SKÝRSLAN: Þjóðhátíðarsigur í Eyjum
Hvað réði úrslitum?
Eyjamenn voru bara betri bæði með og móti vindi. Þeir fengu miklu fleiri færi og hefðu geta löngu verið búnir að klára leikinn.
Bestu leikmenn
1. Oliver Heiðarsson
Gerir bæði mörk Eyjamanna og gerði þau virkilega vel. Var hættulegasti maður vallarins með áræðni og hraða sínum og hefði hann getað skorað fleiri mörk.
2. Vicente Valor
Stjórnaði miðsvæðinu hjá ÍBV. Hann dreifði boltanum vel og var með frábærar sendingar á liðsfélaga sína. Hann lagði einnig upp jöfnunarmarkið.
Atvikið
Sigurmark Eyjamanna. Markmaður sem er búinn að reyna að tefja allan leikinn á svo þessa hræðilegu aukaspyrnu sem fer beint fyrir fætur Olivers sem tekur hann viðstöðulaust á miðjunni og klárar í autt markið.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að Eyjamenn eru að færast nær Fjölni sem eru í efsta sætinu og eru núna 4 stigum á eftir þeim. Njarðvík eru áfram í 3 sætinu þremur stigum á eftir Eyamönnum.
Vondur dagur
Aron Snær Friðriksson fyrir hræðilegu aukaspyrnuna sem kemur Éyjamönnum í forystu.
Dómarinn - 6
Hann leyfði leiknum að fljóta og var ekki að dæma mikið. Eyjamenn hefðu þó átt að fá víti en Helgi dæmdi ekki neitt.


