Fotbolti.net
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjudeild karla
VÍS völlurinn
Þór
Þór
1 - 1
Fjölnir
Fjölnir
Birkir Heimisson 37'1 - 0Birkir Heimisson 43'1 - 146' Rafael Máni Þrastarson
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Leik lokið!
Búið!
Jafntefli niðurstaðan! Viðtöl og meððí væntanlegt að síðuna seinna í kvöld
Fjölnir
96. mín
Gult spjald

Jónatan Guðni Arnarsson

94. mín
Bjarki Þór Viðarsson og Baldvin Þór Berndsen skullu harkalega saman en voru báðir fljótir að jafna sig og eru komnir aftur inn á.
91. mín
Fjölnir farið að pressa ansi mikið.. Fáum við sigurmark?
Þór
88. mín
InnBjarki Þór Viðarsson
ÚtMarc Rochester Sörensen
Þór
88. mín
InnNökkvi Hjörvarsson
ÚtSigfús Fannar Gunnarsson
Fjölnir
88. mín
InnSölvi Sigmarsson
ÚtRafael Máni Þrastarson
84. mín
Þessi leikur er opinn og ómögulegt að segja til um hvar sigurmarkið kemur ef það kemur þrátt fyrir að heimamenn séu manni færri hafa þeir fengið góða möguleika.
83. mín
Einhver viðvörun frá Helga Mikael á bekkinn hjá Fjölni.
Fjölnir
80. mín
InnÓliver Dagur Thorlacius
ÚtVilhjálmur Yngvi Hjálmarsson
Þór
79. mín
Gult spjald

Marc Rochester Sörensen

Fjölnir
77. mín
Gult spjald

Daníel Ingvar Ingvarsson

Þór
76. mín
Gult spjald

Vilhelm Ottó Biering Ottósson

75. mín
Máni Austmann ætlaði að skrúfa boltann í fjær en boltinn fer framhjá
Þór
74. mín
InnVilhelm Ottó Biering Ottósson
ÚtAlexander Már Þorláksson
Fjölnir
66. mín
InnAxel Freyr Harðarson
ÚtDagur Ingi Axelsson
Fjölnir
66. mín
InnJónatan Guðni Arnarsson
ÚtBjarni Þór Hafstein
Þór
66. mín
InnÁrni Elvar Árnason
ÚtAron Einar Gunnarsson
66. mín
Þórsarar koma boltanum í netið eftir glæsilega takta hjá Sigfúsi Fannarai en rangstaða dæmd
60. mín
Sigfús Fannar Gunnarsson með skot framhjá eftir lagleget spil. Vildi fá horn en markspyrna niðurstaðan.
Fjölnir
58. mín
Gult spjald

Bjarni Þór Hafstein

Gult fyrir dýfu inn í teig. Hann mótmælir þessu ekki neitt.
52. mín
Skalli yfir markið eftir hornspyrnu Þórsara
Fjölnir
46. mín
MAAAARK!

Rafael Máni Þrastarson (stoðsending: Bjarni Þór Hafstein)

Rafael Máni skallar boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Bjarna Þór Hafstein strax í upphafi seinni hálfleiks! Sterk byrjun hjá gestunum sem eru manni fleiri!
46. mín
Seinni hálfleikur er farinn af stað
45. mín
Hálfleikur
Róleg byrjun en það gekk svo sannarlega mikið á undir lok fyrri hálfleiksins.
Þór
43. mín
Rautt spjald

Birkir Heimisson

Fer af miklum krafti í Mána Austmann. Með olnbogann í andlitið.
40. mín
Rafael Máni í góðu færi en Aron Birkir ver
Þór
37. mín
MAAARK!

Birkir Heimisson

Birkir rennur til með boltann en stendur upp og fer í átt að teignum og lætur vaða! Heimamenn komnir yfir!
34. mín
Smá action hérna. Aron Einar Gunnarsson liggur inn í teig Þórs eftir einhver viðskipti. Í kjölfarið fara menn að ýta í hvorn annan.
31. mín
Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson með skot en framhjá fer boltinn
24. mín
Lúmskt skot frá Baldvin Þór Berndsen úr aukaspyrnu. Aron Birkir sér við honum, hornspyrna. Brot á Fjölnismenn í kjölfarið.
22. mín
Fjölnir fær hornspyrnu en boltinn fer yfir allan pakkann og aftur fyrir.
14. mín
Fjölnismenn vilja fá vítaspyrnu. Daníel Ingvar Ingvarsson fellur í teignum en ekkert dæmt
12. mín
Þórsarar meira með boltann hérna undanfarnar mínútur. Fá að spila hægt og rólega í öftustu línu.. Lítið verið að reyna sækja á mörkin.
6. mín
Róleg byrjun á þessum leik. Kristófer Kristjánsson rétt í þessu nálægt því að komast inn í sendingu og að lenda einn á móti Halldóri Snæ en hann nær ekki valdi á boltanum.
1. mín
Leikur hafinn
Heimamenn koma þessu af stað
Fyrir leik
Aron Einar fyrirliði
Aron Einar Gunnarsson er í byrjunarliði Þórs og tekur að sjálfsögðu fyrirliðabandið. Sigfús Fannar Gunnarsson kemur einnig inn í liðið eftir 3-0 tap gegn Grindavík í síðustu umferð. Vilhelm Ottó Biering Ottósson er á bekknum en Ingimar Arnar Kristjánsson er ekki í hópnum.

Það eru þrjár breytingar á liði Fjölnis sem gerði markaalust jafntefli gegn Njarðvík í síðustu umferð. Daníel Ingvar Ingvarsson, Bjarni Þór Hafstein og Rafael Máni Þrastarson koma inn fyrir Sigurvin Reynisson, Óliver Dagur Thorlacius, Axel Freyr Harðarson.
Fyrir leik
Tríóið
Helgi Mikael Jónasson verður með flautuna í dag. Tomasz Piotr Zietal og Bergvin Fannar Gunnarsson verða honum til aðstoðar og Sverrir Gunnar Pálmason er eftirlitsmaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Fyrri viðureignin
Liðin mættust í 7. umferð þann 15. júní á Extra vellinum þar sem Baldvin Þór Berndsen var hetja Fjölnismanna í 1-0 sigri.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Bras á toppliðinu
Fjölnir er á toppi deildarinnar aðeins stigi á undan ÍBV en það hefur verið bras á liðinu í undanförnum leikjum. Liðið hefur ekki náð í sigur í síðustu fjórum leikjum en liðið hefur gert þrjú jafntefli og tapað einum leik.

Liðið hefur átt í vandræðum með að skora en Fjölnir hefur aðeins skorað tvö mörk í síðustu fjórum leikjum. Þá steinlá liðið 1-5 gegn ÍBV á heimavelli í 16. umferð.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Vonbrigði hjá Þórsurum
Þórsarar ætluðu sér stóra hluti í sumar eins og margoft hefur verið rætt og ritað um. Staðan er hins vegar sú að þegar fimm umferðir eru eftir er styttra í fallsæti en í umspilssæti. Liðið er 9 stigum frá umspilssæti og aðeins 15 stig eftir í pottinum.

Vonast er til að heimkoma Arons Einars Gunnarssonar muni rífa liðið í gang en aðeins eitt stig hefur náðst í fyrstu tveimur leikjum hans. Hann sýndi hins vegar mikilvægi sitt þegar hann kom inn á sem varamaður og lagði upp jöfnunarmarkið í síðasta heimaleik liðsins gegn Njarðvík. Nú er erfitt verkefni fyrir höndum þar sem toppliðið kemur í heimsókn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Góðan daginn
Verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Þórs og Fjölnis í 18. umferð Lengjudeildarinnar. Leikurinn fer fram á VÍS vellinum á Akureyri.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.