Fotbolti.net
Elvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
2. deild karla
JÁVERK-völlurinn
Selfoss
Selfoss
3 - 2
KF
KF
Ignacio Gil Echevarria 16'1 - 0Alfredo Ivan Arguello Sanabria 33'2 - 0Aron Fannar Birgisson 56'3 - 03 - 185' Vitor Vieira Thomas3 - 287' Þorsteinn Már Þorvaldsson (víti)
Dómari: Óli Njáll Ingólfsson
Leik lokið!
Selfoss landaði þessu að lokum!
Miklir yfirburðir Selfyssinga lengi vel en eftir að þeir komust í 3-0 þá hreinlega pökkuðu þeir saman og hleyptu rosalegri spennu í þetta í lokin.

En sigurinn er heimamanna sem eru komnir með annan fótinn og nokkrar tær til viðbótar upp í Lengjudeildina. KF er áfram í fallsæti.

Leik er lokið í Ólafsvík: Víkingur Ólafsvík vann 3-2 sigur gegn Haukum.

KFA vann Hött/Huginn 8-2 og Þróttur Vogum er að landa sigri gegn Reyni Sandgerði. Staðan 3-1 í Vogunum.

Takk fyrir mig!
95. mín
Gonzalo Zamorano reynir að koma boltanum yfir Sample markvörð sem var kominn vel út úr markinu en Gonzi nær ekki nægilega góðu skoti.
94. mín
Markvörður KF er kominn fram
Það er allt reynt.
93. mín
KF að reyna að fiska annað víti en Óli Njáll dómari fellur ekki í gildruna.
92. mín
Uppbótartíminn í gangi
Selfoss að fá aukaspyrnu með fyrirgjafarmöguleika frá vinstri. Eru ekkert að flýta sér að taka hana.
KF
87. mín
Sendi markvörðinn í rangt horn!

Þorsteinn Már Þorvaldsson

Erum við að fara að fá endurkomu hér? Þetta var alls ekki í kortunum en Selfoss hefur slakað rækilega á.
Selfoss
87. mín
KF FÆR VÍTASPYRNU!!!

Dagur Jósefsson

Það er óvænt spenna hérna í lokin!

Grétar Áki Bergsson lék á Dag sem braut klaufalega á honum í teignum.
86. mín
Víkingur Ólafsvík hefur tekið forystuna gegn Haukum
Staðan er 3-2 í Ólafsvík.
KF
85. mín
Fjallabræður minnka muninn

Vitor Vieira Thomas (stoðsending: Agnar Óli Grétarsson)

Marinó Snær með sendingu inn í teiginn úr aukaspyrnu, Agnar Óli flikkar boltanum á fjærstöngina þar sem Vitor nær að skora.
Selfoss
82. mín
InnEinar Bjarki Einarsson
ÚtAron Lucas Vokes
Selfoss
82. mín
InnValdimar Jóhannsson
ÚtAron Fannar Birgisson
80. mín
Þróttur Vogum hefur jafnað
Staðan 1-1 í viðureign Þróttar og Reynis Sandgerði. KFA er komið í 8-2 í Austurlandsslagnum.
Selfoss
78. mín
InnSesar Örn Harðarson
ÚtAlfredo Ivan Arguello Sanabria
Selfoss
78. mín
InnIngvi Rafn Óskarsson
ÚtAdrian Sanchez
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
77. mín
Blakala hefur ekki haft mikið að gera
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KF
76. mín
InnGrétar Áki Bergsson
ÚtVictor Tomas Gonzalez Perez
Selfoss
75. mín
Gult spjald

Alexander Clive Vokes

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fer í andlitið á leikmanni KF í baráttunni um boltann.
73. mín
Markaveisla í Fjarðabyggðarhöllinni!
Staðan orðin 7-2 þar! Lesið allt um málið hérna.
69. mín
Selfoss hefur aðeins slakað á eftir þriðja markið og gestirnir sótt meira. Ekki óvanalegt að svona gerist í fótbolta þegar lið ná góðri forystu.
KF
68. mín
InnJakob Auðun Sindrason
ÚtJonas Benedikt Schmalbach
KF
68. mín
InnAkil Rondel Dexter De Freitas
ÚtDaniel Kristiansen
67. mín
KF með langt innkast og Edu Cruz á skalla rétt framhjá. Mögulega besta færi gestaliðsins.
66. mín
Staðan í höllinni er vænleg fyrir KFA
Höttur/Huginn fékk rautt spjald eftir hálfleiksflaut og KFA gekk á lagið. KFA 4-2 H/H er staðan. Leikurinn er í beinni textalýsingu hjá okkur.
Selfoss
63. mín
InnEinar Breki Sverrisson
ÚtReynir Freyr Sveinsson
62. mín
Gonzalo Zamorano átti fína marktilraun sem var varin og hinumegin skaut svo Marinó Snær Birgisson yfir.
KF
60. mín
Stálheppinn að fá ekki rautt spjald!

Daniel Kristiansen

Fer í svakalega harkalega tæklingu og lendir á Reyni sýndist mér, þetta hefði að mínu mati átt að vera annar litur.
59. mín
Aron Fannar skoraði þriðja mark Selfyssinga
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selfoss
56. mín
Huggulegt mark en agalegur varnarleikur

Aron Fannar Birgisson (stoðsending: Ignacio Gil Echevarria)

Nacho Gil kemur boltanum á Aron sem sækir í átt að marki, varnarmaður færir sig frá honum og Aron á vel heppnað skot sem endar í netinu.
55. mín
Ólsarar hafa jafnað
Víkingur Ólafsvík 2-2 Haukar. Mikið stuð á gervigrasinu í Ólafsvík og hörkuleikur í gangi.
KF
53. mín
Gult spjald

Agnar Óli Grétarsson

Of seinn í tæklingu. Agnar kom inn sem varamaður í hálfleik og tók sér ekki langan tíma í að fá gult spjald.
51. mín
Haukar komnir yfir í Ólafsvík
Víkingur Ólafsvík 1-2 Haukar. Hafnfirðingar voru að skora úr víti. - Þá var KFA að jafna fyrir austan í 2-2.
48. mín
Vitor Vieira Thomas fer í bakið á Nacho Gil en sleppur með tiltal.
KF
46. mín
InnAgnar Óli Grétarsson
ÚtSævar Þór Fylkisson
Skipting í hálfleik
46. mín
Seinni hálfleikur er farinn af stað
45. mín
Staðan í öðrum leikjum
Vorum að fá skeyti frá Ólafsvík, þar er staðan 1-1 í leik Víkings Ó. og Hauka.

Höttur/Huginn er að vinna KFA 2-1 í höllinni og þá ku Reynir vera 1-0 yfir gegn Þrótti Vogum á útivelli í hálfleik.

Ef þú lumar á stöðunni í einhverjum af hinum leikjunum sem eru í gangi þá er tölvupósturinn [email protected] galopinn! Einnig hægt að senda mér á X samfélagsmiðlunum (elvargeir).
45. mín
Fólk að gæða sér á grilluðum borgurum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besti vallarborgari sem ég hef fengið í sumar var á Selfossi.
45. mín
Hálfleikur
Stuðningsmenn Selfoss brosa í hring í hálfleik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

44. mín
KF nær að koma boltanum inn í teiginn, fyrirgjöf en dæmt sóknarbrot á Jordan Damachoua sem hrinti varnarmanni heimamanna. Hárréttur dómur.
36. mín
Selfyssingar svoooo miklu betri
Eru þegar farnir að hóta þriðja markinu.
Selfoss
33. mín
Þetta mark lá í loftinu!

Alfredo Ivan Arguello Sanabria (stoðsending: Aron Fannar Birgisson)

Selfyssingar töluvert betri og hafa tvöfaldað sína forystu. Alfredo sem er ákveðnastur í teignum og skallar boltann inn af stuttu færi við fjærstöngina eftir frábæra fyrirgjöf.

Þetta lítur vel út yrir heimamenn!
31. mín
Refurinn Bjarni Jó á hliðarlínunni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

30. mín
Aron Lucas Vokes að ógna, kemst í góða stöðu en fer síðan í ógöngur. Vinnur á endanum horn fyrir heimamenn. Ekkert kemur úr hornspyrnunni hinsvegar.
28. mín
Selfoss fékk hörkufæri til að tvöfalda forystuna
Adrian Sanchez með skot framhjá.
28. mín
Tíðindi úr öðrum leikjum
Höttur/Huginn hefur jafnað í 1-1 gegn KFA og þá berast óvænt tíðindi úr Vogunum þar sem Reynir Sandgerði er komið yfir 1-0 á útivelli gegn Þrótti.
24. mín
Þá fer KF í sóknina en Blakala mætir á hárréttum tíma út og hirðir boltann.
23. mín
Nacho Gil heldur áfram að ógna en á endanum hafnar boltinn í höndum markvarðar KF.
22. mín
Mennirnir sem bjuggu til fyrsta mark leiksins
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selfoss
16. mín
Spænsk samvinna og Selfoss kemst yfir!

Ignacio Gil Echevarria (stoðsending: Gonzalo Zamorano Leon)

Leikurinn nýkominn af stað aftur þegar Gonzi fær flugbraut upp vinstra megin, leggur boltann á Nacho í teignum og hann skorar með hnitmiðuðu skoti í fyrsta. Einfalt og árangursríkt!
15. mín
KFA yfir í höllinni
Sævar Þór Fylkisson leikmaður KF þarf aðhlynningu og leikurinn stopp. Þá má kannski nefna það að KFA er komið yfir í Austurlandsslagnum en hér er textalýsing frá þeim leik.
13. mín
Aron Lucas Vokes skallar rétt framhjá
Reynir Freyr Sveinsson með fyrirgjöf frá hægri og Aron á fínan skalla sem fer naumlega framhjá. Selfoss ekki langt frá því að brjóta ísinn fræga.
11. mín
Mikilvægir menn horfið á braut
Selfyssingar hafa á síðustu vikum misst lykilmenn úr sínu liði. Stjarnan kallaði Þorlák Breka Baxter úr láni og þá fóru Jón Vignir Pétursson og Ívan Breki Sigurðsson út í nám. Þrátt fyrir það er Selfoss í ljómandi fínum málum og Lengjudeildin er handan við hornið.
9. mín
KF fékk aukaspyrnu á fínum stað, Marinó Snær Birgisson með sendingu inn í teiginn en þar fór boltinn af höfði Selfyssings og til Blakala í markinu.
8. mín
Selfoss vann fyrri viðureign þessara liða á tímabilinu
Fyrst þessi leikur fer ekki af stað með miklum tíðindum þá er hægt að nefna að fyrri viðureign þessara liða í sumar endaði með 3-1 sigri Selfyssinga á Ólafsfirði um miðjan júnímánuð. Þorlákur Breki Baxter, Alfredo Ivan Arguello Sanabria og Jón Vignir Pétursson komu Selfyssingum í 3-0 áður en Anton Karl Sindrason minnkaði muninn á 90. mínútu.
3. mín
Heil umferð sem fór af stað núna klukkan 18:
KFA - Höttur/Huginn
Selfoss - KF
Kormákur/Hvöt - Ægir
Völsungur - KFG
Þróttur V. - Reynir S.
Víkingur Ó. - Haukar

Austurlandsslagurinn er einnig í beinni textalýsingu hjá okkur.
1. mín
Leikur hafinn
Fjallabræður sparka þessu í gang
Fyrir leik
Dómari: Óli Njáll Ingólfsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aðstoðardómarar: Óliver Thanh Tung Vú og Kári Mímisson
Eftirlitsmaður: Jóhann Gunnar Guðmundsson
Fyrir leik
Gríðarlega mikilvægur leikur fyrir bæði lið
Leikurinn tilheyrir 18. umferð 2. deildarinnar.

Staðan:
Staðan:
1. Selfoss - 35 stig
2. Víkingur Ó - 29
3. Völsungur - 29
4. KFA - 28
5. Höttur/Huginn - 27
6. Þróttur Vogum - 26
7. Haukar - 23
8. Ægir - 18
9. Kormákur/Hvöt - 18
10. KFG - 16
11. KF - 12
12. Reynir Sandgerði - 11
Fyrir leik
Hér má sjá leikinn í beinni:

Stuðst er við þessa útsendingu í textalýsingunni frá Selfossi.
Fyrir leik
KF getur komist upp úr fallsæti
KF er í fallsæti með 15 stig, tveimur stigum frá öruggu sæti. Ef KF vinnur leikinn í kvöld þá gæti liðið komið sér upp úr fallsæti með hagstæðum úrslitum úr öðrum leikjum.
Fyrir leik
Selfoss getur sett annan fótinn í Lengjudeildina
Selfyssingar eru með 38 stig í efsta sæti deildarinnar þegar fimm umferðir eru eftir. Með sigri í kvöld og hagstæðum úrslitum úr öðrum leikjum getur liðið komið sér langleiðina í næst efstu deild.
Fyrir leik
Hér fylgjumst við með Selfoss - KF í 2. deildinni
Mynd: Árni Þór Grétarsson
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.