Leik lokið!
Jafntefli niðurstaðan. VIðtöl og skýrsla kemur inn á síðuna síðar í kvöld
93. mín
ÍR fær horn. Brot dæmt á gestina inn í teignum
90. mín
Fjórum mínútum bætt við
90. mín
InnNökkvi Hjörvarsson
ÚtAron Einar Gunnarsson
90. mín
Sverrir Páll Ingason sloppiinn í gegn en er dæmdur rangstæður.
86. mín
Rólegt undanfarnar mínútur. Spurning hvort við fáum einhverja dramatík hérna!
81. mín
InnSverrir Páll Ingason
ÚtAlexander Már Þorláksson
80. mín
Sæþór Ívan Viðarsson í dauðafæri en setur boltann vel framhjá markinu. Ósáttur með sjálfan sig.
79. mín
Aron Birkir með útspark en boltinn drífur ekki yfir miðju, vindurinn stöðvar hann. Þetta eru alveg æðislegar aðstæður.
77. mín
Hákon Dagur með skot en boltinn yfir markið
73. mín
InnÁrni Elvar Árnason
ÚtSigfús Fannar Gunnarsson
72. mín
BJARKI ÞÓR VIÐARSSON
Gils sloppinn í gegn en Bjarki Þór Viðarsson með STÓRKOSTLEGA tæklingu og bjargar andlitinu á Þórsurum.
69. mín
MAARK(C)
Marc Rochester Sörensen
Marc Sörensen jafnar metin! Sending inn á teiginn og boltinn berst alla leið á fjær þar sem Marc er mættur inná markteig og setur boltann í netið.66. mín
Gult spjald
Marc Rochester Sörensen
64. mín
InnGils Gíslason
ÚtMarteinn Theodórsson
64. mín
InnSæþór Ívan Viðarsson
ÚtRenato Punyed Dubon
60. mín
Alexander Már með skalla framhjá úr góðu færi! Hefði átt að gera betur þarna!
59. mín
Góður séns fyrir Þór en Sigfús Fannar með skot hátt yfir.
54. mín
Bragi Karl Bjarkason í DAUÐAFÆRI eftir hornspyrnuna. Fær boltann á fjærstönginni en setur hann í slánna sýndist mér frekar en stöngina.
53. mín
Skotið beint í vegginn úr aukaspyrnunni. ÍR hélt boltanum og fær horn.
51. mín
Gult spjald
Aron Einar Gunnarsson
ÍR fær aukaspyrnu á hættulegum stað46. mín
ÍRingar strax í færi. Sýndist það vera Mcausland sem komst í boltann eftir langt innkast en hann fór framhjá.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
46. mín
InnBirgir Ómar Hlynsson
ÚtVilhelm Ottó Biering Ottósson
Skipting hjá Þór í hálfleik
45. mín
Hálfleikur
Gestirnir með forystuna í hálfleik. Komum með seinni hálfleikinn að vörmu spori.
45. mín
Gult spjald
Vilhelm Ottó Biering Ottósson
45. mín
Tveimur mínútum bætt við fyrri hálfleikinn
41. mín
Hornspyrna frá Marc Sörensen. Boltinn fýkur yfir markið. Þórsarar hafa ekki náð að nýta sér að vera með vindi í fyrri hálfleiknum.
37. mín
Ingimar Arnar í góðum séns en ekki nógu áræðinn gegn Marc Mcausland og tekur skot úr erfiðu færi sem Vilhelm Þráinn á ekki í vandræðum með.
30. mín
Darraðadans inn á teig ÍR endar með því að brot er dæmt á Þórsara.
28. mín
Alexander Már Þorláksson með skalla en boltinn framhjá. Fín sókn hjá Þórsurum.
22. mín
Gult spjald
Renato Punyed Dubon
Fer í Aron Einar16. mín
Bjarki Þór er að fá hættulegustu færi Þórsara! Aukaspyrna frá Marc Sörensen inn á teiginn og Bjarki kemur fætinum í boltann en hann fer rétt framhjá.
13. mín
MAAAAAARK!
Hákon Dagur Matthíasson
Gestirnir eru komnir yfir! Hákon fær sendingu í gegnum vörn Þórs og setur boltann af öryggi framhjá Aroni Birki!8. mín
Liðin skiptast á að sækja en ná ekki að binda endahnútinn á sóknirnar.
3. mín
Marteinn Theodórsson í góðu færi en Aron Birkir ver í horn. Ekkert kemur út úr því.
3. mín
Bjarki Þór Viðarsson setur boltann yfir. Fyrirgjöf úr aukaspyrnu og hann teygir sig í boltann en hann fer yfir
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir koma þessu af stað
Fyrir leik
Aðstæðurnar
Jæja, það styttist óðum í leikinn. Það ere ansii hvasst svo það er athyglisvert að sjá hvernig þessi leikur mun spilast!
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Aron Einar Gunnarsson þurfti að fara af velli vegna meiðsla í 5-1 tapi Þórs gegn Leikni í síðustu umferð. Hann er klár í slaginn og er með fyrirliðabandið eins og í undanförnum leikjum. Það eru þrjár breytingar á liðinu. Aron Kristófer Lárusson tekur út leikbann en Birgir Ómar Hlynsson og Einar Freyr Halldórsson setjast á bekkinn. Vilhelm Ottó Biering Ottósson, Ingimar Arnar Valdimarsson og Bjarki Þór Viðarsson koma inn í liðið.
Það er ein breyting á liði ÍR sem vann Fjölni í síðustu umferð. Hákon Dagur Matthíasson kemur inn fyrir Bergvin Fannar Helgason.
Það er ein breyting á liði ÍR sem vann Fjölni í síðustu umferð. Hákon Dagur Matthíasson kemur inn fyrir Bergvin Fannar Helgason.
Fyrir leik
Tríóið
Gunnar Oddur Hafliðason verður með flautuna í dag. Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage og Ronnarong Wongmahadthai verða honum til aðstoðar og Bragi Bergmann er eftirlistmaður KSÍ.


Fyrir leik
Dramatík
Kjartan Kári Halldórsson leikmaður FH spáði í umferðina. Hann spáir dramatískum útisigri.
Þór 0 - 1 ÍR
Það er búin að vera brekka hjá Þórsurum, gjallarhornið í stúkunni hefur ekki virkað í sumar og ÍR skorar winner á 90 þar sem Gils Gíslason setur hann, 0-1 fyrir ÍR.

Þór 0 - 1 ÍR
Það er búin að vera brekka hjá Þórsurum, gjallarhornið í stúkunni hefur ekki virkað í sumar og ÍR skorar winner á 90 þar sem Gils Gíslason setur hann, 0-1 fyrir ÍR.

Fyrir leik
Nýliðarnir sterkir
Heimamenn í Þór hafa að litlu að keppa en samt sem áður ef allt fer á versta veg getur liðið fallið. ÍR er nýliði í deildinni og getur komist upp í umspilssæti með sigri hér í dag.
Fyrir leik
Góðan daginn
Verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Þórs og ÍR í Lengjudeildinni. Leikurinn er liður í 20. umferð og fer fram á VÍS vellinum á Akureyri.


