FH
1
1
KA
Úlfur Ágúst Björnsson '27 1-0
1-1 Hallgrímur Mar Steingrímsson '80 , víti
08.07.2024  -  19:15
Kaplakrikavöllur
Besta-deild karla
Aðstæður: Skýjað, logn og þægilegur loft hiti. Fullkomar aðstæður, svo er grasið rennislétt
Dómari: Arnar Þór Stefánsson
Áhorfendur: 637
Maður leiksins: Björn Daníel Sverrisson (FH)
Byrjunarlið:
1. Sindri Kristinn Ólafsson (m)
4. Ólafur Guðmundsson (f)
7. Kjartan Kári Halldórsson ('62)
9. Sigurður Bjartur Hallsson ('83)
10. Björn Daníel Sverrisson (f)
21. Böðvar Böðvarsson
22. Ísak Óli Ólafsson (f)
22. Ástbjörn Þórðarson
29. Vuk Oskar Dimitrijevic ('70)
33. Úlfur Ágúst Björnsson
34. Logi Hrafn Róbertsson
- Meðalaldur 28 ár

Varamenn:
24. Daði Freyr Arnarsson (m)
5. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson ('70)
6. Grétar Snær Gunnarsson ('83)
16. Bjarni Guðjón Brynjólfsson
25. Dusan Brkovic
27. Jóhann Ægir Arnarsson
90. Arnór Borg Guðjohnsen ('62)
- Meðalaldur 25 ár

Liðsstjórn:
Heimir Guðjónsson (Þ)
Benjamin Gordon Mackenzie (Styrktarþj.)
Guðmundur Jón Viggósson (Liðsstj.)
Kristján Finnbogi Finnbogason
Kjartan Henry Finnbogason
Andres Nieto Palma

Gul spjöld:
Ólafur Guðmundsson ('19)
Vuk Oskar Dimitrijevic ('29)
Heimir Guðjónsson ('45)
Kjartan Kári Halldórsson ('58)
Logi Hrafn Róbertsson ('66)

Rauð spjöld:
Skýrslan
@haraldur_orn Haraldur Örn Haraldsson
Skýrslan: Sanngjarnt jafntefli í hörkuleik
Hvað réði úrslitum?
Þetta var jafn leikur en bæði lið áttu í ákveðnum vandræðum með að skapa opin marktækifæri. Mörkin koma bæði bara upp úr mistökum, KA menn dekka ekki nógu vel úr horni sem er mistök, dómararnir dæma markið ekki af sem var mistök og Sindri Kristinn gefur KA víti seint í leiknum sem er mistök.
Bestu leikmenn
1. Björn Daníel Sverrisson (FH)
Björn var ekki beint að koma sér í mikið af færum en það er alltaf unun að horfa á hann stýra miðjunni. Gerði það mjög vel í dag
2. Sveinn Margeir Hauksson (KA)
Sveinn var hættulegasti leikmaður KA í dag. Hann átti nokkur mjög skemmtileg hlaup þar sem hann fór illa með varnarmenn FH
Atvikið
Vítaspyrnan sem KA fær. Hallgrímur Mar er sloppinn einn gegn markmanni. Sindri markvörður FH kemur þá vel út á móti honum og Hallgrímur er mjög klókur. Hann lyftir boltanum bara yfir Sindra, fær snertinguna, fer niður og fær vítið sem jafnar leikinn.
Hvað þýða úrslitin?
KA menn eru enn í 10. sæti en eru komnir stigi frá fallsæti þar sem Vestri sitja sætinu fyrir neðan þá. KA fer einmitt vestur næst og mætir þeim, sem verður áhugaverður leikur. FH-ingar eru enn í 5. sæti, nú með 21 stig, tveimur stigum á eftir ÍA í 4. sæti.
Vondur dagur
Sindri Kristinn Ólafsson markvörður FH hefur verið að stíga upp nýlega og verið drjúgur í að bæta við stigum í Hafnarfjörðinn. Í dag kostaði hann hinsvegar liðið 2 stig þegar hann gefur KA vítaspyrnu og ég þykist vita að hann er sjálfur ósáttastur við sjálfan sig.
Dómarinn - 5
Arnar Þór er ekki með marga leiki í efstu deild og það sást kannski aðeins í dag. Fyrsta markið á náttúrulega ekki að standa og svo var full mikið af litlum hlutum sem hefðu mátt fara betur. Línan var svolítið að sveiflast til og frá, og svo fóru líkast til full mörg spjöld á loft. Við viljum hinsvegar fleiri dómara sem geta tekið leiki í efstu deild og vonandi var þetta bara off dagur hjá honum og hans teymi.
Byrjunarlið:
3. Kári Gautason
4. Rodrigo Gomes Mateo ('85)
5. Ívar Örn Árnason (f)
7. Daníel Hafsteinsson
9. Viðar Örn Kjartansson ('59)
9. Sveinn Margeir Hauksson
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
13. Steinþór Már Auðunsson
22. Hrannar Björn Steingrímsson ('74)
28. Hans Viktor Guðmundsson (f)
77. Bjarni Aðalsteinsson
- Meðalaldur 31 ár

Varamenn:
12. Kristijan Jajalo (m)
8. Harley Willard ('85)
11. Ásgeir Sigurgeirsson ('59)
14. Andri Fannar Stefánsson
26. Ingimar Torbjörnsson Stöle
29. Jakob Snær Árnason ('74)
44. Valdimar Logi Sævarsson
- Meðalaldur 27 ár

Liðsstjórn:
Hallgrímur Jónasson (Þ)
Petar Ivancic (Liðsstj.)
Halldór Hermann Jónsson (Sjúkraþj.)
Michael Charpentier Kjeldsen
Elmar Dan Sigþórsson
Steingrímur Örn Eiðsson

Gul spjöld:
Rodrigo Gomes Mateo ('25)
Daníel Hafsteinsson ('48)
Ásgeir Sigurgeirsson ('77)
Jakob Snær Árnason ('92)

Rauð spjöld: