Fotbolti.net
Besta deildin
@HilmarjokullHilmar Jökull Stefánsson
Hilmar Jökull Stefánsson
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Kópavogsvöllur
Dropar inn á milli en annars ágætt
Breiðablik
Breiðablik
4 - 2
FH
FH
0 - 15' Elísa Lana SigurjónsdóttirSamantha Rose Smith 20'1 - 1Andrea Rut Bjarnadóttir 31'2 - 1Samantha Rose Smith 33'3 - 13 - 236' Hildigunnur Ýr BenediktsdóttirKatrín Ásbjörnsdóttir 63'4 - 2
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Leik lokið!
Blikakonur vinna
Blikar fara með 4-2 sigur af hólmi og halda í toppsætið fyrir næstu helgi.
90. mín
Skot í stöng!
+2 Selma Sól gerir vel í að koma sér í færi en skot hennar fer í stöngina á marki Blika.
90. mín
Þrjár í uppbót
90. mín
Birta og Margrét Lea
Halló halló. Skjóta á markið! Birta fer framhjá fullt af varnarmönnum og hefði getað skotið miklu fyrr. Kemur sér í vesen og nær skoti sem berst á Margréti Leu en hún hefði þurft að taka boltann í fyrsta. Blikar hættulegri.
89. mín
Skot framhjá
Birta Georgs keyrir í átt að teig FH. Nær skoti í gegnum klof varnarmanns en framhjá er það.
85. mín
Skot í stöng!
Hrafnhildur Ása keyrir upp að teig FH og tekur þrumuskot í utanverða stöngina. Boltinn berst á Margréti Leu sem á skot yfir.
84. mín
Ásta mikið meidd?
Það væri högg fyrir Blikakonur ef fyrirliðinn Ásta Eir er meidd næstu helgi þegar þær grænklæddu mæta í heimsókn á Hlíðarenda.
FH
82. mín
InnSelma Sól Sigurjónsdóttir
ÚtBerglind Freyja Hlynsdóttir
FH búnar með skiptingarnar
Breiðablik
81. mín
InnMargrét Lea Gísladóttir
ÚtÁsta Eir Árnadóttir
Fyrirliðinn og framherjinn af velli
Ásta meidd og Katrín búin að gefa allt í þetta.
Breiðablik
81. mín
InnBirta Georgsdóttir
ÚtKatrín Ásbjörnsdóttir
Fyrirliðinn og framherjinn af velli
Ásta meidd og Katrín búin að gefa allt í þetta.
78. mín
Ásta líklega meidd
Liggur hér eftir og þetta lítur ekki vel út fyrir Blika. FH hefja leik aftur og missa síðan boltann í markspyrnu fyrir Blika.
FH
76. mín
InnErla Sól Vigfúsdóttir
ÚtBirna Kristín Björnsdóttir
75. mín
Andrea með stæla
Andrea Rut kemst ein í gegn en reynir að sóla Aldísi í stað þess að skjóta og Aldís étur Andreu einfaldlega.
73. mín
Þetta var dauðafæri
Sammy með glæsilega fyrirgjöf inn á teig FH þar sem Katrín stendur ein og óvölduð en á einhvern ævintýralegan hátt tekst henni að skalla boltann yfir markið.
Breiðablik
73. mín
InnHrafnhildur Ása Halldórsdóttir
ÚtAgla María Albertsdóttir
Agla leikið býsna vel
Þrátt fyrir að hún hafi ekki komið með beinum hætti að neinu marki þá hefur Agla verið góð.
72. mín
Jááájáaaa
Þetta er bara svona já, smá staðnað. Heiða Ragney var að reyna hérna áhættusækna sendingu inn í teig FH en boltinn fer yfir.
67. mín
Lítið að frétta
Ekki mikið í gangi eftir fjórða mark Blikakvenna.
Breiðablik
63. mín
Glæsimark

Katrín Ásbjörnsdóttir (stoðsending: Samantha Rose Smith)

Samantha keyrir upp hægri kantinn og hvorki Hanna Kallmaier né Jónína Linnet ná að stöðva för hennar. Hún nær svo góðri sendingu út í teiginn þar sem Katrín gerir mjög vel í að skora þar sem það voru leikmenn FH í kringum hana. 4-2 Blikar!
63. mín
Hörkufæri
Agla María fær boltann í gegn frá Andreu að mér sýndist, tekur snertingu inn á teig en skotið hennar er yfir.
FH
60. mín
InnHanna Kallmaier
ÚtMargrét Brynja Kristinsdóttir
Guðni hristir upp í þessu
FH
60. mín
InnThelma Karen Pálmadóttir
ÚtSnædís María Jörundsdóttir
Guðni hristir upp í þessu
FH
60. mín
InnHildur Katrín Snorradóttir
ÚtValgerður Ósk Valsdóttir
Guðni hristir upp í þessu
59. mín
Hornspyrna eftir hornspyrnu
Blikar með tvær hornspyrnur í röð og er sú síðari mun hættumeiri. Mikið klafs.
Breiðablik
55. mín
InnKaritas Tómasdóttir
ÚtVigdís Lilja Kristjánsdóttir
Vigdís leikið vel
Vigdís hefur átt mjög góðan leik. Sammy fer þá upp á kantinn og Karitas inn á miðjuna.
54. mín
Horn
Agla fær boltann frá Vigdísi sem gerði vel í undirbúningnum og Agla keyrir upp að endalínu og vinnur horn. Agla María tekur það sjálf. Hornið er mjög gott inn á mitt mark FH. Barbára Sól með lélegan skalla yfir markið.
Breiðablik
50. mín
50/50

Samantha Rose Smith

Sammy og Vigdís Edda lenda saman en mér sýndist þetta bara vera barátta. Vigdís liggur eftir og fær aðhlynningu á meðan að Sammy stendur upp og fær gult spjald. Veit ekki með þetta.
48. mín
ANDREA RUT
Leikur sér að fjórum varnarmönnum FH og á held ég þrjú skot þar sem það síðasta glymur í stönginni. FH geysast beint í sókn en ekkert verður úr því.
47. mín
Engin mætt
Katrín með góða sendingu út í teig FH en enginn leikmaður BLika á stóru svæði í teignum. Verða að fylla teiginn betur í svona stöðum.
46. mín
Aftur í gang
FH konur sparka seinni hálfleik af stað.
45. mín
+2 Hörku fyrri hálfleikur að baki. 3-2 fyrir heimakonum í Breiðablik.
45. mín
Skot frá Andreu
+1 Blikakonur spila sig inn á teiginn og Andrea tekur fast skot sem fer beint á Aldísi.
45. mín
2 í uppbót
Ekki miklar tafir í fyrri hálfleik
45. mín
FH geysast beint í sókn
FH konur náðu að spila sig beint upp völlinn og að lokum á Hildigunnur fínt skot en Telma vel á verði og grípur boltann.
44. mín
Blikakonur betri sem áður
Sammy með fyrirgjöf frá vinstri eftir gott samspil við Katrínu. Agla María rétt missir af boltanum.
41. mín
Margrét Brynja með skot
Fær alla Heiðmörk til að hlaupa í fyrir framan teig Blika og tekur svo skot af svona 28 metrum og Telma skutlar sér þægilega í það.
39. mín
Rangstaða
Sammy brýst inn á teiginn og nær þessari líka þrumufyrirgjöf á Vigdísi sem þarf ekki nema að setja löppina í boltann og inn fer hann. En hún er dæmd rangstæð. Ekki seldur á að þetta sé réttur dómur en hvað um það.
39. mín
Trylltur leikur
Það eru komin 5 mörk í þetta nú þegar og leikurinn hefur haft yfirbragð borðtennisleiks undanfarnar mínútur. Stórskemmtilegt áhorfs.
FH
36. mín
Þvílíkt mark!

Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir (stoðsending: Margrét Brynja Kristinsdóttir)

Margrét Brynja geysist upp hægri kantinn eins og oft áður. Hún sendir boltann á Hildigunni sem er rétt um 5 metrum frá vítateig Blika. Hún leggur boltann fyrir sig og á þetta þrumuskot með vinstri í bláhornið niðri. 3-2 Blikar!
Breiðablik
33. mín
Blikakonur komnar í gang!

Samantha Rose Smith (stoðsending: Vigdís Lilja Kristjánsdóttir)

Þarna kom það þriðja strax. Vigdís nær að snúa með mann í bakinu og setja boltann vel inn á Sammy. Sammy tekur erfiða snertingu en nær samt að setja boltann framhjá Aldísi. Blikar eru miklu betri þessa stundina og leika í raun á alls oddi. Fá annað færi á meðan undirritaður ritar þetta hér að ofan. 3-1 Blikar!
Breiðablik
31. mín
Þetta var fyndið

Andrea Rut Bjarnadóttir

Andrea fékk að hlaupa með boltann frá miðjuhringnum alla leið inn í teig FH-inga þar sem hún fór yfir á vinstri og setti boltann glæsilega framhjá Aldísi. 2-1 Blikar!
30. mín
Uuuuuuu ha?
Agla María vinnur boltann hátt á vellinum, nær glæsilegri fyrirgjöf á fjærstöngina þar sem Katrín Ásbjörns er ein og óvölduð en hún dúndrar boltanum yfir markið. Hún er ekki sátt við sjálfa sig.
29. mín
Vigdís í færi!
Vigdís Lilja fær boltann eftir klafs og nær að pota boltanum framhjá Aldísi sem teygir sig í boltann fyrir aftan sig og kemur í veg fyrir mark.
27. mín
Andrea með skot
Andrea Rut og Katrín leika á milli sín fyrir utan teig FH. Andrea tekur flott snúningsskot sem fer rétt út fyrir stöngina.
24. mín
Rangstaða - Valur yfir
Þær fréttir voru að berast frá Víkingsvelli að Valskonur væru komnar yfir með marki frá Fanndísi Friðriks. Rangstaða dæmd á Blika sem eru betri eftir markið.
Breiðablik
20. mín
Sammy stoppar ekki

Samantha Rose Smith (stoðsending: Vigdís Lilja Kristjánsdóttir)

Kristín Dís á frábæra sendingu upp á teig FH frá miðjunni. Boltinn berst á Vigdísi Lilju sem á líka þessa laglegu sendingu inn á Sammy sem setur hann með vinstri í fjær. 1-1!
Breiðablik
16. mín
Alveg jafn augljóst

Agla María Albertsdóttir

Fór aftan í leikmann FH. Augljóst.
15. mín
Sammy og Agla
Sammy brunar frá miðjunni í átt að teig Blika, sendir út á Öglu sem nær skoti á markið. Aldís grípur það.
14. mín
Hildigunnur með skot
Hildigunnur Ýr geysist upp hægri kantinn í skyndisókn hjá FH. Keyrir inn á völlinn og tekur skot með vinstri sem fer yfir Telmu og markið.
FH
12. mín
Augljósara verður það ekki

Margrét Brynja Kristinsdóttir

Rífur í Sammy Smith sem er komin framhjá henni og stöðvar einfaldlega för hennar.
10. mín
Alvöru atlaga
Andrea með frábært hlaup af miðjunni upp að teig FH. Sendir boltann á Vigdísi Lilju sem á skot sem Aldís ver og FH hreinsa lengra. Agla María tekur skot í fyrsta úr hreinsuninni sem fer rétt yfir markið.
8. mín
Rangstaða á FH
Margrét Brynja hótar hlaupi í gegn en hún er dæmd rangstæð. Held að þetta hafi verið hárréttur dómur.
7. mín
Fyrirgjöf á fyrsta mann
Blikar spila Sammy Smith vel í gegnum hægri kantinn áður en hún tekur fyrirgjöfina fyrir, en á fyrsta mann og FH hreinsa í burtu.
FH
5. mín
Þetta var auðvelt

Elísa Lana Sigurjónsdóttir

FH stelpur fengu að valsa um í og við teig Blika áður en Elísa fékk einfaldlega að stilla upp í skot sem Telma átti aldrei mögulega á að verja. Þéttingsfast og út við stöng. 0-1 FH!
3. mín
Yfir allt
Spyrnan hjá Öglu Maríu alltof löng og í innkast hinu megin. Blikar vinna boltann aftur og liðin skiptast síðan á að halda í hann.
2. mín
Fyrsta horn leiksins
Blikar fá hornspyrnu. Agla María tekur hana.
1. mín
Af stað með þetta
Breiðablik byrja með boltann en missa hann jafn harðan. Þær sækja í átt að Sporthúsinu á meðan að FH sækja í átt að Fífunni.
Fyrir leik
Stutt í þetta
Final Countdown ómar í græjunum hérna á Kópavogsvelli og bæði lið hafa haldið til búningsherbergja. Það styttist í þetta dömur mínar og herrar.
Fyrir leik
Hvar voru allir?
Á síðasta leik hérna á Kópavogsvelli, sem var síðustu helgi, mættu einungis 127 áhorfendur. Það verður að teljast vandræðalega fáir áhorfendur miðað hvað er í húfi.
Fyrir leik
Langt á milli
Á meðan að Breiðablik tróna á toppi Bestu deildarinnar þá situr FH í 6. sæti deildarinnar, eða á botni efri hlutans. FH tapaði 2-0 síðustu helgi gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Vals á meðan að Breiðablik gjörsamlega rústaði Þór/KA 6-1.
Fyrir leik
Nýjir Íslandsmeistarar?
Breiðablik gæti orðið Íslandsmeistari í dag ef þær vinna FH og Valur tapar fyrir Víking Reykjavík, en þau lið etja kappi á sama tíma og leikurinn hérna fer fram.
Fyrir leik
Hjartanlega velkomin
Komiði sæl og blessuð og verið velkomin í þessa beinu textalýsingu frá Kópavogsvelli þar sem FH heimsækir Breiðablik í 4. umferð úrslitakeppni Bestu deildarinnar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.