Leik lokið!
90. mín
+3
Selfyssingar meira með boltann hér undir lokinn og eru að reyna að ná inn þriðja markinu
Selfyssingar meira með boltann hér undir lokinn og eru að reyna að ná inn þriðja markinu
90. mín
+1
Lítið eftir. Fjórar mínútur í uppbótartíma. Þetta virðist vera að fjara út
Lítið eftir. Fjórar mínútur í uppbótartíma. Þetta virðist vera að fjara út
89. mín
Fjölnir að gera út um þennan leik
Jónatan Guðni Arnarsson
Leikmenn Selfyssinga í skallatennis eftir útspark Fjölnis. Boltinn endar hjá Jónatan sem kemst inn fyrir vörn Selfoss og klárar snyrtilega framhjá Blakala88. mín
InnBjarni Þór Hafstein
ÚtReynir Haraldsson
Reynir þarf að fara útaf
88. mín
Aðeins minna um færi síðustu mínútur en ég gæti alveg séð að það komi mark hér í lokinn
86. mín
Reynir liggur niðri og þarf aðhlynningu. Virðist vera krampi
84. mín
Gult spjald
Guðmundur Karl Guðmundsson
Brýtur á leikmanni Selfyssinga og stoppar þar með mögulega sókn81. mín
Selfyssingar minnka muninn!
Gonzalo Zamorano Leon (stoðsending: Alfredo Ivan Arguello Sanabria)
Alfredo með flotta takta á hægri kanti og kemur með fína fyrirgjöf sem ratar á Gonzalo sem er með klaufalega móttöku en nær að seta hælinn í boltann og inn80. mín
Gonzalo með skot á mark rétt fyrir utan vítateig Fjölnis sem halldór ver en nær ekki að halda skotinu í fyrstu en nær boltanum svo
79. mín
InnVilhjálmur Yngvi Hjálmarsson
ÚtBaldvin Þór Berndsen
79. mín
InnÓliver Dagur Thorlacius
ÚtDaníel Ingvar Ingvarsson
76. mín
InnAlexander Clive Vokes
ÚtValdimar Jóhannsson
73. mín
MAAAARK!
Kristófer Dagur Arnarsson (stoðsending: Reynir Haraldsson)
Fjölnismenn fá hornspyrnu frá hægri. Flott fyrirgjöf frá Reyni beint á kollinn á Kristófer Degi sem á flottann skalla sem hefur viðkomu í varnarmanni Selfyssinga og þaðan í netið71. mín
InnElías Karl Heiðarsson
ÚtAron Fannar Birgisson
68. mín
Þarna slapp Halldór Snær heldur betur með skrekkinn
Kristófer Dagur sendir boltann á Halldór sem virðist vera aðeins of lengi að hugsa og Jón Vignir nær næstum því að taka af honum boltann. Þarna voru Fjölnismenn heppnir
67. mín
InnHákon Ingi Jónsson
ÚtAxel Freyr Harðarson
Úlli með tvöfalda skiptingu
67. mín
InnJónatan Guðni Arnarsson
ÚtMáni Austmann Hilmarsson
Úlli með tvöfalda skiptingu
63. mín
Gonzalo kemst í flott færi sem Halldór Snær nær að verja í horn.
Valdimar tekur hornið en Halldór Snær kemur höndunum í boltan og sókn Selfyssinga fjarar út
Valdimar tekur hornið en Halldór Snær kemur höndunum í boltan og sókn Selfyssinga fjarar út
60. mín
Fjölnismenn hafa byrjað þennan seinni hálfleik betur og gætu alveg bætt við fleiri mörkum.
57. mín
Flottur skalli hjá Mána
Máni Austmann Hilmarsson (stoðsending: Reynir Haraldsson)
Axel Freyr byrjar sóknina hjá Fjölni þar sem hann setur Reyni í gegn upp vinstri kantinn. Reynir kemur síðann með mjög góða fyrirgjöf sem Máni skallar af prýði í fjærhornið.52. mín
Heiðar Helguson aðstoðarþjálfari Selfoss er ekki ánægður með byrjun sinna manna hér í seinni hálfleik. Lætur heyra vel í sér
49. mín
Gonzalo með rosalegt klúður
Kemst einn á móti markmanni eftir flotta sendingu en einhvernveginn nær Gonzalo að setja boltann framhjá. Ótrúlegt!!
47. mín
Fjölnismenn með flotta skyndisókn þar sem Axel Freyr keyrir upp vinstri kantinn og kemur með fyrirgjöf sem bjargað er í horn.
Ekkert varð úr horninu
Ekkert varð úr horninu
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!!
Selfyssingar koma seinni hálfleiknum hér í gang
45. mín
Hálfleikur
Á meðan ég man þá er hægt að fylgjast með leiknum á youtube síðu selfyssinga
https://www.youtube.com/watch?v=IZAHM2l6DTQ&ab_channel=Selfosstvf%C3%B3tbolti
https://www.youtube.com/watch?v=IZAHM2l6DTQ&ab_channel=Selfosstvf%C3%B3tbolti
45. mín
Hálfleikur
Helgi Mikael flautar af þennan mjög svo fjöruga fyrri hálfleik. Mér fannst Selfyssingar eiga fyrsta hálftímann en Fjölnismenn tóku alveg við síðustu 15 mínúturnar. Alveg þónokkuð um færi og góða skemmtun. Meira svona í seinni hálfleik takk!
43. mín
Gult spjald
Baldvin Þór Berndsen
Fær spjald eftir brot á Zamorano42. mín
Sumir Fjölnismenn kalla eftir víti eftir að Axel Freyr fer niður í teignum. Get ekki séð að þetta hafi verið neitt
40. mín
Eftir þetta mark Fjölnis virðis momentumið hafa algerlega snúist við. Fjölnismenn liggja á gestunum
36. mín
Fjölnismenn hafa sannarlega lifnað við
Baldvin Berndsen með frábært skot af svona 25 metrum sem Robert Blakala ver meistaralega í horn
34. mín
DAGUR INGI HNEIGÐU ÞIG!!!!!
Dagur Ingi Axelsson (stoðsending: Daníel Ingvar Ingvarsson)
Nánast um leið og ég var búinn að skrifa síðustu færslu þá kemur Daníel Ingvar með gullmola af sendingu inn á teig, ratar beint á Dag Inga sem tekur boltann í fyrsta í samskeytin í fjærhornið. Óverjandi skot31. mín
Selfyssingar hafa verið ívið betri þennan fyrsta hálftíma. Ná að loka á helstu hættu sem stafar af Fjölnismönnum. Það vantar þó meira end product þegar þeir eru komnir inn í teig. Bjarni og Heiðar ekki sáttir með staðsetningu sinna manna þegar þeir eru í sókn
25. mín
Aukaspyrna á álitlegum stað á vinstri kanti fyrir Fjölni. Reynir tekur spyrnuna en fer beint í hendurnar á Blakala
22. mín
Sóknir Fjölnis mjög einsleitar
Baldvin gefur boltann þvert yfir völlinn á Dag Inga sem fer með hann út að endalínu og gefur fyrir. Búnir að reyna þetta 5-6 sinnum en virðist ekki ganga mikið
20. mín
Gult spjald
Júlíus Mar Júlíusson
Sá ekki alveg fyrir hvað19. mín
Fjölnir í góðu færi
Eysteinn Ernir missir boltann in ná eigin teig og boltinn berst á Mána Austmann sem skýtur beint á Blakala
18. mín
Gult spjald
Jón Vignir Pétursson
Fyrir brot á Degi Inga17. mín
Álitlegt færi hjá Selfossi
Selfyssingar komast strax upp í sókn þar sem Alfredo Sanabria nær skoti á markið en Halldór Snær ver vel
16. mín
Þarna voru Selfyssingar heppnir!
Dagor Ingi Axelsson kemur með fyrirgjöf frá hægri sem Eysteinn Ernir stýrir í átt að markinu en Blakala nær að verja
13. mín
Fyrsta færi Fjölnis
Reynir kemur með hornspyrnu inn á teig og boltinn endar hjá Júlíusi Má sem setur hann yfir markið
11. mín
Flott sending hjá Jón Vigni fyrirliða Selfoss inn fyrir vörn Fjölnismanna sem ratar í fætur Zamorano en Guðmundur Karl bægir hættunni frá
10. mín
Dagur Austmann kemur með fyrirgjöf utan af velli inn á teig Selfoss. Boltinn hefur viðkomu í varnarmanni Selfyssinga og endar síðan í höndum Blakala. Lítil hætta
7. mín
MAAAARK!
Valdimar Jóhannsson (stoðsending: Aron Fannar Birgisson)
Flott mark hjá Selfyssingum. Aron Fannar með sendingu frá hægri sem ratar á Valdimar Jóhannsson sem klárar snyrtilega í fjærhornið. Ekki nægilega góður varnarleikur hjá Fjölnismönnum þarna3. mín
Selfyssingar með fyrsta færi leiksins. Ívan Breki með fína fyrirgjöf frá hægri sem finnur Gonzalo Zamorano í fætur en skot hans beint á Halldór
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað
Fjölnismenn byrja með boltann og sækja í áttina að bíóinu hér í fyrri hálfleik
Fyrir leik
Liðin labba hér inná völlinn. Þetta er alveg að fara að hefjast
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn
Bæði lið virðast gera tvær breytingar frá síðustu umferð í bikarnum.
Hjá heimamönnum koma Dagur Ingi Axelsson og fyrirliðinn Guðmundur Karl Guðmundsson inn fyrir þá Óliver Dag Thorlacius og Jónatan Guðna Arnarsson.
Hjá Selfyssingum koma Aron Fannar Birgisson og Valdimar Jóhannsson inn fyrir þá Aron Darra Auðunsson og Elías Karl Heiðarsson
Hjá heimamönnum koma Dagur Ingi Axelsson og fyrirliðinn Guðmundur Karl Guðmundsson inn fyrir þá Óliver Dag Thorlacius og Jónatan Guðna Arnarsson.
Hjá Selfyssingum koma Aron Fannar Birgisson og Valdimar Jóhannsson inn fyrir þá Aron Darra Auðunsson og Elías Karl Heiðarsson
Fyrir leik
Dómarateymið
Dómari leiksins er Helgi Mikael Jónasson. Honum til aðstoðar eru þeir Egill Guðvarður Guðlaugsson og Gylfi Már Sigurðsson. Eftirlitsmaður er síðan Viðar Helgason. Allt eru þetta þaulreyndir menn og býst ég því við vel dæmdum leik


Fyrir leik
Leið liðanna í 32 liða úrslit
Í síðustu umferð Mjólkurbikarsins gerðu heimamenn í Fjölni sér ferð á Hlíðarenda þar sem þeir mættu KH. Staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma, en Fjölnismenn gerðu sér lítið fyrir og skoruðu þrjú mörk í framlengingu á móti einu marki KH manna og fór því leikurinn 2-4.
Gestirnir frá Selfossi fengu Kára frá Akranesi í heimsókn á JÁVERK-völlinn. Kári komst 0-1 yfir í fyrri hálfleik en Selfyssingar skoruðu þrjú mörk í seinni hálfleik og unnu leikinn 3-1.
Gestirnir frá Selfossi fengu Kára frá Akranesi í heimsókn á JÁVERK-völlinn. Kári komst 0-1 yfir í fyrri hálfleik en Selfyssingar skoruðu þrjú mörk í seinni hálfleik og unnu leikinn 3-1.
Fyrir leik
Innbyrðis viðureignir
Liðin hafa spilað saman 23 leiki í meistaraflokki karla og eru úrslitin eftirfarandi
Sigrar
Fjölnir: 10
Selfoss: 12
Jafntefli: 1
Markatalan í þessum 23 leikjum er 38-47 Selfyssingum í vil
Sigrar
Fjölnir: 10
Selfoss: 12
Jafntefli: 1
Markatalan í þessum 23 leikjum er 38-47 Selfyssingum í vil
Fyrir leik
Völlur dagsins: Egilshöll
Góðan daginn gott fólk og verið þið velkomin í beina textalýsingu frá viðureign Fjölnis og Selfoss í 32. liða úrslitum í Mjólkurbikar karla.
Leikurinn verður spilaður í Egilshöll og hefst hann klukkan 19:15

Leikurinn verður spilaður í Egilshöll og hefst hann klukkan 19:15




Viðtöl og skýrsla koma inn seinna í kvöld!