Leik lokið!
95. mín
Rautt spjald
Elmar Kári Enesson Cogic
95. mín
Hann klúðrar!!
Elmar Kári Enesson Cogic
Skýtur til vinstri í góðri hæð fyrir Halldór. En tek ekkert af honum, góð markvarsla!94. mín
Elmar Kári sólar einn, leggur boltan á Sævar inn á teig sem er svo rifinn niður aftan frá.
93. mín
VÍTI FYRIR AFTURELDINGU!!
93. mín

Jöfnunarmark Fjölnis og 2-1 markið hjá Aftueldingu fagnað hér í myndum


92. mín
InnRafael Máni Þrastarson
ÚtJónatan Guðni Arnarsson
90. mín
ÞVÍLÍKT MARK!!!!
Sigurpáll Melberg Pálsson
Afturelding var aðeins búnir að vera liggja á Fjölnismönnum. Boltinn berst þá til Sigurpáls alveg vel fyrir utan teig, hann lætur bara vaða og djöfull hittir hann boltann. Boltinn beygist upp í fjærhornið, geggjað slútt.89. mín
Allt galopið
Heimamenn setja bara einfaldan bolta fram og Aron Jóh er allt í einu bara sloppinn í gegn. Hann er einn gegn markmanni en skotið er ekki nógu gott og Halldór ver.
88. mín
Fjölnismenn fá aukaspyrnu. Þeir lyfta boltanum inn í teiginn og úr verður smá klafs. Guðmundur nær þá boltanum til sín inn í teignum í virkilega góðu færi. Hann tekur skotið en rétt framhjá.
85. mín
Gult spjald
Guðmundur Karl Guðmundsson
84. mín
Axel Freyr kemur inn á teiginn frá hægri kantinum og tekur bara skotið. Það er full laust og frekar beint á Jökul.
81. mín
Gult spjald
Sævar Atli Hugason
Full groddaraleg tækling.77. mín
InnPatrekur Orri Guðjónsson
ÚtArnór Gauti Ragnarsson
77. mín
InnSævar Atli Hugason
ÚtBjartur Bjarmi Barkarson
75. mín
InnVilhjálmur Yngvi Hjálmarsson
ÚtDagur Austmann Hilmarsson
72. mín
Gult spjald
Sigurvin Reynisson
68. mín
Elmar Kári takk fyrir!!
Elmar Kári Enesson Cogic
Elmar fær boltan fyrir utan teig, tekur eina snögga hreyfingu til að búa sér til pláss og neglir boltanum í nærhornið. Virkilega gott skot!66. mín
InnBjarni Þór Hafstein
ÚtDagur Ingi Axelsson
66. mín
InnAxel Freyr Harðarson
ÚtDaníel Ingvar Ingvarsson
64. mín
Það er allt orðið jafnt!!
Daníel Ingvar Ingvarsson (stoðsending: Júlíus Mar Júlíusson)
Júlíus með langan bolta á hægri kantinn þar sem Daníel er. Daníel tekur af stað og keyrir inn á teig, hann er með varnarmann í sér allan tíman en hann nær skotinu úr þröngu færi og klárar virkilega vel!62. mín
Georg aftur að koma upp hægri kantinn, hann leggur boltan fyrir Elmar sem er í góðu færi en hann tekur skotið í varnarmann.
60. mín
Georg með fína fyrirgjöf frá hægri kantinum. Hrannar stekkur upp í skallaboltan en nær ekki alveg nógu góðri snertingu, Arnór Gauti nær þá til boltans, tekur skotið í varnarmann og framhjá.
Afturelding á þá horn sem þeir lyfta inn í teig. Sigurpáll nær skallanum í góðu færi en rétt yfir markið.
Afturelding á þá horn sem þeir lyfta inn í teig. Sigurpáll nær skallanum í góðu færi en rétt yfir markið.
57. mín
Fjölnismenn mað aukaspyrnu við hlið teigsins. Þeir lyfta boltanum inn í teiginn og úr verður smá klafs. Boltinn skoppar þá fyrir Dag Inga sem reynir skotið í fyrsta en boltinn lengst yfir markið.
54. mín
Afturelding fær aukaspyrnu við hægra horn teigsins. Elmar tekur bara skotið úr spyrnunnni, fast skot en frekar beint á Halldór.
53. mín
Georg gerir ótrúlega vel á hægri kantinum, fer framhjá sínum manni og keyrir inn á teig. Hann leggur svo boltan á Elmar sem er í dauðafæri en hann er alltof lengi að hugsa og Fjölnismenn ná að hreinsa.
46. mín
Seinni hálfleikurinn er hafinn!
45. mín
Hálfleikur
Afturelding leiðir í hálfleik nokkuð verðskuldað. Þetta var samt bara frekar tíðindalítill hálfleikur, ekki mikið um færi. Vondandi fáum við meira af því í seinni.
45. mín
Gult spjald
Arnór Gauti Ragnarsson
Arnór er að elta langan bolta. Halldór er á undan honum í boltan og þá kemur Arnór og klessir á hann.42. mín
Máni tekur skotið úr spyrnunni. Það er frekar beint á Jökul sem reynir að grípa boltan, hann missir hann fyrst en dettur svo ofan á boltan og reddar sér.
41. mín
Fjölnismenn fá aukaspyrnu á hættulegum stað. Frekar ódýrt af mínu mati.
39. mín
Þetta átti mögulega að vera víti!
Afturelding á horn og Aron Jóh lyftir boltanum inn í teig. Sigurpáll ætlar upp í skallaboltan en fær væna bakhrindingu frá Baldvin.
Þórður sleppti þessu í þetta skiptið.
Þórður sleppti þessu í þetta skiptið.
33. mín
Gult spjald
Elmar Kári Enesson Cogic
Fyrir dýfu, þetta finnst mér heldur illa vegið að honum. Hann er þá kominn í leikbann. Þetta leikbann mun hann þá taka út í úrlsitaleiknum ef Afturelding kemst þangað, þar sem aganefndin hittist ekki næst fyrrr en næsta þriðjudag. Svakalega blóðugt.31. mín
Reynir tekur eina neglu fyrir utan teig sem skýst af varnarmönnum og aftur fyrir.
24. mín
Heimamenn vilja víti!!
Hrannar geysist upp kantinn, kemur inn á teiginn og lendir í baráttu við Júlíus. Hrannar fellur í grasið í þeirri baráttu og biður um víti en Þórður segir honum bara að standa upp.
Rétt dæmt sýndist mér, Júlíus einfaldlega bara sterkari.
Rétt dæmt sýndist mér, Júlíus einfaldlega bara sterkari.
21. mín



Aron fagnar marki sínu




19. mín
Flott sókn hjá Aftureldingu!
Oliver lyftir boltanum út á vinstri kantinn þar sem Aron Elí er kominn upp. Aron setur fastan, lágan bolta fyrir markið þar sem Elmar Kári er á sprettinum á eftir honum. Elmar reynir að renna sér í boltan en Júlíus verst honum vel og nær að pota í boltan á undan honum.
15. mín
Langur bolti fram hjá Fjölni sem Sigurpáll ætti að ráða við, hann misreiknar hinsvegar aðeins flugið á boltanum þannig Daníel kemst í hann og hann fer upp kantinn. Fyrirgjöfin hjá honum fer svo bara bein í Sigurpál og það er horn.
Fjölnismenn lyfta boltanum inn í teig úr horninu og ná góðum skalla á markið úr því en Jökull ver vel.
Fjölnismenn lyfta boltanum inn í teig úr horninu og ná góðum skalla á markið úr því en Jökull ver vel.
8. mín
Afturelding á hornspyrnu og það er Elmar sem tekur. Hann lyftir boltanum inn í teig og Sigurpáll nær skallanum en framhjá markinu flýgur boltinn.
7. mín
Guðmundur Karl tekur skotið fyrir utan teig, í fínni stöðu en boltinn fer vel framhjá.
5. mín
Smá hræðsla fyrir heimamenn
Langur bolti fram og Máni eltir boltan inn í teig. Jökull kemur vel út úr markinu og hrifsar boltan. Þeir skella svo saman þannig að Jökull missir boltan úr höndum sér en áður en Máni getur reynt að gera eitthvað færi úr þessu þá er flaggað rangstöðu.
2. mín
Þetta tók ekki langan tíma!!
Aron Jóhannsson (stoðsending: Hrannar Snær Magnússon)
Hrannar geysist upp vinstri kantinn á fullum hraða og það kemst enginn nálægt honum. Hann færir sig innar og á teiginn þegar hann tekur sendinguna til baka út í teig þar sem Aron lúrir og lúðrar boltanum upp í innanvert þaknetið!1. mín
Leikur hafinn
Þórður flautar leikinn af stað!
Fyrir leik
Lesendur telja Aftureldingu sigurstranglegri
Hvort liðið kemst á Laugardalsvöll? #fotboltinet
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) September 18, 2024
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar gerir eina breytingu á sínu liði sem vann ÍR 3-0 í loka umferð Lengjudeildarinnar. Það Er Bjarni Páll Linnet Runólfsson sem fær sér sæti á bekknum en Georg Bjarnason kemur inn í liðið fyrir hann.
Úlfur Arnar Jökulsson þjálfari Fjölnis gerir einnig eina breytingu á sínu liði en Fjölnir tapaði 4-0 fyrir Keflavík sínum síðasta leik. Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson fær sér sæti á bekknum en Dagur Austmann kemur inn í liðið fyrir hann.
Úlfur Arnar Jökulsson þjálfari Fjölnis gerir einnig eina breytingu á sínu liði en Fjölnir tapaði 4-0 fyrir Keflavík sínum síðasta leik. Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson fær sér sæti á bekknum en Dagur Austmann kemur inn í liðið fyrir hann.

Fyrir leik
Dómarinn
Þórður Þorsteinn Þórðarson verður með flautuna í þessum leik en honum til aðstoðar verða Guðmundur Ingi Bjarnason og Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage.
Varadómari er Guðmundur Páll Friðbertsson og eftirlitsmaður KSÍ er Einar Örn Daníelsson.
Varadómari er Guðmundur Páll Friðbertsson og eftirlitsmaður KSÍ er Einar Örn Daníelsson.

Fyrir leik
Keflavík vann í hinum leiknum
ÍR og Keflavík áttust við í gær í hinum undanúrslitaleiknum í gær. Keflavík vann þann leik 4-1. Kári Sigfússon skoraði 2 mörk í þeim leik en hinir markaskorararnir voru Ásgeir Helgi Orrason og Mihael Mladen. Hákon Dagur Matthíasson skoraði mark ÍR-inga.
Það er því ansi líklegt að Keflavík muni mæta því liði sem vinnur einvígið milli liðanna sem mætast í kvöld.
Það er því ansi líklegt að Keflavík muni mæta því liði sem vinnur einvígið milli liðanna sem mætast í kvöld.

Fyrir leik
Elvar Geir skoðaði leikinn
Elvar Geir ritstjóri fótbolti.net fór yfir leikinn og helstu atriðin sem tengjast honum í þessari grein.
Fyrir leik
Undanúrslit umspilsins
Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Aftureldingar og Fjölnis í undanúrslitum umspilsins í Lengjudeild karla.
Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður spilaður á Malbikstöðinni að Varmá
Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður spilaður á Malbikstöðinni að Varmá






Skýrsla og viðtöl væntanleg seinna í kvöld.
Það kom rautt spjald á loft eftir að búið var að flauta, veit ekki á hvern en það eru margir í hóp að kítast þarna. Það verður spurt að þessu í viðtölunum í kvöld.