Leik lokið!
Sannfærandi sigur Blika
Breiðablik fá eitt gott færi rétt fyrir leiks lok sem fer í stöngina. En ungverjinn flautar þennan leik af.
Viðtöl og skýrsla koma inn á síðuna í kvöld.
Þangað til næst, takk fyrir mig.
90. mín
+2 mínútur í uppbótartíma
89. mín
Agla María tekur spyrnuna inn á teiginn sem FC Minsk verjast mjög vel.
88. mín
Breiðablik að fá hornspyrnu!
88. mín
Maður leiksins valinn
Vallarþulur Blika tilkynnir mann leiksins sem er að sjálfsögðu Katrín Ásbjörnsdóttir. Þrenna og stoðsending!
87. mín
264 áhorfendur á leiknum
85. mín
FC Minsk í færi!
Viktoriya Tikhan kemst skyndilega ein í gegn og nær fínu skoti á markið sem Telma ver aftur fyrir í horn.
Telma búinn að þurfa að verja núna tvisvar sinnum í seinni hálfleik mjög vel.
79. mín
Þrenna í hús!
Katrín Ásbjörnsdóttir (stoðsending: Margrét Lea Gísladóttir)
Varamaðurinn, Margrét Lea, gerir glæsilega og kemur með góðan bolta í gegn á Katrínu. Katrín átti eftir að gera helling en hún gerir frábærlega inn á teignum áður en hún klárar framhjá Alenu að lokum. Þá er þetta held ég komið hjá Blikum. Það þarf mjög mikið að gerast svo þær missi þetta niður.78. mín
InnAliaksandra Samoilava
ÚtLiana Miroshnichenko
76. mín
Þvílík varsla - Upp úr engu
Lonica Tsanwane á skot í fyrsta sem Telma ver stórglæsilega í þverslána.
Þetta kom bara gjörsamlega upp úr engu!
74. mín
Leikurinn hefur róast. Það hefur verið mjög lítið um almennileg færi í þessum seinni hálfleik. Meira bara um að halda í boltann.
Blikar hafa greinilega róað tempóið niður líka. Margar breytingar og það á greinilega ekki að vera að sprengja sig í þessum seinni hálfleik.
71. mín
InnMargrét Lea Gísladóttir
ÚtSamantha Rose Smith
71. mín
InnMikaela Nótt Pétursdóttir
ÚtHeiða Ragney Viðarsdóttir
67. mín
InnYelizaveta Iskarava
ÚtDziyana Bakum
67. mín
Samantha tekur spyrnuna inn á teiginn sem Minsk-konur skalla frá.
66. mín
Breiðablik að fá hornspyrnu!
60. mín
InnAgla María Albertsdóttir
ÚtVigdís Lilja Kristjánsdóttir
60. mín
InnJakobína Hjörvarsdóttir
ÚtBarbára Sól Gísladóttir
54. mín
Frábær byrjun hjá Breiðablik!
Katrín Ásbjörnsdóttir (stoðsending: Samantha Rose Smith)
Samantha keyrir upp hægri kantinn, kemur inn á teiginn og sendir boltann fyrir markið. Þar er Katrín mætt á réttan stað og klárar. Hennar annað mark í dag og líklega, já líklega, er hún að klára þetta fyrir Breiðablik.51. mín
Breiðablik að fá hornspyrnu!
Samantha með skot inni á teignum sem er varið aftur fyrir í horn!
50. mín
Það ringdi inn mörkum í fyrri hálfleik








46. mín
Seinni er hafinn!
Minsk hefja hér leik á ný!
46. mín
InnLonica Vasco Tsanwane
ÚtLada Pashkouskaya
46. mín
InnViktoriya Tikhan
ÚtMiroslava Zubko
46. mín
InnAnhelina Hiras
ÚtUlyana Asaula
46. mín
InnHrafnhildur Ása Halldórsdóttir
ÚtAndrea Rut Bjarnadóttir
45. mín
Blikar leiða með þremur mörkum í hálfleik
Ungverjinn bætir engu við.
Mjög góð frammistaða hjá Breiðablik í fyrri hálfleik og þær leiða með þremur mörkum þegar liðin ganga til búningsklefa.
Tökum okkur korterspásu og mætum svo til baka að vörmu spori!
41. mín
Frá miðju!
Heiða Ragney tekur aukaspyrnu frá miðju sem fer í þverslána. Katrín Ásbjörns er þá vakandi og nær frákastinu sem Alena nær þó að verja.
39. mín
Einmitt!
Liana Miroshnichenko
Blikarnir tapa boltanum rétt fyrir utan vítateiginn sinn. Liana fær boltann og lætur vaða á markið. Fínasta skot sem Telma er mjög nálægt að verja. Þeirra fyrsta skot á markið held ég bara!34. mín

Þær eru að ganga á lagið!
Samantha Rose Smith (stoðsending: Katrín Ásbjörnsdóttir)
Eins og ég sagði strax eftir fyrsta markið verður þetta líklegast stórsigur Breiðabliks. Andrea Rut kemur boltanum á Katrínu. Katrín gerir glæsilega og kemur honum til hliðar á Samönthu. Hún gerir einnig stórkostlega áður en hún klárar vel framhjá Alenu í marki FC Minsk. Þetta stefnir í stórsigur!

33. mín
Stöngin!
Vigdís Lilja fær boltann inni á teignum, snýr og tekur skot sem fer í stöngina og út í innkast. Það sáu allir þennan bolta inni!
31. mín
Samantha tekur spyrnuna inn á teiginn sem Heiða Ragney skallar yfir.
30. mín
Breiðablik að fá hornspyrnu!
26. mín
Þrjú núll takk fyrir!
Andrea Rut Bjarnadóttir (stoðsending: Ásta Eir Árnadóttir)
Ásta Eir kemur með langan bolta upp völlinn á Andreu sem gerir vel inni á teignum og klárar svo í markið framhjá Alenu. Blikarnir ganga bara á lagið!
24. mín
Breiðablik að fá hornspyrnu!
23. mín
Katrín vakandi í teignum!
Katrín Ásbjörnsdóttir (stoðsending: Samantha Rose Smith)
Samantha lætur vaða fyrir utan teig en skotið fór beint á Alenu. Hún er hins vegar í stökustu vandræðum með skotið sem hún missir út í teiginn. Þar er Katrín Ásbjörns mætt og klárar. Katrín með mark og stoðsendingu!
23. mín
Leikmenn Breiðabliks spila með sorgarbönd
Í dag eru leikmenn Breiðabliks með sorgarbönd til minningar um Bryndísar Klöru sem lést á dögunum á Landspítalanum eftir stunguáras á menningarnótt.
20. mín
Samantha Smith með alls ekki galna tilraun af löngu færi sem fer yfir.
19. mín
Rétt yfir!
Barbára Sól kemur með góðan bolta inn á teiginn sem ratar á Katrínu Ásbjörns. Hún skallar hins vegar boltann rétt yfir markið. Þarna átti hún að gera betur!
16. mín
Vigdís Lilja tekur spyrnuna inn á teiginn sem Heiða skallar í átt að markinu en hvíta rússarnir hreinsa.
16. mín
Breiðablik að fá hornspyrnu!
14. mín
Heiða Ragney kemur með góða sendingu í gegn á Katrínu sem er í baráttu við Kristinu. Kristina gerir vel í að komast í boltann og Katrín nær ekki að gera sér mat úr þessu.
9. mín
Minsk í færi!
Dziyana Bakum vinnur boltann á miðjum vellinum og keyrir af stað. Hún kemur með góða sendingu í gegn á Daniel Cuta Cidalia sem er komin ein á móti Telmu en skotið hennar fer framhjá.
Þarna slapp Breiðablik með skrekkinn. Einn sofandaháttur og svona getur gerst!
8. mín
Rétt framhjá!
Vigdís Lilja með annaðhvort sendingu eða slakt skot sem fer ratar ekki á markið. Katrín Ásbjörns er mætt fyrir markið og nær snertingu áður en boltinn fer útaf en hún nær ekki að stýra boltanum á markið.
Blikarnir byrja þetta af krafti!
5. mín
Hversu stórt verður þetta?
Miðað við hvernig þessi leikur hefur byrjað verður þetta göngutúr í garðinu hjá Breiðablik. Þær liggja í færum á meðan Minsk-konur komast ekkert í boltann.
Stefnir í stóran sigur með þessu áframhaldi en við bíðum og sjáum.
2. mín
EKKI LENGI GERT!
Vigdís Lilja Kristjánsdóttir (stoðsending: Katrín Ásbjörnsdóttir)
Kristín Dís tekur innkast inn á teiginn sem Katrín skallar inn í teig. Þar er Vigdís Lilja mætt og klárar glæsilega framhjá Alenu í markinu. Þetta virkaði allt saman mjög auðvelt en 1-0 er það!
1. mín
Breiðablik fær fyrstu hornspyrnu leiksins!
1. mín
Þetta er komið af stað!
Það er Vigdís Lilja sem á upphafssparkið.
Blikarnir leika í sinni hefðbundni grænu treyju, hvítu stuttbuxum og hvítu sokkum.
Minsk leika í treyjum frá Jako sem er bleik og grá, gráum stuttbuxum og gráum sokkum.
Fyrir leik
Styttist
Þá ganga liðin og dómarar leiksins til vallar og klappa í átt að áhorfendunum.
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi!
Nik Chamberlain, þjálfari Breiðabliks, gerir enga breytingu frá 4-0 sigrinum gegn Víking Reykjavík á dögunum. Enda afhverju að breyta sigurliði?
Samkvæmt UEFA stilla Blikar sér upp í 4-3-3 en það er líklegt að þær verði í 4-1-2-1-2 í leiknum. Svona stillir UEFA Blikaliðinu upp:
Telma er áfram í markinu; Kristín Dís, Elín Helena, Ásta Eir (fyrirliðinn) og Barbára Sól spila saman í fjögurra manna vörn; Andrea Bjarna, Heiða Viðars og Karítas Tómasar eru saman á miðjunni; Vigdís Lilja, Katrín Ásbjörns og Samantha Smith eru fremstu þrjár.
Líkt og áður sagði byrjar leikurinn klukkan 19:00 og fer fram á Kópavogsvelli.
Fyrir leik
Þriðja liðið
Dómarateymið kemur bæði frá Ungverjalandi og Ítalíu. Hún Katalin Sipos verður á flautunni í kvöld en hún kemur frá Ungverjalandi. Samlandi hennar, Laura Emerencia Szabó, og ítalinn, Veronica Martinelli, verða Katalinu til halds og trausts. Deborah Bianchi er fjórði dómari en hún kemur frá ítalíu.


Fyrir leik
FC Minsk
Andstæðingar Breiðabliks koma frá Hvíta Rússlandi og spila á vellinum FC Minsk Stadium sem tekur 2000 manns.
Félagið keppti upphaflega í hvítrússnesku úrvalsdeildinni sem Minchanka-BGPU áður en það varð til kvennaliðið FC Minsk árið 2010. Árið 2011 unnu þær landsbikarinn, sinn fyrsta titil, og skömmu síðar komust þær upp í efsta sæti deildarinnar.
Árið 2013 unnu þær meistaratitilinn í fyrsta skipti og vann einnig alla 26 leiki deildarinnar ásamt öðrum bikarnum. Þetta tryggði liðinu þátttökurétt í Meistaradeild kvenna í fyrsta skipti. Árið 2014 tókst félaginu að vinna tvöfalt aftur.
Fyrir leik
Blikarnir tróna á toppnum
Þegar einn leikur er búinn af Bestu deildinni eftir tvískiptinguna er Breiðablik á toppnum þar sem þær unnu Víking Reykjavík en Valur gerði jafntefli gegn Þrótti.
Núna leika þær risaleik gegn hvíta rússneska liðinu FC Minsk í forkeppni Meistaradeildar kvenna. Það verður skemmtilegt og áhugavert að fylgjast með Blikunum spila í kvöld.

Fyrir leik
Smárinn heilsar!
Heilir og sælir ágætu lesendur og veriði hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu útsendingu fré leik Breiðabliks og FC Minsk í forkeppni Meistaradeildar kvenna. Leikurinn byrjar klukkan 19:00 og fer fram á Kópavogsvellinum.








