SKÝRSLAN: Skallamark af 25 metrum dugði HK ekki
Hvað réði úrslitum?
HK-ingar byrjuðu leikinn mun betur, eftir því sem leið á leikinn tóku Valsarar völdin og stýrðu leiknum. Gæðin í liði Vals létu HK-inga elta á tímum og þreyttu þá. Í fyrri hálfleik fengu bæði lið góð færi sem hefði mátt nýta betur. Gæðin komu svo í ljós í seinni hálfleik hjá Völsurum og unnu þeir sanngjarnan sigur að lokum.
Bestu leikmenn
1. Jónatan Ingi Jónsson
Jónatan skoraði bæði mörk Valsara og var heilt yfir mjög góður í leiknum.
2. Arnar Freyr Ólafsson
Arnar var frábær í marki HK, margar frábærar vörslur hjá honum í dag.
Atvikið
Mark Arnþórs Ara var kostulegt, Frederik Schram á skelfilegan bolta utarlega úr teignum sem fer beint á kollinn á Arnþóri sem var vel fyrir utan teig Arnþór náði að stýra boltanum í mitt markið.
Hvað þýða úrslitin?
Valsarar komu sér í 3. sæti deildarinnar aðeins stigi á eftir Breiðablik en fjórum stigum frá Víkingum sem sitja á toppi deildarinnar.
HK-ingar sitja í 9. sæti og eiga Fylki í næsta leik, með sigri þar geta þeir slitið sig frá neðstu sætunum.
Vondur dagur
Frederik Schram átti lélega sendingu sem Arnþór Ari skallaði inn, en kom ekki að sök fyrst Valur vann leikinn.
Annars enginn sem kemur sterklega til greina.
Dómarinn - 8
Arnar Þór og félagar létu leikinn fljóta vel, ég er hrifinn af þannig dómgæslu, engir stórir dómar sem fóru á rangan veg bara flott dagsverk hjá tríóinu.




