Fotbolti.net
Besta deildin
Sverrir Örn Einarsson
Besta-deild kvenna
HS Orku völlurinn
Keflavík
Keflavík
3 - 4
FH
FH
Ariela Lewis 7'1 - 0Saorla Lorraine Miller 28'2 - 0Ariela Lewis 30'3 - 03 - 155' Snædís María Jörundsdóttir3 - 270' Hildur Katrín Snorradóttir3 - 376' Elísa Lana Sigurjónsdóttir3 - 489' Breukelen Lachelle Woodard
Dómari: Stefán Ragnar Guðlaugsson
Leik lokið!
Ótrúlegur leikur að baki

Svakaleg endurkoma og rúmlega það hér í Keflavík!

Viðtöl og skýrsla væntanleg.
90. mín
Fimm mínútur í uppbótartíma að lágmarki,
FH
89. mín
Endurkoman fullkomnuð!

Breukelen Lachelle Woodard

Þvílíkt mark og þvílík endurkoma.

Þær voru 3-0 undir í hálfleik en komast hér yfir!

Breukelen fær boltann við D-bogann á teig Keflavíkur og lætur bara vaða. Hittir boltann frábærlega sem syngur í netinu óverjandi fyrir Veru! Þvílíkur viðsnúningur.
88. mín
Valgerður í hörkufæri í teig Keflavíkur eftir horn en nær ekki að koma boltanum á markið.
Keflavík
87. mín
InnSigurbjörg Diljá Gunnarsdóttir
ÚtAlma Rós Magnúsdóttir
81. mín
Eitt lið á vellinum.

Fh ræður öllu hér.

Skot að marki sem þvingar Veru í erfiða vörslu sem skilar hornspyrnu fyrir FH.

Stendur ekki steinn yfir steini í leik Keflavíkur miðað við fyrri hálfleik.
Keflavík
80. mín
InnHilda Rún Hafsteinsdóttir
ÚtKristrún Ýr Holm
79. mín
Skiptingar beggja liða í tómri steypu hjá mér. Reyni að færa inn eftir því sem ég sé.
FH
76. mín
Beint úr horni

Elísa Lana Sigurjónsdóttir


Hélt hún hefði verið farin af velli en svo er aldeilis ekki.

Hún jafnar hér beint úr horni. Þessi óþarfa hornspyrna sem Caroline gefur reynist ansi dýr.
76. mín
Caroline gefur FH óþarfa horn eftir sendingu inn á teiginn frá Hildigunni.
73. mín
Melanie með skot að marki eftir horn en hittir ekki markið.
FH
70. mín
MAAAARK!

Hildur Katrín Snorradóttir

Sterkust í teignum eftir hornspyrnu frá vinstri og skallar boltann af miklum krafti í netið.

Við erum með leik í höndunum hérna!
69. mín
Hvar var þetta FH lið í fyrri hálfleik?
68. mín
Vera bjargar Keflavík

Anna Nurmi sigrar rangstöðugildru Keflavíkur og er ein gegn Veru, tekur skotið en Vera gerir vel og ver. Frákastið berst á að mér sýnist Snædísi sem á annað skot en aftur ver Vera.
67. mín
Kristrún Ýr fyrirliði Keflavíkur situr á vellinum og þarf aðhlynningu. Sé hana ekki fara af velli en svo bregðast krosstré sem önnur.
64. mín
Stefán Ragnar er að missa leikinn í vitleysu hérna að mínu mati. Kolrangir dómar (í báðar áttir) fljúga og sjálfstraustið virkar lítið.
62. mín
Darrðardans í teig FH eftir aukaspyrnu frá hægri. Aldís fær boltann í fangið á endanum.
59. mín
FH liðið verið mun skarpara hér í upphafi síðari hálfleik. Heimakonur á hælunum og eru að bjóða hættunni heim.
FH
55. mín
MAAAARK!

Snædís María Jörundsdóttir (stoðsending: Hildur Katrín Snorradóttir)

Fékk tíma við teig Keflavíkur og lét bara vaða á markið. Vera átti aldrei séns og boltinn liggur í netinu.

Fyrsta skrefið en það er ansi langt í land.
52. mín
Hildur Katrín með skot að marki en beint á Veru.
51. mín
Barátta í fyrrirúmi hér í upphafi síðari hálfleiks.
FH
46. mín
InnHildur Katrín Snorradóttir
ÚtJónína Linnet
FH
46. mín
InnSelma Sól Sigurjónsdóttir
ÚtThelma Karen Pálmadóttir
FH
46. mín
InnAndrea Marý Sigurjónsdóttir
ÚtHanna Kallmaier
46. mín
FH gerði þrefalda skiptingu í hálfleik
46. mín
Síðari hálfeikur hafinn

Heimakonur sparka okkur af stað á ný.
45. mín
Hálfleikur
Flautað til hálfleiks hér í Keflavík.

Heimakonur nýtt sín færi vel en það má vel færa rök fyrir því að leikurinn hefði þróast á annan hátt hefði FH fengið vítið sem þær áttu sannarlega að fá.
45. mín
Snædís María í óvæntu færi eftir að Caroline missir af boltanum. Vera vel á verði og ver.
43. mín
Anna Nurmi vinnur horn fyrir FH
38. mín
Breukelen í dauðafæri á fjærstöng eftir hornið en nær ekki að stýra boltanum á markið.
38. mín
Elísa Lana sækir horn fyrir FH eftir að skot hennar fer afturfyrir af varnarmanni
FH
36. mín
Gult spjald

Thelma Karen Pálmadóttir

Peysutog fyrir þó nokkru síðan. Stefán man og spjaldar
Keflavík
30. mín
Keflavím allt í öllu

Ariela Lewis (stoðsending: Saorla Lorraine Miller)


Saorla finnur Arielu í færi við teiginn og líkt og fyrr í leiknum verður Arielu ekki á nein mistök og skilar boltanum vel í netið.

Keflavík að klára þetta í fyrri hálfleik
Keflavík
28. mín
MAAAARK!

Saorla Lorraine Miller (stoðsending: Ariela Lewis)

Fyrirgjöf frá Arielu og Saorla rétt staðsett og skilar boltanum í netið af fagmennsku
21. mín
Leikurinn í járnum svo að segja.

Lítið að frétta færalega séð.
19. mín
Baráttu leikur eftir markið. Völlurinn mjög blautur og allar sendingar mjög óútreiknanlegar.
12. mín
Melanie hársbreidd frá því að sleppa ein í gegn en Aldís mætir vel út á móti og hirðir upp boltann.
11. mín
Þetta var bara víti og ekkert annað!
Regina Solhaug togar Snædísi Maríu niður í teignum og er bara klárt víti. Tríóið gerir ekkert.

FH rænt vítaspyrnu ekkert flóknara en það.
Keflavík
7. mín
Heimakonur eiga fyrsta höggið!

Ariela Lewis (stoðsending: Melanie Claire Rendeiro)


Þarf ekki að vera flókið. Vinna einvígi á miðjunni. Ariela finnur Melanie úti til vinstri sem þakkar fyrir sig og þræður Arielu í gegn með frábærri sendingu og verður framherjanum á engin mistök og skilar boltanum í netið.

Keflavík byrjað þennan leik mun betur.
6. mín
Keflavík vinnur fyrsta horn leiksins.
5. mín
Melanie með fínan bolta fyrir mark FH frá hægri. Aldís fyrst á boltann og grípur vel inn í.
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir sparka þessu af stað.
Fyrir leik
Sá veikasti úr 109 spáir

Sölvi Haraldsson er spámaður umferðarinnar í Bestu deild kvenna hér á Fótbolti.net. Sölvi hefur verið öflugur fyrir okkur á Fótbolti.net á vellinum í sumar og fær að spreyta sig í spámennsku í dag.

   15.08.2024 13:19
Sölvi Haralds spáir í 17. umferð Bestu deildar kvenna


Keflavík 2 - 2 FH

Keflavíkurkonur hafa verið ekkert smá óheppnar í seinustu leikjum. Einstaklingsmistök og fleira sem hefur kostað þær mörg stig. FH-ingar aftur á móti, þær hafa ekki verið nægilega góðar og valdið mér pínu vonbrigðum eftir að hafa séð þær á undirbúningstímabilinu. Þetta verður stál í stál en FH-ingar stela punktinum alveg í lokin hugsa ég.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarinn með reynslu af leiknum

Það er kunnulegt nafn úr boltanum á flautunni í Keflavík í kvöld. Stefán Ragnar Guðlaugsson goðsögn á Selfossi heldur um flautuna á HS Orkuvellinum. Honum til aðstoðar eru Bryngeir Valdimarsson og Kári Mímisson. Sigurður Þór Sveinsson tekur að sér starf fjórða dómara og eftirlitsmaður KSÍ er Halldór Breiðfjörð Jóhannsson.

Mynd: Raggi Óla

Fyrir leik
Keflavík
Botnsætið er Keflvíkinga þessa stundina og útlitið verður svartara með hverri umferðinni sem líður stigalega séð. Liðið hefur þó átt ágæta leiki inn á milli og strítt betri liðum deildarinnar í mörgum tilfellum.

Liðið mátti þola 2-1 tap á heimavelli gegn Víkingum í síðustu umferð. Leikurinn var nokkuð jafn og í raun má skrifa það á óheppni að Keflavík hafi ekki tekið í það minnsta stig.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik

FH liðið á í harðri baráttu við lið Þróttar og Stjörnuna um sæti í efri hluta deildarinnar við skiptingu sem færist óðum nær. Þar er liðið í dag í bestri stöðu liðanna þriggja með 22 stig í fimmta sæti tveimur stigum á undan keppinautum sínum.

Lið FH sem komst aftur á sigurbraut með sigri á Fylki í síðustu umferð má þó illa við að misstíga sig. Guðni Eiríksson annar af þjálfurum FH býst við erfiðum leik.

„Það er bara ótrúlega erfitt að fara suður með sjó og mæta Keflavík. Vonandi verður ekki rok. Þar munum við þurfa á toppleik að halda til að geta fengið eitthvað út úr þeim leik. Þær eru "physical" og sterkar og eru að bæta við sig leikmönnum. Þær eru að berjast fyrir tilverurétti sínum í deildinni og það er erfitt að mæta slíkum liðum.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Baráttan harðnar í Bestu deild kvenna

Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá leik Keflavíkur og FH í Bestu deild kvenna. Flautað verður til leiks á HS Orkuvellinum klukkan 18:00
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.