Fotbolti.net
Besta deildin
@antonfreeyrAnton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
ÍA
ÍA
Besta-deild karla
ELKEM völlurinn
Mikill vindur
0 - 1
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 156' Helgi Guðjónsson (víti)
Dómari: Erlendur Eiríksson
Leik lokið!
Þetta er búið
Erlendur flautar til leiksloka. Víkingar mæta hér á Skagann og vinna 1-0. Má alveg segja iðnaðarsigur. Takk fyrir mig í dag.
96. mín
ÍA fær horn
Skagamenn fá annað horn í framhaldi. Er dramatík?
94. mín
Áhorfendur hér í dag eru 348.
93. mín
Hætta
ÍA með hornspyrnu frá hægri. Viktor Jóns skallar boltann yfir markið.
90. mín
Klukkan slær 90 á Norðurálsvellinum
Uppbótartíminn er að lágmarki fimm mínútur.
89. mín
Arnór Smárason fær boltann inn á teig Víkinga og nær skoti en boltinn framhjá.
Víkingur R.
88. mín
InnViktor Örlygur Andrason
ÚtGísli Gottskálk Þórðarson
Viktor Örlygur kemur hér inn fyrir Gísla Gotta sem hefur verið frábær inn á miðsvæðinu hjá Víkingum í dag.
86. mín
Lítið í gangi þessar síðustu mínútur. Víkingar eru hægt og rólega að sigla þessum þremur stigum í hús.
Víkingur R.
79. mín
InnJón Guðni Fjóluson
ÚtDavíð Örn Atlason
78. mín
Hornspyrna Víkingur
Önnur hættuleg spyrna en Víkingar ná ekki að setja boltann á markið.
77. mín
Víkingar fá hornspyrnu
Víkingar liggja aðeins núna á Skagamönnum. Hornspyrnan er góð og Skagamenn bjarga nánast á marklínu.
76. mín
Erlingur fær boltann inn á teig ÍA og nær skoti en Oliver nær að henda sér fyrir skotið og boltinn af honum og afturfyrir. Hornspyrna Vikes.
Víkingur R.
70. mín
InnNikolaj Andreas Hansen
ÚtHelgi Guðjónsson
Víkingur R.
70. mín
InnAri Sigurpálsson
ÚtDanijel Dejan Djuric
66. mín
Upp úr hornspyrnunni keyra Skagamenn upp og Viktor Jónsson er allt í einu aleinn gegn Ingvari en Gísli Gotti gerir vel og eltir Viktor uppi. Viktor lætur sig falla og ÍA stúkan og Jón Þór ærist. Held þetta hafi verið hárrétt hjá Erlendi en Viktor virtist vera að sækja þetta.
66. mín
Víkingar fá hornspyrnu
65. mín
Djuric fær boltann og á skot en boltinn fer yfir markið.
63. mín
Arnór Smárason tekur spyrnuna sem er góð og Ingvar þarf að slá þennan frá sér. Skagamaður fellur inn á teignum og Skagamenn kalla eftir víti en Erlendur dæmir ekkert.
61. mín
Oliver Ekroth tekur Viktor Jónss niður. Skagamenn fá aukaspyrnu á stórhættulegum stað.
ÍA
60. mín
InnArnór Smárason
ÚtSteinar Þorsteinsson
ÍA
60. mín
InnÁrni Salvar Heimisson
ÚtIngi Þór Sigurðsson
Víkingur R.
58. mín
Gult spjald

Erlingur Agnarsson

Víkingur R.
56. mín
Víkingar leiða

Helgi Guðjónsson

Helgi setur boltann uppi hægra megin. Sendir Árna í vitlaust horn, virkilega öruggur! 0-1.
ÍA
54. mín
Rautt spjald

Marko Vardic

Marko Vardic er að fara hér í sturtu. Tekur Djuric niður sem var að fara láta vaða á markið. Erlendur væntanlega metur þetta svoleiðis að Marko hafi rænt Djuric upplögðu marktækifæri.
54. mín
VÍKINGUR FÆR VÍTIIII Marko Vardic virðist taka Djuric niður inn á teig ÍA
52. mín
Djuric vinnur hornspyrnu fyrir Víkinga
48. mín
Víkingar fá aukaspyrnu á fínum stað.
47. mín
Valdimar Þór með fyrirgjöf sem Árni kýlir í burtu og er brotið á Árna og Skagamenn fá aukaspyrnu.
47. mín
Víkingar fá hornspyrnu
46. mín
Síðari hálfleikurinn er farinn af stað
ÍA
45. mín
InnGuðfinnur Þór Leósson
ÚtRúnar Már S Sigurjónsson
45. mín
Erlendur flautar til hálfleiks
Staðan er markalaus hér á Norðurálsvellinum á Akranesi. Fáum okkur smá pásu og komum síðan með síðari hálfleikinn.
45. mín
1 mínúta í uppbótartíma
43. mín
Víkingar fá hornspyrnu
Helgi Guðjóns tekur spyrnuna og fer boltinn afturfyrir. Markspyrna frá marki ÍA
ÍA
38. mín
Gult spjald

Rúnar Már S Sigurjónsson

Brýtur á Karl Friðleifi og er ekki sáttur. Fékk væntanlega spjaldið fyrir mótmæli frekar en brotið.
35. mín
Víkingar fá dauðafæri
Valdimar kemur boltanum á Helga sem lætur vaða og Árni Marinó ver boltann út til Djuric sem nær skoti sem Árni Marinó ver í hornspyrnu. Þetta var færiii fyrir Víkinga.
32. mín
Víkingar fá hornspyrnu
Karl Friðleifur tekur hana og er spyrnan er mjög góð en Marko Vardic hreinsar boltann í burtu.
30. mín
Einn annar leikur í gangi í Bestu deild karla
Sævar Þór er á Meistaravöllum þar sem KR er með Vestramenn í heimsókn. KR 2 - 2 Vestri
27. mín
Gísli Gottskálk fær boltann fyrir utan og lætur vaða en boltinn þægilegur fyrir Árna Marinó sem grípur boltann.
25. mín
Karl Friðleifur brýtur á Viktori Jóns og ÍA fær aukaspyrnu á ágætum fyrirgjafarstað. Aukaspyrnan tekin stutt og boltinn berst á Inga Þór sem nær máttlausu skoti beint á Ingvar.
20. mín
Erlingur Agnars gerir ágætlega úti við endarlínu og nær fyrirgjöf en boltinn útaf og markspyrna frá marki ÍA.
17. mín
Áfram ekkert að gerast
Núna er fyrri hálfleikur rúmlega hálfnaður og það hefur ekki komið eitt einasta færi í þetta.
12. mín
Víkingar reyna fyrirgjöf inn á teig ÍA en boltinn beint í hendurnar á Árna Marinó.
5. mín
Fer rólega af stað
Vindurinn er að fara hafa einhver áhrif á þennan leik hér í dag. það er nokkuð ljóst.
2. mín
ÍA fær fyrstu hornspyrnu leiksins
Ekkert kemur uppúr henni.
1. mín
Þetta er farið af stað
Viktor Jónsson sparkar leiknum af stað. Góða skemmtun.
Fyrir leik
Liðin ganga til leiks
Liðin ganga til leiks hér á Norðurálsvellinum. Vallaþuilur ÍA byrjar að kynna liðin til leiks. Stutt í upphafsflaut.
Fyrir leik
Pablo Punyed ekki með
Pablo Punyed er hvergi sjáanlegur á leikskýrslu Víkinga fyrir þennan leik. Við munum að sjálfsögðu hléra Arnar Gunnlaugs eftir leik en Víkingar fara í Kópavoginn á fimmtudaginn næstkomandi og mæta þar Breiðablik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Ég er mættur á Akranes
Þá erum við mætt á Akranes. Það er mikill vindur hér upp á Skaga í dag og verður fróðlegt að sjá hvernig leik við förum að fá hérna í dag.
Fyrir leik
Byrjunarliðin- Aron Elís og Arnór Smára ekki með - Matti Villa byrjar
Í síðustu umferð gerði ÍA 1 - 1 jafntefli úti gegn Fram. Frá þeim leik gerir Jón Þór Hauksson þjálfari liðsins eina breytingu. Ingi Þór Sigurðsson kemur inn fyrir Arnór Smárason sem fór útaf í hálfleik í síðasta leik og situr á bekknum í dag. Víkiongar unnu 1 - 4 útisigur á Vestra í síðustu umferð en frá þeim leik gerir Arnar Gunnlaugsson þjálfari liðsins fjórar breytingar. Jón Guðni Fjóluson, Viktor Örlygur Andrason, Ari Sigurpálsson, Aron Elís Þrándarson fara út en inn koma þeir Helgi Guðjónsson, Gísli Gottskálk Þórðarson, Matthías Vilhjálmsson og Davíð Örn Atlason.
Fyrir leik
Staðan í deildinni
Það eru sjö umferðir búnar af mótinu eru gestirnir í Víkingi á toppnum með 18 stig, hafa unnið sex og tapað einum gegn HK. Heimamenn í ÍA hafa unnið 3, gert eitt jafntefli og tapað þremur og eru í sjötta sæti. 1. Víkingur - 18 stig 2. Breiðablik - 15 3. Valur - 14 4. Fram - 12 5. FH - 12 6. ÍA - 10 7. KR - 10 8. Stjarnan - 10 9. HK - 7 10. Vestri - 6 11. KA - 5 12. Fylkir - 1
Fyrir leik
Spákonan
Fótboltamamman Helga Birkisdóttir spáir í 8. umferð Bestu deildarinnar en sonur hennar, Birkir Már Sævarsson spilar með Val og hinn, Aron Elí Sævarsson með Aftureldingu. ÍA 1 - 2 Víkingur Arnór Smárason skorar fyrsta mark leiksins en Víkingar ná smám saman yfirtökum á leiknum með mörkum frá Jóni Guðna Fjólusyni og Nikolaj Hansen.
Mynd: Raggi Óla
Fyrir leik
Dómarateymið
Erlendur Eiríksson dæmir leikinn í dag og er með þá Bryngeir Valdimarsson og Svein Inga Sigurjónsson Waage sér til aðstoðar á línunum. Helgi Mikael Jónasson er svo skiltadómari. KSÍ sendir svo árbæinginn skelegga Viðar Helgason til að hafa eftirlit með störfum dómara og umgjörð leiksins.
Erlendur dæmir í dag. | Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Leikdagur á Akranesi
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá Akranesi. Hér mætast ÍA og Víkingur í 8. umferð Bestu-deildar karla. Leikurinn hefst klukkan 17:00 á ELKEM-vellinum og hér verður fylgst með öllu sem gerist.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.