Fotbolti.net
Besta deildin
@BreiiiiiiiiiiiSölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
KR
KR
Besta-deild karla
Meistaravellir
1 - 0
FH
FH
Aron Þórður Albertsson 45'1 - 0
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Óskar Hrafn is back in town

Hvað réði úrslitum?

FH-ingar voru bara ekki með í dag fannst mér. KR-ingar náður marki rétt fyrir hálfleikinn sem gerði gæfumuninn en það er ekkert smá mikilvægt að skora á þessum tíma í svona jöfnum leik.

Bestu leikmenn

1. Aron Þórður Albertsson

Skoraði sigurmarkið og gerði sitt á miðsvæðinu. Sótti brot hér og þar og var lúsiðinn í aðgerðum sínum í dag.

2. Jóhannes Kristinn Bjarnason

Hans fyrsti byrjunarliðsleikur síðan hann meiddist í Framleiknum í maí. Var bara gífurlega góður í því sem hann gerði og sýndi það hvað hann er mikilvægur í þessu KR-liði.

Atvikið

Verður það ekki bara að vera sigurmarkið? Stærsta atvikið í leiknum og veldur því að KR vinnur sinn fyrsta leik síðan 20. maí.

Hvað þýða úrslitin?

Mikill léttir fyrir KR að hafa unnið hér í kvöld. Þeirra fyrsti sigur síðan 20. maí sem kom einmitt gegn FH þannig eitthvað geta þeir gegn Fimleikafélaginu. Einnig fyrsta sinn á tímabilinu sem þeir halda hreinu. Óskar Hrafn effect? FH-ingar detta hins vegar niður í 5. sætið þar sem ÍA vann í kvöld.

Vondur dagur

Það voru svo margir í þessu FH-liði sem gátu ekki neitt í dag. Á erfitt með að benda á einhvern einn. Björn Daníel, Kjartan Kári, Arnór Borg, Dusan og fleiri voru bara ekki með í dag fannst mér. Þá sást Benoný Breki ekki í dag og var skuggin af sjálfum sér.

Dómarinn - 8

Ekkert út á Ívar að setja. Bara flottur dagur í dag hjá teyminu sem dæmdi þennan leik svona ágætlega.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.