Fotbolti.net
@utanvallarSævar Þór Sveinsson
Sævar Þór Sveinsson
Leiknir R.
Leiknir R.
Lengjudeild karla
Domusnovavöllurinn
3 - 1
Þróttur R.
Þróttur R.
Jón Hrafn Barkarson 7'1 - 0Shkelzen Veseli 14'2 - 02 - 187' Jorgen PettersenOmar Sowe 93'3 - 1
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson

SKÝRSLAN: Leiknir hirti stigin þrjú í kvöldsólinni

Hvað réði úrslitum?

Mörkin tvö sem Leiknir skoraði á fyrsta korteri réð úrslitunum. Aldrei auðvelt að fá á sig tvö mörk svona snemma leiks. Það leit hins vegar út fyrir að við myndum mögulega fá smá spennu undir lokin þegar Jorgen Pettersen minnkaði muninn en þá mætti Omar nokkur Sowe og kláraði leikinn.

Bestu leikmenn

1. Omar Sowe

Skorar eitt mark og var með eina stoðsendingu ásamt því að vera með eina hokkí stoðsendingu þegar Jón Hrafn skoraði úr frákasti eftir skot hjá Omar.

2. Aron Einarsson

Fannst Aron vera eins og Duracell kanína á miðjunni, pressaði stíft og var öflugur miðsvæðis.

Atvikið

Markið hjá Omar Sowe er atvik leiksins. Skömmu áður minnkaði Jorgen muninn fyrir Þrótt og ég átti von á því að Þróttur myndi þjarma verulega að Leikni síðustu mínúturnar. Þá kemur auðvitað Omar Sowe og gerir út um leikinn.

Hvað þýða úrslitin?

Leiknir fer úr neðsta sæti deildarinnar upp í 10. sæti með 9 stig. Þróttur dettur hins vegar niður í neðsta sætið með 6 stig.

Vondur dagur

Varnarleikur Þróttar í upphafi fyrri hálfleiks. Mjög einföld mörk sem Leiknir skorar og varnarleikurinn hefði getað verið betri í þessum mörkum.

Dómarinn - 8

Flottur leikur hjá Arnari og hans teymi. Leikurinn fékk að fljóta vel og mér fannst það heppnast vel í kvöld.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.