Fotbolti.net
Sölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Lengjudeild kvenna
ÍR-völlur
Það er bongó í 109!
ÍR
ÍR
0 - 4
Grindavík
Grindavík
0 - 120' Tinna Hrönn Einarsdóttir0 - 243' Tinna Hrönn Einarsdóttir0 - 353' Sigríður Emma F. Jónsdóttir0 - 456' Júlía Ruth Thasaphong
Dómari: Sindri Snær A van Kasteren
Áhorfendur: 103
Leik lokið!
Þá er þessum leik hér með lokið. Þakka samfylgdina í dag.

Viðtöl og skýrsla mæta inn á síðuna innan skamms.

Þangað til næst, takk fyrir mig.
90. mín
+2 í uppbót
ÍR
85. mín
InnFreyja Ósk Axelsdóttir
ÚtErin Amy Longsden
ÍR
85. mín
InnKristrún Blöndal
ÚtMichelle Elizabeth O'Driscoll
Grindavík
83. mín
InnBirta Eiríksdóttir
ÚtSigríður Emma F. Jónsdóttir
Grindavík
83. mín
InnÞuríður Ásta Guðmundsdóttir
ÚtBríet Rose Raysdóttir
Grindavík
83. mín
InnRakel Rós Unnarsdóttir
ÚtDröfn Einarsdóttir
83. mín
Mjög rólegt hérna í Breiðholtinu
Grindavík
80. mín
InnRagnheiður Tinna Hjaltalín
ÚtJúlía Ruth Thasaphong
72. mín
Grindvíkingar fá hornspyrnu sem Lovísa hreinsar frá.
ÍR
68. mín
InnDagný Rut Imsland
ÚtLinda Eshun
ÍR
68. mín
InnSara Rós Sveinsdóttir
ÚtÍsabella Eiríksd. Hjaltested
Grindavík
65. mín
InnJúlía Rán Bjarnadóttir
ÚtMist Smáradóttir
ÍR
60. mín
InnBerta Sóley Sigtryggsdóttir
ÚtÍsabella Eiríksd. Hjaltested
59. mín
Esther ver eina á eina!
Klaufagangur í vörn ÍR og skyndilega er Dröfn Einars komin ein í gegn á Esther. Hún tekur skotið en Esther er þá mætt úr markinu og gerir glæsilega vel að fverja frá henni.
Grindavík
56. mín
SKALLI OG INN!

Júlía Ruth Thasaphong

Ég sé ekki hver átti hornið en það var bísna gott. Beint á ennið á Júlíu sem skallar hann inn. Frábærlega klárað hjá Júlíu sem er að byrja seinni hálfleikinn af krafti.

Alls ekki varnarleikur upp á marga fiska hjá heimakonum.
Grindavík
53. mín
Gestirnir að ganga frá þessu!

Sigríður Emma F. Jónsdóttir (stoðsending: Júlía Ruth Thasaphong )

Júlia með geggjaðan sprett úti hægra meginn og kemst inn á teginn. Hún leikur framhjá einum varnarmanni og rennir boltanum fyrir markið á Sigríði sem gat ekki annað en skorað með allt markið fyrir framan sig.

Grindavík 3-0 ÍR
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
Það eru heimakonurnar í ÍR sem byrja með boltann í þeim seinni og sækja í átt að ÍR-heimilinu en Grindvíkingarnir sækja í átt að Reykjanesbrautinni.
45. mín
Hálfleikur
Þá er Sindri, sem hefur dæmt leikinn mjög vel, búinn að flauta til hálfleiks.

Tökum okkur korterspásu og mætum svo til baka að vörmu spori.
Grindavík
43. mín
Beint úr horni!

Tinna Hrönn Einarsdóttir

Ég sá ekki betur en það að hún setti hann bara beint úr horni!
39. mín
Ekkert að frétta úr Breiðholtinu. Hefur aðeins róast eftir tíðindamiklar upphafsmínútur.
32. mín
Grindavík fær horn en ÍR-ingar standa vaktina vel
24. mín
Sigríður tekur spyrnuna inn á teiginn sem fer til Michelle. Hún er í erfiðri stöðu og nær skotinu í fyrsta sem var alls ekki gott.
24. mín
ÍR að fá horn!
Mia með skot á nær sem Katelyn ver glæsilega í horn!
Grindavík
20. mín
GESTIRNIR KOMNIR YFIR!

Tinna Hrönn Einarsdóttir

Ég leit upp og boltinn lá í netinu!

Tinna fær boltann við D-bogann og lætur vaða. Boltinn endar í netinu en það má alveg setja spurningarmerki við varnarleik ÍR-liðsins þarna. Svona skot á hún ekki að geta fengið á þessum stað.

Markið lá í loftinu!
19. mín
ÍR-ingar verjast horninu vel og hreinsa og uppskera markspyrnu
18. mín
Grindavík að fá hornspyrnu!
Anja gerir vel í vörn ÍR og hreinsar í horn í hættulegri stöðu Grindvíkinga
14. mín
Hittir ekki boltann!
Ása Björg kemur með geggjaða sendingu inn á teiginn á Tinnu Hrönn sem er komin ein gegn Esther í markinu en hún hreinlega hittir ekki boltann þegar hún er að fara að skjóta.

Óheppin þarna hún Tinna en ÍR-ingar heppnir!
6. mín
Dauðafæri!
Ása keyrir upp völlinn og kemur með fyrirgjöf á að mér sýnist Mist sem er með markið galopið fyrir framan sig en rennur og fær boltann í höndina.

Dauðafæri hjá Grindavík!
3. mín
ÍR-ingar ógna
ÍR-liðið byrjar af krafti. Sigríður fær boltann frá Önju og kemur boltanum í gegn á Michelle sem er komin ein í gegn á Katelyn. En áður en Katelyn ver glæsilega frá Michelle var flaggið farið á loft hjá AD.
1. mín
Leikur hafinn
Það eru gestirnir í Grindavík sem hefja hér leik og sækja í átt að ÍR heimilinu.
Fyrir leik
Þriðja liðið
Sindri Snær A van Kasteren sér um flautukonsertið í suður Mjóddinni í kvöld. Ásgeir Sigurðsson og Heimir Árni Erlendsson verða honum Sindra til halds og trausts.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Versta sóknin gegn verstu vörninni
Í kvöld er versta sóknarlið deildarinnar í Grindavík að fara að mæta versta varnarliði deildarinnar í ÍR. Grindvíkingar hafa séð liðið sitt skora aðeins þrjú mörk í fyrstu fimm leikjum tímabilsins á meðan ÍR-ingar hafa þurft að sjá andstæðingin skora 16 sinnum í fyrstu fimm leikjunum. Þess má einnig geta að ÍR-liðið hefur ekki skorað í seinustu tveimur deildarleikjunum.

Fáum við 0-0 leik í kvöld eða 5-5 leik? Ég ætla að gerast svo djarfur að spá 1-1 jafntefli. Það er mín spá en innst inni held ég að annað liðið vinni 2-1 er bara ekki alveg viss hvoru meginn markið dettur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Vörnin lekur
Breiðhyltingar fara af stað með einn sigur og fjögur töp í upphafi móts. Eftir skell í fyrsta leik gegn Fram sigruðu ÍR-ingarnir ÍBV 2-0 í frábærum leik. En eftir það hafa þær tapað gegn Selfossi, Gróttu og núna seinast gegn ÍA. Eftir fimm leiki er ÍR-liðið með verstu vörnina í deildinni eða búnar að fá á sig 16 mörk.

Þær sýndu það vissulega í fyrra og í vetur að þær eiga heima í þessari deild með góðum frammistöðum og úrslitum. En í vetur unnu þær einmitt Grindavíkurliðið 3-0 í Breiðholtinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Bjóða okkur upp á leiðinlega leiki
Það verður seint sagt að Grindvíkingar hafa verið að gefa okkur einhverjar flugeldasýningar í upphafi móts. En eftir fimm leiki eru þær með markatöluna 3-3 og sjö stig. Grindavíkurliðið hefur unnið HK og Gróttu en gert jafntefli við ÍBV í upphafi móts. Tapað þá gegn Aftureldingu og Skagakonum.

Allir leikir liðsins til þessa hafa farið 1-0 nema gegn ÍBV sem fór 1-1. Vægast sagt áhugavert að sjá hvort það opnast einhverjar flóðgáttir í Suður Mjóddinni í kvöld.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Fyrir leik
Stórslagur í Lengjunni!
Heil og sæl ágætu lesendur og veriði hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik ÍR og Grindavíkur í Lengjudeildinni. Leikurinn fer fram í Breiðholtinu og byrjar á slaginu 19:15.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.