SKÝRSLAN: Endurkomusigur í Laugardalnum
Hvað réði úrslitum?
Karakter og baráttuvilji Þróttara skipti máli og það skein í gegn í síðari hálfleik. Þær vildu þetta meira og það varð til þess að þær fengu stigin þrjú.
Bestu leikmenn
1. María Eva Eyjólfsdóttir
Var afar lífleg á vængnum í dag. Gerði vel á fjærsvæðinu en mörk hennar breyttu leiknum
2. Vera Varis
Fékk fjögur mörk á sig í dag en var samt sú sem var oftast nefnd á nafn í gegnum textalýsingu leiksins fyrir frábærar bjarganir. Tap Keflavíkur hefði verið margfalt stærra ef Varis hefði verið slök í dag.
Atvikið
Þegar Þróttarar minnkuðu muninn í 1-2 rétt fyrir hálfleik. Það varð fyrir rest algjör vítamínsprauta fyrir heimakvennur sem komu tvíefldar til leiks í síðari hálfleik
Hvað þýða úrslitin?
Sigurinn lyftir Þrótturum upp í efri hlutan og yfir Stjörnuna í 6. sæti deildarinnar. (tímabundið, í hið minnsta)
Vondur dagur
Eva Lind Daníelsdóttir fær að þann vafasama heiður því miður. Það er alltaf vondur dagur þegar þú bæði tapar og skorar sjálfsmark í sama fótboltaleiknum.
Dómarinn - 5
Vítaspyrnan sem Keflavík fékk í síðari hálfleik var vafasöm og vítaspyrnan sem Þróttur fékk ekki í næstu sókn í kjölfarið virtust úr fjarlægð vera frekar svipuð brot en sitt hvor niðurstaðan.




