Fotbolti.net
Besta deildin
Sölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Besta-deild karla
Kópavogsvöllur
Breiðablik
Breiðablik
0 - 2
FH
FH
0 - 154' Kjartan Henry Finnbogason0 - 292' Eetu Mömmö
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Áhorfendur: 470
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Fyrsti sigur FH á gervigrasi í 720 daga

Hvað réði úrslitum?

Blikarnir mættu bara ekki til leiks á meðan FH vörðust eins og ljón allan leikinn. Fyrstu 10 mínúturnar af seinni hálfleik voru algjörlega í eign FH og hefðu getað skorað meira en eitt mark á þeim kafla. Man ekki eftir mörgum, ef einhverju, almennilegu færi Blika í dag. Þeir fengu nákvæmnlega það sem þeir áttu skilið úr þessum leik, ekkert.

Bestu leikmenn

1. Davíð Snær Jóhannsson

Fannst hann virkilega góður í dag. Spilaði allar 90 mínúturnar og var virkilega góður. Var sífellt að ógna, sérstaklega í seinni hálfleik. Síðan átti hann þessa gullfallegu stoðsendingu á Eetu í seinna markinu.

2. Haraldur Einar Ásgrímsson

Gjörsamlega geggjaður í dag og leggur upp í þokkabót. Lokaði gjörsamlega bara á Jason Daða. Jason átti ekki roð í Harald og hann var mjög góður í dag. Bara heilsteypt mjög góð frammistaða hjá Haraldi.

Atvikið

Líklega seinasta markið í leiknum. Geggjuð sending hjá Davíð í gegn á Eetu sem kláraði leikinn svo með frábærri afrgreiðslu. Síðan er það kannski ekki beint atvik en þetta var fyrsti sigur FH á gervigrasi síðan 13. september 2021, eða í 720 daga. Fékk þennan mola frá ritstjóranum.

Hvað þýða úrslitin?

FH fara í efra umspilið og eru núna aðeins fjórum stigum á eftir Breiðablik sem eru 3. sætinu.

Vondur dagur

Erfitt að segja einhvern einn. Fannst allir virka frekar slakir. Mér fannst bara allir þessir stóru leikmenn virkilega slakir. Þá er ég að tala um Viktor Karl, Gísla Eyjólfs, Höskuld og fleiri.

Dómarinn - 7

Fínasta frammistaða hjá teyminu í dag. Gott flæði í þessu og fínasta stjórn sem teymið hafði á leiknum. Fannst nokkur atriði og nokkrir dómar hjá þeim spurningarmerki en annars bara fínasti leikur hjá teyminu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.