Daði gerir vel og á fyrstu skottilraun Íslands í leiknum en Rugland Ree grípur skotið.
35. mín
Logi bjargar aftur! Norðmenn ná tiltölulega auðveldlega að spila sig á bak við vörnina. Fyrirgjöf en Logi Hrafn er mættur til að setja boltann aftur fyrir.
34. mín
Við höfum ekki enn náð að skapa okkur færi.
32. mín
Sigurbergur Áki er trekk í trekk búinn að eiga frábærar sendingar út til vinstri á Róbert Frosta. Vantar aðeins upp á mýktina hjá Róberti þegar hann fær boltann.

31. mín
Þeir norsku eru mjög passívir þegar við erum með boltann en það er erfitt að brjóta þá niður.
28. mín
Logi gerir frábærlega! Adolf Daði með klaufalega sendingu og Norðmennirnir sleppa í gegn en Logi Hrafn gerir stórkostlega í að hlaupa til baka og loka. Stórgóður varnarleikur hjá FH-ingnum!

25. mín
Pælingin góð Gísli með geggjaða hugmynd og var ekki langt frá því að senda Adolf Daða í gegn, en Hopland verst vel.

23. mín
Úfffff Hopland í stórkostlegu færi eftir hornspyrnuna en Lúkas gerir mjög vel í að verja. Þarna klikkuðum við í dekkningunni - eins og gegn Spánverjum. Vorum heppnir að þetta endaði ekki með marki.

Klárlega besta færi leiksins hingað til.
22. mín
Við töpum boltanum og Noregur sækir hratt, þrír á þrjá. Við náum að verjast vel úr þeirri stöðu, en Norðmenn fá hornspyrnu.
21. mín
Norðmenn eru mikið að senda boltann langt á bak við vörnina á Faraas. Íslensku leikmennirnir þurfa aðeins að herða tökin gagnvart honum.
20. mín
Langur bolti upp og Benjamin Faraas reynir skot rétt fyrir utan teig. Það var aldrei líklegt, fer yfir markið.
18. mín
Róbert Frosti er svo sannarlega tilbúinn að hlaupa fyrir liðið. Hleypur út að endalínu og pressar norsku varnarlínuna. Noregur fær innkast langt inn á sínum vallarhelmingi og Ísland getur í kjölfarið fært sig ofar.
13. mín
Þeir norsku eru líklegri þessa stundina. Fá hér hornspyrnu en Hlynur skallar boltann í burtu.

12. mín
Norðmenn koma sér í ágætis stöðu en Hlynur verst vel. Svo fáum við fyrsta víkingaklapp leiksins. Vanda var búin að lofa þessu!
10. mín
Norsk fyrirgjöf sem Logi Hrafn stangar í burtu.
9. mín
Norðmenn liggja afskaplega aftarlega þegar við erum með boltann. Þeir eru lítið að reyna að pressa okkur.
8. mín
Lúkas gerir mjög vel, hann kallar og kýlir boltann í burtu.
7. mín
Núna fá þeir norsku hornspyrnu. Burt með boltann!
6. mín
Norðmenn ná að koma seinni spyrnunni frá marki sínu.
6. mín
Íslenska liðið fær hér hornspyrnu. Áhugaverð útfærsla og við fáum svo aðra hornspyrnu.
5. mín
Sigurbergur Áki með flotta sendingu út til vinstri á Róbert Frosta. Hann reynir fyrirgjöf en þar Roaldsøy mættur til að hreinsa.
2. mín
Besti leikmaður Norðmanna í fyrsta leiknum þeirra var leikmaður númer sex, Alwande Roaldsøy. Hann var stórkostlegur á móti Grikkjum en hann er hávaxinn miðjumaður sem spilar með unglingaliði Atalanta á Ítalíu. Þetta er leikmaður sem á að vera að spila fullorðinsfótbolta.
1. mín
Leikur hafinn
Ágúst Orri á fyrstu spyrnu leiksins!
Fyrir leik
1-0 yfir Það er mögnuð stemning hjá íslensku stuðningsmönnunum. "Þið eruð 1-0 yfir," sagði norskur fréttamaður við mig eftir þjóðsöngvana, við unnum þá baráttu.
Fyrir leik
Gæsahúð Þjóðsöngvarnir að baki. Maður fékk gæsahúð, Íslendingarnir tóku svo vel undir. Núna förum við að byrja þetta!
Fyrir leik
Liðin ganga út á völl. Íslendingarnir í stúkunni mun spenntari fyrir þessum leik en Norðmenn.
Fyrir leik
Stór hópur af Íslendingum Það er stór hópur af Íslendingum á vellinum að styðja strákana og hafa þau látið vel í sér heyra í upphituninni. Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSí, er á meðal áhorfenda en hún lofar góðum stuðningi á leiknum í kvöld.


Vanda var í stuði fyrir leik.
Fyrir leik
Styttist í leik Leikmenn Íslands eru á fullu í upphitun. Norðmennirnir voru mjög stutt út á vellinum en þeir eru farnir inn í klefa. Þeir gerðu það líka á móti Grikklandi, örugglega tengt hitanum en Norðmenn fara mjög varlega í kringum hann. Það er enn frekar heitt þó klukkan sé að verða níu.

Fyrir leik
Fjórar breytingar Ólafur Ingi Skúlason gerir fjórar breytingar á sínu liði frá leiknum gegn Spáni á þriðjudag. Bjarni Guðjón Brynjólfsson tekur út leikbann, Þorsteinn Aron Antonsson glímir við meiðsli og þeir Arnar Númi Gíslason og Guðmundur Baldvin Nökkvason taka sér sæti á bekknum.

Inn koma þeir Daníel Freyr Kristjánsson, Arnar Daníel Aðalsteinsson, Róbert Frosti Þorkelsson og Sigurbergur Áki Jörundsson.

Það eru því fimm leikmenn í byrjunarliðinu sem eru uppaldir í Stjörnunni.
Fyrir leik
Byrjunarlið Íslands
Fyrir leik
Myndir frá æfingu í gær Undirritaður kíkti á æfingu í gær og tók nokkrar myndir í hitanum.



Fyrir leik
Svona er staðan í riðlinum Það er leikdagur tvö í B-riðli í dag. Fyrst mætast Spánn og Grikkland áður en leikur Ísland og Noregur hefst. Það er gríðarlegur hiti á Möltu þessa stundina en það verður líklegast búið að kólna í kvöld þegar flautað verður til leiks hjá Íslandi og Noregi. Sá leikur hefst 21:00 að staðartíma.

Svona er staðan í riðlinum fyrir leiki kvöldsins:
1. Noregur - 3 stig
2. Spánn - 3 stig
3. Grikkland - 0 stig
4. Ísland - 0 stig
Fyrir leik
Breytingar á byrjunarliðinu? Það heyrist að miðvörðurinn Þorsteinn Aron Antonsson verði ekki með í þessum leik vegna meiðsla. Hann fór meiddur af velli í síðasta leik gegn Spáni.

Það er spurning hvort það verði einhverjar fleiri breytingar þá frá fyrsta leiknum gegn Spánverjum.


Þorsteinn Aron Antonsson.
Fyrir leik
Fyrir leik
Fyrir leik
Noregur líka án sterkra leikmanna Eins og margoft hefur komið fram þá er Ísland án lykilmanna í mótinu þar sem það fer ekki fram í landsleikjaglugga.

Noregur er líka án lykilmanna. Andreas Schjelderup, sem var frábær í dönsku úrvalsdeildinni með Nordsjælland á síðasta ári, fékk ekki að fara á mótið þar sem félag hans Benfica, bannar honum það. Sama á við um Isak Hansen-Aarøen, leikmann Manchester United, en hann er að fara inn í undirbúningstímabil með enska félaginu.


Andreas Schjelderup
Fyrir leik
Norðmenn spiluðu skrítinn leik Noregur byrjaði sitt mót á því að mæta Grikklandi. Undirritaður var á þeim leik, en hann var vægast sagt skrítinn. Norðmenn leiddu 5-0 í hálfleik en þjálfari liðsins, Luis Pimenta, gerði svo fjórfalda breytingu í hálfleik sem kostaði lið hans næstum því sigurinn. Grikkland komst inn í leikinn og náði að minnka muninn í 5-4, en þar við sat.

Noregur spilaði ekki frábærlega í fyrsta leiknum, það var meira þannig að Grikkir voru sjálfum sér verstir; þeir voru alveg skelfilegir í því að koma boltanum úr vörninni og varnarlega voru þeir út á þekju.

Fyrir leik
Tap gegn Spáni í fyrsta leik Drengirnir hófu leik gegn Spáni síðasta þriðjudagskvöld. Spánverjarnir voru gríðarlega sterkir og voru betri aðilinn lengst. En íslensku strákarnir geta tekið með sér margt úr þeim leik þrátt fyrir að hann hafi tapast 2-1.

Fyrir leik
Stór stund Í dag er komið að gríðarlega mikilvægum leik hjá Íslandi í Evrópumóti U19 landsliða. Íslendingar mæta Norðmönnum í Paola en okkar drengir þurfa helst að fá þrjú stig í þessum leik eftir tap gegn Spánverjum í fyrsta leik.

Byrjunarlið:
1. Magnus Rugland Ree (m)
3. Vetle Walle Egeli
4. Nikolai Hopland
6. Alwande Roaldsøy
7. Syver Aas ('58)
8. Niklas Ødegård
9. Erik Flataker
14. Simen Haram
17. Henrik Skogvold ('58)
18. Daniel Bassi ('80)
19. Benjamin Faraas ('83)

Varamenn:
12. Viktor Engh (m)
2. Dylan Murugesapillai ('80)
5. Vegard Solheim
10. Oliver Braude ('58)
11. Heine Bruseth
13. Aleksander Andresen
15. Rasmus Holten
16. Eirik Blikstad ('83)
20. Oskar Sivertsen ('58)

Liðsstjórn:
Luis Pimenta (Þ)

Gul spjöld:
Nikolai Hopland ('38)

Rauð spjöld: