Leik lokið!
Einfaldur dagur á skrifstofunni hjá Blikum. Þær eru komnar í undanúrslitin. Keflvíkingar úr leik.


95. mín
Melanie í fínu færi á teignum en setur boltann fram hjá.
92. mín
En þetta gerir lítið fyrir Keflvíkinga.
MARK!
Saorla Lorraine Miller
Alveg gríðarlega öruggt víti.En þetta gerir lítið fyrir Keflvíkinga.
91. mín
Keflavík fær víti!
Sárabótarvíti, hendi dæmd.
90. mín
Sex mínútum bætt við
90. mín
Vigdís Lilja gerir fimmta markið

90. mín
Gengur endanlega frá þessu.
FIMMTA MARKIÐ!
Vigdís Lilja Kristjánsdóttir
Þetta var ekki flókið. Vigdís Lilja, sem er búin að raða inn í sumar, gerir hér fimmta markið með flottri afgreiðslu.Gengur endanlega frá þessu.
89. mín
Hrafnhildur Ása í mjög fínu færi en Vera Varis ver frá henni. Hrafnhildur á að vera búin að skora í þessum leik.
87. mín
Núna á Írena slaka sendingu til baka en aftur ná Keflvíkingar ekki að refsa.
86. mín
InnVigdís Lilja Kristjánsdóttir
ÚtKatrín Ásbjörnsdóttir
Katrín fær ekki þrennuna.
83. mín
Anna Nurmi með skottilraun sem fer rétt yfir markið.
82. mín
Melanie með aukaspyrnu á markið. Telma í engum vandræðum.
80. mín
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir, munið nafnið. Þetta er alvöru leikmaður.
78. mín
InnÓlöf Sigríður Kristinsdóttir
ÚtBirta Georgsdóttir
76. mín
Birta með frábæran sprett og er komin í gott færi en Vera Varis ver frá henni.
75. mín
Mikaela með slæma sendingu til baka og hún vissi það strax en Melanie nær ekki að vera á undan Ástu í boltann.
74. mín
Hrafnhildur Ása með skot en Salóme og Eva Lind henda sér fyrir það í sameiningu.
71. mín
InnHilda Rún Hafsteinsdóttir
ÚtSusanna Joy Friedrichs
71. mín
InnBrynja Arnarsdóttir
ÚtSigurbjörg Diljá Gunnarsdóttir
71. mín
InnEva Lind Daníelsdóttir
ÚtAnita Lind Daníelsdóttir
71. mín
Birta Georgs með fína takta og á svo skot sem fer fram hjá markinu.
69. mín
InnKaritas Tómasdóttir
ÚtHeiða Ragney Viðarsdóttir
69. mín
InnMikaela Nótt Pétursdóttir
ÚtBarbára Sól Gísladóttir
67. mín
Anna Nurmi í flottu færi inn á teignum eftir hornspyrnu en setur boltann einhvern veginn í sjálfa sig. Enginn kraftur í skotinu.
66. mín
Katrín að hóta þrennunni en hittir boltann ekki nægilega vel.
64. mín
Katrín gerir sitt annað mark

63. mín
Þetta var ekki spennandi mjög lengi.
MARK!!!
Katrín Ásbjörnsdóttir
Öryggið uppmálað.Þetta var ekki spennandi mjög lengi.
62. mín
Víti!
Katrín að fá vítaspyrnu. Ég held að þetta hafi verið réttur dómur. Guðrún Jóna ekki sátt en vítið stendur.
61. mín
Barbára með frábæra fyrirgjöf en Katrín skallar yfir úr dauðafæri. Þarna átti hún að skora sitt annað mark í leiknum.
60. mín
Keflavík hefur hálftíma til að búa til leik úr þessu. Fullt af tíma.
56. mín
Gult spjald
Kristrún Ýr Holm
Pjúra gult spjald.56. mín
Melanie er ofur bjartsýn eftir að hún skoraði. Tekur hér skot af 60 metrun en drífur ekki að marki.
55. mín
Keflavík minnkar muninn

54. mín
Darraðadans inn á teignum. Susanna á skot sem Blikar komast fyrir en boltinn dettur fyrir Melanie sem klárar færið vel.
Erum við kannski að fá leik hérna?
HEYRÐU!!!
Melanie Claire Rendeiro (stoðsending: Susanna Joy Friedrichs)
Keflavík að minnka muninn hérna.Darraðadans inn á teignum. Susanna á skot sem Blikar komast fyrir en boltinn dettur fyrir Melanie sem klárar færið vel.
Erum við kannski að fá leik hérna?
52. mín
InnKamilla Huld Jónsdóttir
ÚtMarín Rún Guðmundsdóttir
52. mín
Marín gat staðið upp sjálfog er að labba meðfram hlaupabrautinni ásamt sjúkraþjálfara. Það eru góðar fréttir.
49. mín
Marín Rún fær höfuðhögg og liggur eftir. Lítur alls ekki vel út. Sýnist fólk á hliðarlínunni vera að hringja á sjúkrabíl.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn
46. mín
InnMargrét Lea Gísladóttir
ÚtAndrea Rut Bjarnadóttir
45. mín
Hálfleikur
Það er kominn hálfleikur á Kópavogsvelli.
45. mín
Hrafnhildur Ása að komast í gott færi en boltinn fer í höndina á henni áður en hún tekur skotið.
45. mín
Tveimur mínútum bætt við
45. mín
Hrafnhildur Ása fer býsna illa með Anítu Lind en setur boltann í hliðarnetið úr þröngu færi. Fór fram hjá Anítu bara eins og að drekka vatn.
43. mín
Blikar hafa fengið níu hornspyrnur í fyrri hálfleik og skorað úr tveimur þeirra. Geri aðrir betur!
42. mín
Írena með virkilega góða spyrnu en Vera nær að kýla boltann frá.
42. mín
Hrafnhildur Ása með skot eftir hornspyrnu. Og jú, þið giskuðuð á það, önnur hornspyrna.
41. mín
Írena tekur núna hornspyrnu hinum megin. Guð blessi Keflavík því þessar spyrnur hafa verið frábærar.
41. mín
Írena með stórhættulega fyrirgjöf á fjærstöngina en Katrín rétt missir af boltanum.
40. mín
Andrea Rut með skot sem fer af varnarmanni fram hjá. Enn ein hornspyrnan sem Blikar fá.
38. mín
Gult spjald
Susanna Joy Friedrichs
37. mín
Katrín í fínni stöðu á teignum en hittir boltann ekki nægilega vel. Fer af varnarmanni og fram hjá. Kemur svo ekkert út úr hornspyrnunni.
36. mín
Miðað við þessar fyrstu 36 mínútur þá mætti halda að þessi lið væru ekki að spila í sömu deild. Mikill gæðamunur.
35. mín
Írena með fína skottilraun en Vera Varis grípur boltann þægilega.
30. mín
Það er áhugavert að bæði lið eru bara með sex á bekknum.
30. mín
InnAnita Bergrán Eyjólfsdóttir
ÚtCaroline Mc Cue Van Slambrouck
Meiðsli.
29. mín
Þessar hornspyrnur frá Írenu eru allar stórhættulegar. Frábærar spyrnur.
29. mín
Hrafnhildur Ása komin í flotta stöðu eftir fína sókn Breiðabliks en Aníta Lind verst þessu vel.
28. mín
Þetta er ekki mjög spennandi fótboltaleikur en það er allavega sól og blíða. Gleðilegt sumar!
23. mín
Það er nú ekkert sérlega skemmtilegt fyrir hlutlausa að þessi leikur sé bara búinn eftir 17 mínútur. Maður er ekki að sjá Keflavík koma til baka úr þessu, því miður.
19. mín
Ágætis sókn hjá Keflavík. Boltinn fyrir og þar er Sigurbjörg Diljá lúrandi á fjærstönginni, en hún nær ekki til boltans. Fer í gegnum pakkann.
19. mín
Þetta Blikalið er ógnvænlegt.
18. mín
Barbára gerði þriðja mark Blika

17. mín
Þessar hornspyrnur frá Írenu eru búnar að vera stórhættulegar. Núna skorar Barbára eftir eina slíka. Mætt á fjær og stangar boltann inn.
MARK!!!!!
Barbára Sól Gísladóttir (stoðsending: Írena Héðinsdóttir Gonzalez)
Einföld uppskrift: Hornspyrna á fjær og mark.Þessar hornspyrnur frá Írenu eru búnar að vera stórhættulegar. Núna skorar Barbára eftir eina slíka. Mætt á fjær og stangar boltann inn.
15. mín
Sigurbjörg Diljá fékk högg á hnéð. Leit ekki vel út til að byrja með en hún er staðin upp og ætlar að halda leik áfram sýnist mér.
13. mín
Írena með skemmtilega útfærða hornspyrnu. Leggur hann út í teiginn á Andreu en hún hittir boltann ekki nægilega vel.
12. mín
Ekki mikið gott að frétta hjá Keflavík í byrjun leiks, það er óhætt að segja það.
12. mín
Svona er Keflavík að stilla upp

11. mín
Anna Nurmi gerði annað mark Breiðabliks

10. mín
Írena með hornspyrnuna fyrir markið sem fer beint í pakkann fyrir framan Veru. Hún er aðkringd og nær ekki að komast í boltann almennilega. Boltinn dettur fyrir Katrínu sem á skot í varnarmann og þaðan berst hann til Önnu Nurmi sem skorar.
Mikill darraðadans sem skapar annað mark Blika.
MARK!!!!!
Anna Nurmi (stoðsending: Katrín Ásbjörnsdóttir)
Blikar tvöfalda hér forystuna sína!Írena með hornspyrnuna fyrir markið sem fer beint í pakkann fyrir framan Veru. Hún er aðkringd og nær ekki að komast í boltann almennilega. Boltinn dettur fyrir Katrínu sem á skot í varnarmann og þaðan berst hann til Önnu Nurmi sem skorar.
Mikill darraðadans sem skapar annað mark Blika.
7. mín
Hættulegur bolti fyrir en Vera Varis kýlir frá.
5. mín
Írena með skot sem fer rétt yfir markið. Alls ekki galin tilraun.
3. mín
Katrín kom Blikum yfir

2. mín
Hennar fyrsta mark í sumar.
ÞETTA VAR EKKI LENGI GERT!
Katrín Ásbjörnsdóttir (stoðsending: Barbára Sól Gísladóttir)
Birta Georgsdóttir fær boltann inn á teignum, nær að koma honum út til hægri á Barbáru sem á flotta fyrirgjöf meðfram jörðinni á Katrínu. Hún hælar boltann í netið og klárar afskaplega vel.Hennar fyrsta mark í sumar.
2. mín
Svona eru Blikar að stilla upp

1. mín
Leikur hafinn
Þá er þessi veislan hafin!
Fyrir leik
Liðin ganga út við dúndrandi lófatak. Það er stemning í Kópavoginum.
Fyrir leik
Ein breyting á liði Keflavíkur
Keflavík gerir eina breytingu á liði sínu frá sigurleiknum gegn Víkingi á dögunum. Regina Solhaug Fiabema kemur inn í byrjunarliðið fyrir Ölmu Rós Magnúsdóttur.


Fyrir leik
Agla María ekki með
Katrín Ásbjörnsdóttir fær að byrja en hún hefur ekki spilað mikið í sumar vegna meiðsla. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir og Írena Héðinsdóttir Gonzalez fá líka að byrja. Engin Agla María Albertsdóttir með í dag.


Fyrir leik
Það er geggjað veður í Kópavoginum í kvöld. Um 13 gráður, sól og blíða. Frábært veður fyrir fótbolta. Þetta er aðeins öðruvísi en þegar maður var hér í gulri viðvörun um daginn.
Fyrir leik
Mist spáir í spilin
Öll átta-liða úrslitin verða leikin í dag. Við fengum Mist Rúnarsdóttur til að spá í leiki kvöldsins en hún spáir því að Blikar fari áfram úr þessum leik.
Breiðablik 3 - 0 Keflavík (19:15 í kvöld)
Blikar eru óstöðvandi þessa stundina og það verður engin breyting á því í bikarnum. Þetta verður nokkuð þægilegt og sannfærandi hjá Kópavogskonum og ég sé fyrir mér svipuð úrslit og þegar liðin mættust í deildinni. Olla setur sitt fyrsta mark í grænu og frumsýnir nýtt fagn. Vigdís og Hrafnhildur Ása komast líka á blað í 3-0 sigri. Blikar fá svo Val í undanúrslitum.
Breiðablik 3 - 0 Keflavík (19:15 í kvöld)
Blikar eru óstöðvandi þessa stundina og það verður engin breyting á því í bikarnum. Þetta verður nokkuð þægilegt og sannfærandi hjá Kópavogskonum og ég sé fyrir mér svipuð úrslit og þegar liðin mættust í deildinni. Olla setur sitt fyrsta mark í grænu og frumsýnir nýtt fagn. Vigdís og Hrafnhildur Ása komast líka á blað í 3-0 sigri. Blikar fá svo Val í undanúrslitum.
Fyrir leik
Gunnar Oddur dæmir leikinn
Gunnar Oddur Hafliðason er með flautuna í dag. Honum til aðstoðar eru Jovan Subic og Sigurður Þór Sveinsson. Bergrós Lilja Unudóttir er varadómari og Þórður Ingi Guðjónsson er eftirlitsmaður.


Fyrir leik
Þægilegt hjá Blikum síðast
Þessi lið mættust í 1. umferð Bestu deildarinnar fyrir nokkrum vikum síðan. Þá vann Breiðablik býsna þægilegan sigur. Vigdís Lilja Kristjánsdóttir skoraði tvö og Agla María Albertsdóttir gerði eitt. Þær hafa báðar verið frábærar í sumar.


Fyrir leik
Keflavík unnið tvo í röð
Eftir að hafa tapað fyrstu fimm deildarleikjum sínum í Bestu deildinni þá hefur Keflavík núna unnið tvo leiki í röð. Þær unnu 1-0 sigur á Þrótti og tóku svo Víkinga á útivelli í síðustu umferð, 0-1. Tveir sterkir sigrar í röð og spurning hvort þær nái í þann þriðja í kvöld.


Fyrir leik
Breiðablik verið óstöðvandi
Breiðablik hefur unnið alla sína leiki í sumar. Þær eru með fullt hús stiga á toppnum í Bestu deildinni. Nik Chamberlain og hans þjálfarateymi hefur komið afar vel inn í hlutina í Kópavoginum. Breiðablik komst líklega næst því að tapa í síðustu umferð í bikarnum gegn Stjörnunni. Meira um þann leik hér að ofan.


Fyrir leik
Góða kvöldið!
Og verið velkomnir á Kópavogsvöll kæru lesendur. Hér fer fram leikur Breiðabliks og Keflavíkur í átta-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna. Flautað verður til leiks klukkan 19:15.






