Leik lokið!
Þessum leik lýkur með öruggum 5-1 sigri Valsara. HK átti flottan fyrri hálfleik en náði ekki að standa í heimamönnum í seinni hálfleik.
91. mín
Patrick Pedersen skýtur hér hátt yfir.
90. mín
Tveimur mínútum bætt við.
89. mín
Þetta er að fjara út bara hérna í rólegheitunum.
85. mín
Dagur Fjeldsted afskaplega fimur hérna og keyrir í átt að marki og nær að lokum skoti sem að Ömmi ver í horn.
83. mín
Atli Arnarson með slakt skot hátt yfir.
80. mín
InnTumi Þorvarsson
ÚtKarl Ágúst Karlsson
80. mín
InnÓlafur Karl Finsen
ÚtJónatan Ingi Jónsson
80. mín
InnGísli Laxdal Unnarsson
ÚtGylfi Þór Sigurðsson
80. mín
InnHörður Ingi Gunnarsson
ÚtSigurður Egill Lárusson
78. mín
Lúkas Logi með fínustu tilraun hér utan teigs en þetta ver Petersen.
75. mín
Þrenna!
Jónatan Ingi Jónsson
Gylfi Þór Sigurðsson með fast skot hér sem Petersen ver bara beint á Jónatan sem skorar sitt þriðja mark í dag, frábær frammistaða hjá Jónatan Inga.74. mín
Tryggvi Hrafn með flott skot hérna sem Petersen ver vel.
65. mín
InnLúkas Logi Heimisson
ÚtOrri Sigurður Ómarsson
64. mín
InnHákon Ingi Jónsson
ÚtAtli Þór Jónasson
Ómar Ingi eðlilega ekki sáttur með gang mála.
64. mín
InnDagur Örn Fjeldsted
ÚtGeorge Johannes Nunn
Ómar Ingi eðlilega ekki sáttur með gang mála.
64. mín
InnÍsak Aron Ómarsson
ÚtBrynjar Snær Pálsson
Ómar Ingi eðlilega ekki sáttur með gang mála.
64. mín
InnAtli Arnarson
ÚtArnþór Ari Atlason
Ómar Ingi eðlilega ekki sáttur með gang mála.
61. mín
Gífurlegur darraðadans í teignum, Orri Sigurður endar svo með að taka skot yfir.
61. mín
Annað horn í kjölfarið
60. mín
Valsarar fá horn
57. mín
InnAron Jóhannsson
ÚtKristinn Freyr Sigurðsson
55. mín
Gylfi að ganga frá þessu.
Game over!
Gylfi Þór Sigurðsson
Jónatan setur boltann í gegn á Birki Má sem er í dauðafæri og á bara að skjóta og skora en leggur boltann fyrir á Patrick sem nær ekki að koma boltanum yfir línuna, Birkir fær hann aftur, Atli Hrafn bjargar á línu en Gylfi mætur til að skora úr frákastinu.Gylfi að ganga frá þessu.
54. mín
Samskeytin!
Gylfi hér alveg aleinn fyrir utan teigs og fær leyfi til að keyra í átt að marki og hamra boltanum að marki en í þetta sinn fór boltinn í utanverð samskeytin.
52. mín
Sigurður Egill kemst upp að endamörkum og leggur boltann fyrir markið á Jónatan sem skorar af miklu öryggi.
MAAAARK!
Jónatan Ingi Jónsson (stoðsending: Sigurður Egill Lárusson)
Nú er þetta orðið erfit fyrir Kópavogsbúana.Sigurður Egill kemst upp að endamörkum og leggur boltann fyrir markið á Jónatan sem skorar af miklu öryggi.
48. mín
ATLI ÞÓR JÓNASSON!
Atli fær boltann hérna einhverjum 30 metrum frá marki og snýr og hamrar bara boltanum í átt að marki, boltinn er bara á leið upp í samskeytin, á einhvern ótrúlegan hátt ver Ömmi þetta í slánna.
Ótrulegt skot og í raun enn ótrúlegri varsla.
Ótrulegt skot og í raun enn ótrúlegri varsla.
48. mín
Bjarni Mark skallar yfir eftir hornið.
48. mín
Valsarar fá horn!
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
Valsarar byrja með boltann.
45. mín
Hálfleikur
Valsarar koma sér í forystu hér með seinustu spyrnu hálfleiksins. HK átt fullkomið svar við mótlætinu í upphafi leiks alveg fram að þessu augnabliks einbeitingarleysi undir lokin.
45. mín
Klaufalegt af HK sem átti ansi flottan hálfleik fram að þessu.
+5 Flautumark!
Jónatan Ingi Jónsson (stoðsending: Bjarni Mark Antonsson)
Bjarni Mark lyftir boltanum upp hægri kantinn á Jónatan, Allt opið þarna út á kantinum áður en Brynjar Snær lætur Jónatan fara ansi illa með sig. Jónatan setur boltann svo undir Petersen.Klaufalegt af HK sem átti ansi flottan hálfleik fram að þessu.
45. mín
+4
Smá hætta hér við markteiginn eftir hornið en HK ná að bjarga þessu
45. mín
+4
Valur fær horn
45. mín
+1
Gylfi með fínustu tilraun en Petersen handsamar þetta.
45. mín
Fimm mínútum bætt við hér
45. mín
Valur fær horn!
43. mín
Gult spjald
Atli Hrafn Andrason
Brýtur af sér hér rétt fyrir utan teig.43. mín
HK bara betri!
Arnþór Ari hér í dauðafæri og kominn alveg að Ömma en hamrar boltanum yfir, spurning með rangstöðu en flaggið hélst niðri
41. mín
Atli Hrafn gerir frábærlega hér og prjónar sig í átt að teignum, reynir svo skot innanfótar i fjær sem var nokkuð flott en Ömmi vel á verði.
37. mín
Sendingin hans í vörninni er afar kæruleysisleg og Atli kemst í þetta, þetta virtist vera að renna út í sandinn hjá honum sökum þess að Orri var að ná honum en afgreiðslan var að lokum frábær á milli fóta Ömma!
Ég sagði það!
Atli Þór Jónasson
Sigurður Egill gerir hræðileg mistök hér!Sendingin hans í vörninni er afar kæruleysisleg og Atli kemst í þetta, þetta virtist vera að renna út í sandinn hjá honum sökum þess að Orri var að ná honum en afgreiðslan var að lokum frábær á milli fóta Ömma!
33. mín
HK eru að gera vel hér miðað við aðstæður, hakan færi ekki í gólfið ef jöfnunarmark kæmi hér.
31. mín
Ömmi sló hornið út en HK halda boltanum og ná að lokum að ná Atla Hrafni í fína stöðu en skot hans beint á Ömma.
30. mín
Karl Ágúst með skot í varnarmann og aftur fyrir, horn!
27. mín
Frábær varsla!
Boltinn kemur fyrir markið á lofti og Gylfi rekur tánna í boltann og Petersen gerir frábærlega í því að bregðast við og halda þessu úti!
26. mín
Brynjar Snær setur boltann aftur fyrir í horn.
23. mín
Karl Ágúst og Bjarni Mark skella saman og steinliggja báðir, virðist þó ætla að verða í lagi með þá báða.
20. mín
Atli Þór keyrir hérna á Valsvörnina og endar með því að taka skot hægra megin í teignum sem Ömmi grípur.
16. mín
Kiddi hér með fína tilraun sem fer rétt yfir.
15. mín
Endar með skoti frá Tryggva sem Petersen grípur.
14. mín
Valur fær horn!
12. mín
Gylfi tók spyrnuna og setti hana á mitt markið, öruggt!
Gylfi öruggur!
Gylfi Þór Sigurðsson
Jónatan var sloppinn einn í gegn og var rifinn niður af Ívari sem fýkur af velli.Gylfi tók spyrnuna og setti hana á mitt markið, öruggt!
11. mín
Rautt spjald
Ívar Örn Jónsson
Víti og rautt!9. mín
Gylfi tók spyrnuna að vanda en einhver skallaði yfir, sá ekki alveg hver.
9. mín
Birkir Már með skot í varnarmann og sækir fyrsta horn leiksins.
8. mín
Ömmi er staðinn upp og virðist ætla láta reyna á þetta.
7. mín
Ömmi liggur enn, það yrði blóðtaka að missa hann út hér.
6. mín
Ömmi liggur hérna niðri eftir samstuð við Atla og virðist hafa meitt sig á hendi.
5. mín
Ívar Örn kemur með boltann fyrir á Karl Ágúst sem reynir að taka hann í fyrsta á lofti en auðvelt fyrir Ömma sem grípur þetta.
3. mín
Dauðafæri!
Gylfi með frábæra sendingu í gegn á Jónatan Inga sem er einn gegn Petersen, Jónatan fer ansi illa með þetta og er kominn of nálægt Christoffer sem ver frá honum
1. mín
Leikur hafinn
Hk hefur leik og sækir í átt að Öskjuhlíðinni.
Fyrir leik
Styttist í upphafsflautið
Liðin eru þessa stundina að takast í hendur og vallarþulir að kynna inn leikmenn Valsara.
Fyrir leik
Byrjunarlið
Túfa, þjálfari Vals, gerir aðeins eina breytingu á liði sínu frá tapinu gegn HK en Ögmundur Kristinsson kemur inn í liðið í stað Frederik Schram sem tekur út leikbann.
Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari HK, gerir þrjár breytingar á liði sínu frá 5-1 útreiðinni gegn Víkingi, Christoffer Petersen, Karl Ágúst Karlsson og Brynjar Snær Pálsson koma inn í liðið í stað Stefáns Stefánssonar, Þorsteins Aron Antonssonar og Birnis Breka Burknasonar.
Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari HK, gerir þrjár breytingar á liði sínu frá 5-1 útreiðinni gegn Víkingi, Christoffer Petersen, Karl Ágúst Karlsson og Brynjar Snær Pálsson koma inn í liðið í stað Stefáns Stefánssonar, Þorsteins Aron Antonssonar og Birnis Breka Burknasonar.

Fyrir leik
Spámaður umferðarinnar
Róbert Elís Hlynsson, miðjumaður ÍR í Lengjudeildinn, sem hefur verið einn allra efnilegasti leikmaður Lengjudeildarinnar þetta árið var fenginn til að spá í umferðina. Róbert Elís var hetja Breiðhyltinga síðastliðinn föstudag er hann skoraði sigurmarkið gegn Þrótturum, Róbert Elís er fæddur árið 2007 og er því aðeins 17 ára.
Valur 4 - 1 HK
Valsmenn fara þægilega í gegnum HK menn og vinna sannfærandi. Gylfi með tvö og Patrick Pedersen tvö, síðan skorar Karl Ágúst fyrir HK.

Valur 4 - 1 HK
Valsmenn fara þægilega í gegnum HK menn og vinna sannfærandi. Gylfi með tvö og Patrick Pedersen tvö, síðan skorar Karl Ágúst fyrir HK.

Fyrir leik
HK
HK-ingar eru í smá óvissu þessa dagana, það er tilkomið vegna uppákomu sem átti sér stað á fimmtudaginn síðastliðinn en þá var leik liðsins gegn KR frestað vegna þess að annað markið í Kórnum var brotið og ekki var hægt að koma fyrir varamarki sem að uppfyllti skilyrði. Ekki er enn ljóst hvert framhaldið er með þann leik, líklega verður fundinn nýr leiktími fyrir leikinn en meðal annars hefur komið til umræðu að dæma KR-ingum 3-0 sigur í leiknum.
KR hlýtur að fá dæmdan sigur í þessum leik. Óleikhæfur völlur á að þýða sigur. Alveg eins frost völlurinn hjá Start í fyrra í norsku deildinni. Það er ekki hægt að setja fordæmi fyrir því að lið geti bara eyðilagt mark ef það eru t.d einhver vandræði með hópinn. https://t.co/mW9XPcdpSk
— Ólafur Páll Johnson (@op_johnson) August 9, 2024
Fyrir leik
Valur
Valsarar eru í leit að sínum fyrsta sigri undir stjórn nýs þjálfara liðins, Srdjan Tufegdzic, eða Túfa eins og hann er kallaður. Fyrsti leikur liðsins undir hans stjórn lauk með 0-1 sigri Ka-manna en sá leikur fór fram norðan heiða. Hér fær liðið upplagt tækifæri til að snúa genginu við og koma sér aftur á sigurbraut.

Fyrir leik
Velkominn á Hlíðarenda
Hér fer fram leikur Vals og HK og sagt verður frá öllu því helsta sem á sér stað hér í beinni textalýsingu.





