Fotbolti.net
Besta deildin
Matthías Freyr Matthíasson
Matthías Freyr Matthíasson
Besta-deild karla
Lambhagavöllurinn
Strekkingsvindur og rigning
Fram
Fram
4 - 1
Valur
Valur
Már Ægisson 10'1 - 0Frederico Bello Saraiva (víti) 26'2 - 0Kennie Knak Chopart 32'3 - 03 - 139' Patrick PedersenFrederico Bello Saraiva 72'4 - 1
Dómari: Elías Ingi Árnason
Áhorfendur: 577
Leik lokið!
Lokaskotið
Fred með skot yfir mark Vals.

Leik lokið með frekar óvæntum 4 - 1 sigri heimamanna. Viðtöl og umfjöllun innan skamms.
Fram
94. mín
Gult spjald

Markús Páll Ellertsson

90. mín
4 mín í uppbót
Fram
90. mín
InnSigfús Árni Guðmundsson
ÚtAlex Freyr Elísson
Fram
90. mín
InnMarkús Páll Ellertsson
ÚtMár Ægisson
Valur
85. mín
InnÓlafur Karl Finsen
ÚtPatrick Pedersen
Valur
85. mín
InnGísli Laxdal Unnarsson
ÚtElfar Freyr Helgason
82. mín
Ekki mikið eftir
Mér finnst eins og Valsmenn séu búnir að gefa upp möguleikann á að jafna. Enda erfitt þear þeir þurfa að skora þrjú mörk á 8 mínútum.
78. mín
577 áhorfendur á leiknum í dag
Fram
74. mín
InnFreyr Sigurðsson
ÚtMagnús Þórðarson
Fram
72. mín
MAAAAAARRRRKKKKKK!!!!!

Frederico Bello Saraiva (stoðsending: Már Ægisson )

Fram er að klára þetta!

Geggjuð sókn Fram sem byrjaði á því að Kennie vann boltann í vítateig Fram, kom honum á Má Ægis sem skaust upp völlinn, lék á einn, sendi á Fred sem lék á varnamann Vals og setti boltann laglega og auðveldlega í fjærhornið.
70. mín
Tryggvi Hrafn!
Með skot utan af velli, fast skot en boltinn siglir framhjá markinu.
Fram
65. mín
InnAdam Örn Arnarson
ÚtGuðmundur Magnússon
64. mín
Ólafur Íshólm heldur sínum mönnum á lífi
Jakob Franz með skot að marki Fram og enn og aftur er Ólafur Íshólm réttur maður á réttum stað.
Valur
63. mín
InnSigurður Egill Lárusson
ÚtHörður Ingi Gunnarsson
62. mín
Fram ekki með skot að marki í seinni hálfleik
Það sem af er að minnsta kosti.
58. mín
Glæsileg varsla!
Gylfi með hornspyrnu, Patrick skallar í átt að marki Fram og Ólafur Íshólm skutlar sér og teygir úr sér eins og teygjukonan í The Incredibles teiknimyndunum og ver boltann stórkostlega.
57. mín
Það liggur mark í loftinu
Það er kominn mikill og stækur markaþefur í gang við vítateig Fram. Þeir eiga engin svör við leik Valsmanna sem stendur og eru í nauðvörn.
56. mín
Ólafur Íshólm!
Gylfi Sig með skot en Ólafur Íshólm vel á verði og blakaði boltanum í horn.
55. mín
Allt annað að sjá Valsmenn
Tel augljóst að Arnar Grétars hafi sagt vel valin orð við sína menn inn í klefa því það er allt annað að sjá Valsliðið.
54. mín
Gylfi með snúning!
Fær boltann inn í teig Fram, tekur léttann snúning en nær ekki valdi á boltanum.
53. mín
Gylfi með aukaspyrnu
Tók spyrnuna við D bogann eftir brotið á Tryggva en boltinn fór yfir markið.
Fram
52. mín
Gult spjald

Alex Freyr Elísson

Fær gult fyrir að ýta við Tryggva Hrafni við D bogann
50. mín
Valsmenn koma af fullum krafti
Ætla sér að bæta við marki, það er ljóst. Eru að sækja stíft á Frammara og nýta sér vindinn óspart til þess líka.
Valur
49. mín
Gult spjald

Elfar Freyr Helgason

47. mín
Boltinn í gegnum teig Fram
Birkir Már með sendingu í gegnum teig Fram en enginn samherji hans kemur grimmur á boltann og boltinn siglir bara í gegnum allan teiginn. Stuttu seinna fer boltinn í stöng Fram en ég sá ekki almennilega hvað gerðist þar. Sá að Tryggvi Hrafn átti það sem mér sýndist fyrirgjöf en vindurinn hjálpaði væntanlega til og boltinn fór í stöngina.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Arnar Grétarsson augljóslega ekki sáttur og gerir tvær breytingar í hléinu.
Valur
45. mín
InnLúkas Logi Heimisson
ÚtBjarni Mark Antonsson
Valur
45. mín
InnJónatan Ingi Jónsson
ÚtGuðmundur Andri Tryggvason
45. mín
Hálfleikur
Fáum okkur kaffi og með´ðí
Frammarar miklu meira clinical en Valsmenn sem eiga samt spretti öðru hverju. En verður áhugavert í seinni hálfleik þegar Valsmenn fá vindinn í bakið, hvernig þeir spila úr þeirri stöðu og hvort Frammarar nái að verjast því.
45. mín
1 mínútu bætt við
Ekki miklu bætt við þennan fyrir hálfleik
45. mín
Skot yfir markið!
Magnús Þórðasson fær boltann frá Gumma, er við vítateigslínu Vals og lætur vaða en boltinn yfir markið.
Valur
39. mín
MAAAAARRRKKKK!

Patrick Pedersen (stoðsending: Kristinn Freyr Sigurðsson )

Aldeilis fjörugur leikur í rokinu og rigningunni!

Patrick Pedersen, hver annar, skoraði eftir góða sendingu frá Kidda Frey.

Ná Valsmenn að koma til baka?
38. mín
Rúnar Kristins
Og stúkan hristist!

Stuðningsfólk Fram syngur og trallar og eru búnir að gera það mest allan leikinn. Heyrist lítið frá stuðningsfólki Vals
Valur
36. mín
Gult spjald

Kristinn Freyr Sigurðsson

Fram
32. mín
MAAAAAARRRRRKKKKKKKK!!!

Kennie Knak Chopart (stoðsending: Alex Freyr Elísson )

ÉG SKAL SEGJA YKKUR ÞAÐ!

Kennie gjörsamlega veður upp völlinn eftir að hafa fengið boltann frá Alex Frey á miðjum vallarhelming Vals, fékk að vaða óáreittur upp að vítateigslínu og tók fast skot í fjærhornið.

Skammarlegur varnarleikur Vals en virkilega vel gert hjá Kennie
Fram
30. mín
Gult spjald

Magnús Þórðarson

29. mín
Valur flýgur ekki vængjum þöndum
Að minnsta kosti ekki eins og staðan er. Fram er einfaldega búnir að vera töluvert betri og skeinuhættari. Valsmenn eru gríðarlega opnir varnalega og klaufagangur einkennist sóknarleikinn.
27. mín
Aðdragandinn
Frammarar voru búnir að vera í stórhættulegri sókn sem endaði með skoti að marki Vals, Már Ægisson þar á ferð en var tekinn niður af Bjarna Mark og vítaspyrna réttilega dæmd.
Fram
26. mín
Mark úr víti!

Frederico Bello Saraiva

TVÖ - NÚLL!!!!

Gríðarlega öruggt skot hjá Fred, fast, niðri í hægra hornið. Fredrick í réttu horni en kemst ekki í boltann.
25. mín
FRAM FÆR VÍTASPYRNU!
22. mín
Fram með vindinn í bakið
Bókstaflega!

Það líka sýnir sig því þeir eru mjög skeinuhættir. Valsmenn voru við það að sleppa einir inn fyrir vörn Fram, Tryggvi Hrafn þar á ferð en var rangstæður.
19. mín
Allskonar vandræðangur
Varnarleikur Vals er ekki upp á marga fiska það sem af er. Fram eru að ná að opna þá ítrekað og komast í ákjósanlegar stöður.
11. mín
Fram byrjað betur
Ég var að byrja að skrifa smá texta um að Fram hefði byrjað leikinn betur en Valsmenn væru að vinna sig inn í hann því stuttu fyrir mark Fram áttu Valsmenn góða tilraun, þá bestu þeirra hingað til er Guðmundur Andri var kominn ansi nálægt endalínu Fram inn í teig þeirra, nær að koma boltanum fyrir markið en Ólafur Íshólm greip inn í og kom í veg fyrir að Patrick stæði fyrir framan nær opið mark með boltann í fótum sér.
Fram
10. mín
MAAAAAARRRRRKKKKK

Már Ægisson

Jahérna hér!

Már Ægisson við D bogann, tekur skot og boltinn fer af Herði Inga og yfir Fredrik í markinu og staðan orðin 1 -0
8. mín
Strekkingsvindur og rigning
Það er auðséð að það styttist í jólin þótt það sé einungis lok Júlí. Það er haustveður í Úlfársárdal, strekkingsvindur og rigning. Gaman að þessu.....
5. mín
Ohhhhh!
Alex Freyr fær háan bolta inn í teig Vals en kiksar hann einhvernveginn fyrir framan markið og boltinn yfir það.
2. mín
Bakfallsspyrna
Fred með bakfallspyrnu eftir fyrirgjöf frá Gumma Magg inn í teig Vals en boltinn framhjá markinu.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er byrjað og heimamenn byrja með boltann og spila í átt að Grafarvoginum.
Fyrir leik
Hlynur Atli heiðraður
Hlynur Atli Magnússon, fyrrum leikmaður Fram er heiðraður hér fyrir leik en hann lagði skónna á hilluna fyrir skömmu.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir



Fyrir leik
Dómaratríóið!
Elías Ingi Árnason er dómari leiksins
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir


Honum til aðstoðar eru þeir Gylfi Már Sigurðsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


og Bergur Daði Ágústsson
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Fyrir leik
Tvær breytingar hjá báðum liðum
Rúnar Kristinsson gerir tvær breytingar á liði sínu. Inn koma þeir Magnús Þórðarson og Alex Freyr Hilmarsson. Tryggvi Snær Geirsson er ekki í hóp og Jannik Holmsgaard ekki heldur en þeir voru í byrjunarliðinu á móti KR.

Arnar Grétarsson gerir einnig tvær breytingar frá leiknum á móti St. Mirren. Birkir Már Sævarsson og Guðmundur Andri Tryggvason koma inn í liðið og Jóntan Ingi og Sigurður Egill setjast á bekkinn. Áhugavert í ljósi þess að Guðmundur Andri hefur verið orðaður við brottför í þessum félagaskiptaglugga.
Fyrir leik
Síðustu leikir
Fram vann góðan sigur á KR fyrir 17 dögum eða þann 11. júlí síðastliðinn með marki frá fyrirliðanum Guðmundi Magnússyni. Leikurinn þar á undan var 30. júní gegn Víkingum þar sem þeir töpuðu 2 - 1.

Valsmenn voru að spila við St.Mirren á síðastliðinn Fimmtudag og gerðu þeir 0 - 0 jafntefli. Síðasti deildarleikur þeirra fór fram 6. júlí þar sem þeir unnu stórgóðan sigur á Fylki 4 - 0.
Fyrir leik
Einungis annar leikur Fram í Júlí
Það er vegna þess að fjögur Íslensk lið hafa verið að taka þátt í Evrópukeppnum og hefur það haft áhrif á spiltíma Fram í sumar eða eins og Rúnar Kristinsson sagði í viðtali við Fótbolta.net fyrr í vikunni.
Fyrir leik
Frestaður leikur
Um er að ræða leik sem fram átti að fara síðastliðinn mánudag en þurfti að fresta vegna erfiðleika Valsmanna við að komast heim frá Albaníu eftir leik í forkeppni Sambandsdeildarinnar.

Fyrir leik
Velkomin á Lambahagavöll
Hjartanlega velkomin kæru lesendur í beina textalýsingu frá Lambhagavellinum í Úlfársárdal þar sem heimamenn í Fram taka á móti Valsmönnum í lokaleik 15. umferðar Bestu deildar karla í knattspyrnu. Leikurinn hefst kl. 19:15 og mun ég fylgja ykkur allar 90 mínúturnar plús uppbótartíma. Fylgist spennt með!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.