Fotbolti.net
Besta deildin
Matthías Freyr Matthíasson
Matthías Freyr Matthíasson
Besta-deild karla
Kópavogsvöllur
Rigning og skýjað. 11 stiga hiti
Breiðablik
Breiðablik
3 - 4
KR
KR
0 - 18' Luke Morgan Conrad RaeÁgúst Eðvald Hlynsson 15'1 - 11 - 236' Jakob Franz Pálsson1 - 354' Atli Sigurjónsson1 - 474' Sigurður Bjartur HallssonJason Daði Svanþórsson 89'2 - 4Höskuldur Gunnlaugsson 90'3 - 4
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leik lokið!
Sigur KR í höfn!

Viðtöl og umfjöllun koma innan skamms. Takk fyrir samfylgdina!
KR
90. mín
Gult spjald

Kristinn Jónsson

+4
90. mín
+4

Blikar eru í stórsókn!
Breiðablik
90. mín
MAAAARRRKKKK!!

Höskuldur Gunnlaugsson

ERUM VIÐ AÐ FARA AÐ SJÁ EITTHVAÐ ÓVÆNT GERAST HÉRNA!!

Blikar fá aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig KR og Höskuldur neglir boltanum í samskeytin! Óverjandi fyrir Aron Snæ
90. mín
4 mín bætt við
KR
90. mín
Gult spjald

Lúkas Magni Magnason

Breiðablik
89. mín
MAAAARRRKKK!

Jason Daði Svanþórsson

Það er sárabótarmark.

Skráð á Jason Daða eins og er en okkur sýndist boltinn fara af Finni Tómasi í markið.
KR
80. mín
InnAron Kristófer Lárusson
ÚtAron Þórður Albertsson
KR
80. mín
InnOlav Öby
ÚtJakob Franz Pálsson
KR
74. mín
MAAAAARRRRKKKKK

Sigurður Bjartur Hallsson (stoðsending: Atli Sigurjónsson)

NÝ KOMINN INN Á OG FYRSTA SNERTING OG BÆNG! MARK!!

KR með aukaspyrnu, Atli Sigurjóns með frábæra sendingu inn í teiginn. Anton Ari kemur út í boltann en misreiknar sig í úthlaupinu og missir af boltanum og Sigurður Bjartur mættu og setur boltann lagalega í netið.

Er þetta búið?
KR
73. mín
InnSigurður Bjartur Hallsson
ÚtBenoný Breki Andrésson
KR
73. mín
InnStefán Árni Geirsson
ÚtTheodór Elmar Bjarnason
Breiðablik
72. mín
Gult spjald

Oliver Sigurjónsson

67. mín
Rúnar Kri kátur
Sést labba að varamannaskýli KR skælbrosandi. Greinilega ánægður með leik sinna manna.
Breiðablik
66. mín
InnJason Daði Svanþórsson
ÚtÁgúst Eðvald Hlynsson
Breiðablik
66. mín
InnViktor Karl Einarsson
ÚtGísli Eyjólfsson
KR
66. mín
InnLúkas Magni Magnason
ÚtLuke Morgan Conrad Rae
65. mín
Stórsókn Blika
Kiddi Steindórs kemur inn að krafti og hefur hleypt enn meira líf í sóknarleik Blika sem liggja ansi þungt á KR þessa stundina. Enn þyngra en það sem af er leiks sem er þó búið að vera talsvert.
62. mín
Stöngin!
Gísli Eyjólfs með þrusu skot að marki KR en þarna bjargaði stöngin KR!
59. mín
Hvernig bregðast Blikar við
KR hafa verið svo sannarlega beittir í sínum skyndisóknum. Þeir liggja aftarlega og leyfa Blikum að sækja á sig en eins og fyrr eru Blikar ekki að ná að nýta sér það. Svo þegar færin gefast, geysast KR í sókn og eru búnir að vera klínískir í þeim aðgerðum.
57. mín
Rétt áður en þriðja mark KR kom að þá áttu Blikar að fá vítaspyrnu. Aron Þórður hrindir Antoni Loga inn í vítateig KR og hreint með ólíkindum að ekki hafi verið dæmt víti. En í staðinn geystust KR upp völlinn og settu þriðja markið.
Breiðablik
55. mín
InnKristinn Steindórsson
ÚtÁgúst Orri Þorsteinsson
KR
54. mín
MAAAAARRRKKKK!!!

Atli Sigurjónsson (stoðsending: Benoný Breki Andrésson)

ATLI SIGURJÓNSSON!!!!

Fær boltann út við vítateig hægra meginn og lætur boltann bara vaða í fjær hornið og boltinn syngur í netinu. Geggjað mark!
KR
52. mín
Gult spjald

Jóhannes Kristinn Bjarnason

49. mín
BLIKA VILJA VÍTASPYRNU!
Anton með sendingu inn í teig KR sem fer í hendi varnarmanns KR að því best ég sá sem og allir leikmenn Blika sem heimtuðu vítaspyrnu en fengu ekki.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
Það er kominn hálfleikur í ansi fjörugum og jöfnum leik. KR leiðir með einu marki. Ekkert ósanngjarnt en heldur ekkert eitthvað sanngjarnt.

KR eru búnir að vera flottir á meðan Blikar þurfa eitthvað smávegis extra til að leggja lokahönd á stöðurnar sem þeir eru að skapa.
Breiðablik
45. mín
Gult spjald

Höskuldur Gunnlaugsson

+3
45. mín
Það er 5 mín bætt við
44. mín
Vel varið hjá Aroni Snæ
Gísli Eyjólfs með skot frá vítateigslínunni að marki KR en Aron Snær er vel vakandi og ver í horn.
Breiðablik
42. mín
Gult spjald

Damir Muminovic

KR
36. mín
MAAAAARRRRKKKK!!!

Jakob Franz Pálsson (stoðsending: Finnur Tómas Pálmason)

Finnur Tómas með fyrirgjöf og þar mætir Jakob Franz einn og óvaldaður og stekkur manna hæst og skallar boltann sem sveif óvenjulengi í loftinu og í fjærhornið.

Set spurningarmerki bæði við varnarleik Blika sem og Anton Ara í markinu.

KR komið yfir!
34. mín
Nú liggur Gísli Eyjólfs
Hann heldur um lærið. Spurning hvort að álagið sé að hafa áhrif á leikmenn Blika. Hann fær aðhlynningu frá sjúkraþjálfara inni á vellinum og labbar svo að hliðarlínu. Eins og með Alexander Helga virðist hann ætla að halda áfram leik, spurning hvað það endist.
31. mín
Blikar ná ítrekað að spila sig inn í vítateig KR en ná því miður fyrir þá, ekki að nýta sér þær stöður sem skapast.
KR
29. mín
Gult spjald

Aron Þórður Albertsson

Fyrir groddaralega tæklingu á Gísla Eyjólfs við vítateigslínuna.
Breiðablik
26. mín
InnOliver Sigurjónsson
ÚtAlexander Helgi Sigurðarson
Alexander klára ekki leikinn.
20. mín
Alexander Helgi meiddur?
Að minnsta kosti virðist hann vera að biðja um skiptingu og er lagstur í grasið. Fær hér aðhlynningu frá sjúkraþjálfaranum og kemur út að hliðarlínu. Virðist geta haldið áfram því hann kemur aftur inn á.
Breiðablik
15. mín
MAAAARRRKKKK!!!

Ágúst Eðvald Hlynsson (stoðsending: Anton Logi Lúðvíksson)

NÚ ER ÞAÐ ÁGÚST EÐVALD SEM ÞAKKAR TRAUSTIÐ!!

Blikar eru búnir að vera að sækja og ætluðu greinilega að jafna leikinn fljótt. Anton Logi vann boltann upp við hliðarlínu og sendir boltann inn í teiginn og þar kemur Ágúst Eðvald á ferðinni og nær einhvernveginn að stýra boltanum í netið fram hjá Aroni Snæ.
12. mín
Blikar sækja
Blikar eru búnir að ógna meira, bæði fyrir og eftir markið. Þetta byrjar fjörlega.
KR
8. mín
MAAAARRRRKKKK!

Luke Morgan Conrad Rae (stoðsending: Atli Sigurjónsson)

LUKE RAE ÞAKKAR TRAUSTIÐ!!!

Fékk boltann frá Atla Sigurjóns eftir hraða skyndisókn KR. Anton Ari virtist eitthvað missa fæturnar og jafnvægið og Luke fór framhjá honum og setti boltann örugglega í netið.
7. mín
Munaði litlu!
Blikar fá hornspyrnu, boltinn siglir í gegnum vörn KR, Oliver nær til boltans, sendir hann í gegnum teiginn og þar kemur Damir og nær skoti en boltinn af varnarmanni of framhjá.
4. mín
Fyrsta hálftilraunin komin
Blikar spila sig upp að vítateig KR, Ágúst Orri kemur boltanum á Gísla sem reynir háa sendingu inn í teiginn sem átti að lenda á skallanum á Klæmint en boltinn of hátt upp.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er byrjað
Fyrir leik
Liðin ganga inn á völlinn.
Þetta er að bresta á. Deyja fyrir klúbbinn með Hnetunni er í græjunum og fyrirliðarnir heilast og peningauppkastið hverjir byrja með boltann er búið. Blikar munu spila í átt að Sporthúsinu og KR byrjar með boltann.
Fyrir leik
KR að skipta um leikkerfi?
KR hafa verið að spila 3 - 4 - 3 en það lítur út fyrir að þeir séu að færa sig yfir í 4 - 3 - 3.

Einnig voru að berast þau tíðindi frá Vali Pál fréttamanni Vísi að Kristján Flóki sé meiddur og Kennie Chopart er veikur.
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn
Óskar Hrafn gerir sex breytingar frá leiknum á móti FCK. Alexander Helgi, Ágúst Þorri, Klæmint, Ágúst Eðvald, Davíð Ingvars og Oliver Stefánsson koma allir inn í byrjunarliðið í stað þeirra Olivers Sigurjónssonar, Viktors Karls, Kristinn Steindórs, Andri Rafn, Viktors Örn og Jason Daða.

KR gerir tvær breytingar eftir tapið á móti Val. Aron Þórður Albersson og Luke Rae koma inn í byrjunarliðið í stað Olav Oby og Lúkas Magna. Luke Rae byrjar sinn fyrsta deildarleik fyrir KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Oliver Stefánsson er í byrjunarliðinu hjá Blikum.
Fyrir leik
Aðstæðurnar
Aðstæður á Kópavogsvelli eru eins og best er á kosið, fyrir utan kannski veðrið en það er rigning og skýjað. En rigningin gerir það kannski að verkum að við sjáum hraðan leik hér í dag. Að minnsta kosti vonumst við eftir skemmtilegum leik.
Fyrir leik
Breiðablik ósigraðir í síðustu fjórum leikjum
Blikar gerðu jafntefli í síðustu umferð við Stjörnuna og þar á undan höfðu þeir unnið þrjá leiki í röð. Hvað gera þeir í dag?
Fyrir leik
Dómaratríóið í leiknum
Jóhann Ingi Jónsson fær það hlutskipti í dag að dæma leikinn. Honum til aðstoðar eru Kristján Már Ólafs sem er AD1 og Ragnar Þór Bender sem er AD2. Viðar Helgason er svo eftirlitsmaður leiksins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Staðan í deildinni
Ljóst er að bæði lið eru í harðri baráttu í efri hluta deildarinnar þótt óhætt sé að segja að baráttan er ólík, einungis vegna stigasöfnunar liðanna. Blikar ætluðu sér að taka titilinn aftur þetta árið en eru sem stendur 10 stigum á eftir Víkingum í efsta sæti og sitja í því þriðja með 34 stig. Þurfa Blikar nauðsynlega sigur í dag til að reyna að saxa á forskot Víkinga og vonast eftir að þeir misstigi sig.

KR er í baráttu um þetta alræmda 4. sæti sem gæti hugsanlega mögulega kannski gefið evrópusæti á næsta ári. KR eru þó líka komnir í undanúrslit bikars og þar er að sjálfsögðu möguleiki á Evrópusæti ef þeir vinna þann titil. KR situr í 6 sæti deildarinnar með 22 stig og eru langt á eftir þremur efstu liðunum en einungis tveimur stigum frá fjórða sætinu (FH á leik til góða).
Fyrir leik
KR tapað tveimur í röð
KR hefur aðeins fatast flugið í síðustu tveimur leikjum en það voru svo sem engir aukvisar sem þeir voru að spila við. Töpuðu 1 - 2 fyrir Víkingum í þar síðustu umferð og í síðustu umferð töpuðu þeir 0 - 4 fyrir Val.

Rúnar Kristinsson sagði eftir þann leik að það væru þrjú lið að leiða deildina með miklum yfirburðum og átti þá við Víkinga, Val og Blika. Efast samt stórlega um að KR sé komið í Kópavoginn í dag til þess að gefa Blikum einhvern auðveldan leik.
Fyrir leik
Breiðablik styrkir sig
Blikar fengu liðsstyrk til sín í gær þegar tilkynnt var um nýjan leikmann

Kristófer Ingi Kristinsson samdi við Blika út þetta tímabil en hann kemur frá VVV-Venlo í Hollandi.

Mynd: VVV Venlo
Fyrir leik
Geta ekki verið að hugsa um Víking eða Val
Óskar Hrafn var í viðtali við Arnar Laufdal eftir leikinn á móti FCK. Þar segir hann meðal annars að Blikar geti ekki verið að hugsa um Víking eða Val.

Sjá nánar hér

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Breiðablik komnir frá Kóngsins
Blikar voru eins og flestir vita að keppa við FCK á miðvikudaginn í Meistaradeild Evrópu og töpuðu þeim leik 6 - 2 þar sem Orri Steinn Óskarsson sonur Óskars Hrafns skoraði þrennu.

Mynd: FCK
Fyrir leik
Stórleikur í Kópavogi
Velkomin í beina textalýsingu frá leik Breiðabliks og KR í 18. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. Leikurinn hefst kl. 14:00 og verður vonandi fullur af fjöri og gleði og mörkum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Komandi leikir í þeirri Bestu:

sunnudagur 6. ágúst
14:00 Breiðablik-KR (Kópavogsvöllur)

mánudagur 7. ágúst
16:00 Valur-KA (Origo völlurinn)

þriðjudagur 8. ágúst
19:15 FH-Víkingur R. (Kaplakrikavöllur)
19:15 Fram-Fylkir (Framvöllur)

miðvikudagur 9. ágúst
19:15 HK-Keflavík (Kórinn)
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.