Leik lokið!
Leik lokið með öruggum þriggja marka sigri Breiðabliks. Eftir jafnræði í fyrri hálfleik gengu Blikar frá þessu á upphafsmínutum seinni hálfleiks.
90. mín
FJórum mínútum bætt við.
88. mín
InnLea Björt Kristjánsdóttir
ÚtMaría Eva Eyjólfsdóttir
88. mín
InnBrynja Rán Knudsen
ÚtFreyja Karín Þorvarðardóttir
86. mín
Glæsilegur bolti inn á teiginn frá Caroline Murray á Freyju sem skallar rétt framhjá.
84. mín
InnÍrena Héðinsdóttir Gonzalez
ÚtAndrea Rut Bjarnadóttir
84. mín
Gult spjald
Andrea Rut Bjarnadóttir
Fyrir brot á miðjum vellinum.82. mín
Hrafnhildur Ása hér með fína takta og lætur svo vaða en Mollee ver þetta.
81. mín
InnHildur Laila Hákonardóttir
ÚtLeah Maryann Pais
77. mín
Leah Maryann reynir hér skot sem fer framhjá.
74. mín
InnBirta Georgsdóttir
ÚtÓlöf Sigríður Kristinsdóttir
Þreföld skipting hjá Blikum.
74. mín
InnÁslaug Munda Gunnlaugsdóttir
ÚtAnna Nurmi
Þreföld skipting hjá Blikum.
74. mín
InnKatrín Ásbjörnsdóttir
ÚtVigdís Lilja Kristjánsdóttir
Þreföld skipting hjá Blikum.
67. mín
Gult spjald
Freyja Karín Þorvarðardóttir
Sparkar boltanum eftir að flautað var.65. mín
Gult spjald
Heiða Ragney Viðarsdóttir
65. mín
InnHrafnhildur Ása Halldórsdóttir
ÚtKaritas Tómasdóttir
63. mín
Klaufagangur í öftustu línu hjá Blikum og Freyja nálægt því að minnka muninn eftir að Ásta kemur með glæfralegan bolta til baka á Telmu en Telma bjargar því sem bjarga þarf.
59. mín
Blikar eru að ganga frá þeim!
Karitas Tómasdóttir (stoðsending: Ásta Eir Árnadóttir)
Ásta Eir með langan bolta í gegn sem Þróttarar ná ekki að deala við. Mollee kemur langt út og Jelena lítur illa út í þessu marki aftur, Karitas skorar svo bara í autt markið.57. mín
Beint úr horni!
Agla María Albertsdóttir
Agla María tekur hornið og það svífur yfir alla nema Jelenu sem fær hann í andlitið og inn á marklínunni. Skráist held ég á Öglu, höfum það þannig í bili.56. mín
Klafs í teignum hjá gestunum og boltinn ekki langt frá því að enda inni en horn er niðurstaðan.
54. mín
InnSigríður Theód. Guðmundsdóttir
ÚtKristrún Rut Antonsdóttir
Þróttarar reyna að bregðast við markinu.
50. mín
Blikar leiða!
Andrea Rut Bjarnadóttir (stoðsending: Agla María Albertsdóttir )
Agla María kemur með boltann inn á teiginn á Andreu sem skýtur í Sæunni og boltinn lekur inn á mitt markið, Mollee fipaðist við það að boltinn fór í Sæunni og gat ekki neitt gert í þessu.49. mín
Dauðafæri!
Frábært spil hjá Blikum og Agla er í dauðafæri en María Eva ver á línu!
47. mín
Olla hér með fína fyrirgjöf fyrir á Karitas sem skallar rétt framhjá.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Blikakonur hefja leik.
45. mín
Hálfleikur
Nokkuð skemmtilegur fyrri hálfleikur að baki. Það eru mörk í þessum leik ég finn það á mér.
45. mín
Tveimur mínutum bætt við hér.
39. mín
Markið liggur eiginlega bara í loftinu hér!
Í þetta sinn er það Freyja sem er í góðu færi og skallar rétt framhjá.
Í þetta sinn er það Freyja sem er í góðu færi og skallar rétt framhjá.
37. mín
Mjög gott færi!
Leah kemur með hárnákvæma fyrirgjöf á Kristrúnu sem er ein og óvölduð á teignum, tekur hann í fyrsta beint á Telmu sem ver og heldur boltanum.
28. mín
Þróttur fær hér horn en ekkert verður úr því.
22. mín
Telma í basli!
Telma Ívars sendir boltann beint á Leah Maryann sem nær ekki tökum á boltanum, boltinn berst til Kristrúnar sem lætur vaða og boltinn fer í varnarmann og í hendurnar á Telmu, mátti ekki miklu muna.
19. mín
Glæsilega gert!
Olla fær boltann rétt fyrir utan teig og tekur mjög svo snyrtilegan snúning og keyrir í átt að markinu og nær alla leið og kemur sér í frabært færi en skotið að endingu rétt framhjá.
15. mín
Fínt spilað hjá Þrótti, endar svo með fyrirgjöf frá Maríu sem er víðs fjarri. Þróttarar að koma sér vel inn í leikinn.
12. mín
Þróttur fær hér sit fyrsta horn í dag og spila stutt, endar að lokum með skoti frá Freyju sem er hátt yfir.
10. mín
Aðeins róast hérna eftir kröftuga byrjun Blikakvenna.
5. mín
Dauðafæri!
Hræðileg mistök hjá Mollee, sendir boltann beint á Andreu sem er þá bara ein gegn henni og setur boltann framhjá henni en Sóley María ver meistaralega á línunni.
Blikar mun betri hér í upphafi leiks
Blikar mun betri hér í upphafi leiks
4. mín
Hættulegur bolti fyrir hjá Barbáru á Öglu sem skallar í varnarmann og aftur fyrir.
1. mín
Leikur hafinn
Þróttarar hefja leik hér
Þróttur sækir í átt að Fífunni og Blikar í átt að Sporthúsinu.
Fyrir leik
Breiðablik
Það er ekki sömu sögu að segja af Blikum þó, undir stjórn Nik Chamberlain fyrrverandi þjálfara Þróttar hefur liðið unnið hvern einasta leik og sitja því efstar með fullt hús stiga. Glæsileg byrjun á tíma Nik hjá Blikum.

Fyrir leik
Þróttur
Stelpurnar hans Óla Kristjáns hafa valdið miklum vonbrigðum það sem af er sumri. Þær sitja í neðsta sæti með einungis fjögur stig. Fyrsti sigurinn kom þó í seinasta leik gegn Tindastól og þær munu reyna allt sem í valdi þeirra stendur til að hamra járnið á meðan það er heitt og tengja saman sigra hér í dag.

Fyrir leik
Velkominn á Kópavogsvöll!
Hér fer fram bein textalýsing frá leik Breiðabliks og Þróttar í Bestu deild kvenna.





