Fotbolti.net
Sverrir Örn Einarsson
Lengjudeild karla
Víkingsvöllur
Hæg sunnan átt, skýjað og hiti um 9 gráður
Grindavík
Grindavík
2 - 3
Fjölnir
Fjölnir
0 - 17' Máni Austmann Hilmarsson (víti)0 - 245' Guðmundur Karl Guðmundsson Kristófer Konráðsson 66'1 - 21 - 375' Dagur Ingi AxelssonSímon Logi Thasaphong 92'2 - 3
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Áhorfendur: 825
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Fjölnir fær fljúgandi start

Hvað réði úrslitum?

Fjölnismenn nýttu sín tækifæri í leiknum eða í það minnsta fleiri en Grindavík. Það má alveg segja að leikurinn hafi að mestu verið í járnum úti á velli en eftir stendur markatalan og þar eru Fjölnismenn sanngjarnir sigurvegarar.

Bestu leikmenn

1. Guðmundur Karl Guðmundsson

Alltaf heldur maður að tímabilið sé það síðasta hjá Gumma Kalla en alltaf mætir hann aftur og stendur fyrir sínu. Gríðarlega mikilvægur hlekkur í reynslulitlu Fjölnisliði og mun örugglega gefa mikið af sér inn í hópinn þetta sumarið. Skoraði virkilega gott mark.

2. Axel Freyr Harðarson

Fjölnisliðið átti heilt yfir rosalega jafna frammistöðu í leiknum og erfitt að taka einhvern útfyrir sviga. Axel olli usla oftar en einu sinni þegar hann hljóp á vörnina og fær prik frá mér í dag.

Atvikið

Annað mark Fjölnis. Eftir aukaspyrnu frá Reyni Haraldssyni nánast frá hornfána skalla Grindvíkingar boltann út beint fyrir fætur Guðmundar Karls sem hamrar boltann í netið örfáum sekúndum fyrir hálfleiksflautið og staðan 2-0 fyrir Fjölni í hálfleik.

Hvað þýða úrslitin?

Fjölnimenn með þrjú stig á toppi deildarinnar og fá að njóta þess í tæpa tvo sólarhringa hið minnsta. Grindvíkingar stigalausir á botninum yfir sama tímabil að minnsta kosti.

Vondur dagur

Kristófer Konráðsson kom Grindavík aftur inn í leikinn með góðu marki en misreiknaði svo boltann skömmu síðar sem varð til þess að Fjölnir komst í 3-1. Hefur ábyggilega verið ansi súr biti að kyngja það.

Dómarinn - 7

Ívar og hans teymi áttu heilt yfir ágætis dag. Læt vítaspyrnudóminn liggja á milli hluta. Er ekkert endilega viss um hann hafi verið réttur en hef að sama skapi ekkert í höndunum að hann hafi verið rangur heldur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.