Fotbolti.net
@fotboltinetLogi Freyr Gissurarson
2. deild karla
JÁVERK-völlurinn
Gott veður og völlurinn lítur mjög vel út
Selfoss
Selfoss
2 - 1
Víkingur Ó.
Víkingur Ó.
Gonzalo Zamorano Leon (víti) 37'1 - 0Þorlákur Breki Þ. Baxter 45'2 - 02 - 155' Luis Romero Jorge
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Selfoss í draumalandi eftir sigur í toppslagnum

Hvað réði úrslitum?

Selfyssingar nýttu sín færi í fyrri hálfleiknum og náðu svo að harka út í seinni hálfleik. Víkingar óheppnir að fá ekki stig úr leiknum eftir öll færin sem þeir sköpuðu sér

Bestu leikmenn

1. Gonzalo Zamorano (Selfoss)

Skoraði og lagði upp. Gerði það sem framherji átti að gera og var mikið í boltanum

2. Nacho Gil (Selfoss)

Stjórnaði miðjunni vel en var reyndar frekar heppinn að fá að vera inn á eftir atvikið milli hans og Ivan

Atvikið

Á 85. mínútu vilja Víkingar fá víti þegar Ivan skallar boltann í hendina á Nacho af mjög stuttu færi og þeir verða báðir pirraðir og Ivan virðist kýla eða gefa Nacho olnbogaskot og heppinn að fá að hanga inn á

Hvað þýða úrslitin?

Selfyssingar í kjörstöðu þegar sjö leikir eru eftir af mótinu eftir að Reynir Sandgerði gerði þeim þann greiða að vinna KFA 3-1 og Selfoss núna níu stigum frá næsta liði. Víkingar enn þá í öðru sæti jafnir Völsungi og eru fyrir ofan á markatölu

Vondur dagur

Vondur dagur fyrir Víking Ó sem skapaði sér fullt af færum til að jafna og komast yfir en allt kom fyrir ekki og Selfyssingar alltaf líklegri með hverjum leikdegi að fara upp um deild

Dómarinn - 6,5/10

Var með góða stjórn í fyrri hálfleik en missti hana aðeins í seinni
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.