Fotbolti.net
Besta deildin
@haraldur_ornHaraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Fylkir
Fylkir
Besta-deild karla - Neðri hluti
Würth völlurinn
8° léttskýjað og smá gola
1 - 3
KA
KA
0 - 11' Ásgeir Sigurgeirsson Benedikt Daríus Garðarsson 44'1 - 11 - 267' Hallgrímur Mar Steingrímsson (víti)1 - 378' Viðar Örn Kjartansson
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson

SKÝRSLAN: Fylkismenn betri en KA-menn vinna

Hvað réði úrslitum?

Þessi leikur var nokkurnvegin tímabilið hjá Fylki í hnotskurn. Þeir voru heilt yfir betra liðið en ná ekki að nýta færin sín, eina markið sem þeir skora er eitthvað svona heppnis sjálfsmark. Þeir bara geta ekki skorað mörk og KA-menn refsuðu þegar þeir fengu færi.

Bestu leikmenn

1. Steinþór Már Auðunsson (KA)

Stubburinn varði nokkrum sinnum mjög vel í fyrri hálfleik svo tók hann víti í lokin. Fylkismenn börðu að veggjum KA manna nokkuð hátt á köflum en Stubbur var alltaf tilbúinn þegar hann þurfti að grípa til.

2. Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)

Grímsi kemur inn af bekknum og sýnir gæðin sín. Kemur með gullfallega sendingu á Viðar þegar hann skorar sitt mark, og skorar örugglega af punktinum.

Atvikið

Vítaspyrnan sem Fylkir fær í lokin var nokkuð skrýtin. Dagur Ingi er að tosa í Ragnar Braga sem er á leiðinni í virkilega gott færi. Ívar Orri dæmir hagnað, þangað til Ragnar skýtur framhjá markinu. Þá dæmir Ívar víti og rautt á Dag. Ég á eftir að sjá atvikið aftur, en menn vilja meina að brotið átti sér mögulega stað fyrir utan teig til að byrja með og að Dagur hafi verið að reyna við boltann. Ef svo er þá er þetta ekki vel dæmt hjá Ívari.

Hvað þýða úrslitin?

KA-menn fara upp í 7. sætið og eru í bílstjórasætinu þegar kemur að Forsetabikarsbaráttunni. Fylkir er enn í neðsta sæti, núna 5 stigum frá öruggu sæti þegar 3 leikir eru eftir.

Vondur dagur

Eins og svo oft áður, sóknarlína Fylkis. Árbæingar voru að skapa sér góðar stöður og fín færi, en það bara gengur ómögulega fyrir þá að skora mörk.

Dómarinn - 6

Heilt yfir ágætlega dæmdur leikur, en ef þetta er eins og ég lýsti í "atvikinu" hér til vinstri, þá eru þeir dregnir niður um 2 stig.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.