SKÝRSLAN: KR vinnur í þýðingarminnsta leik tímabilsins
Hvað réði úrslitum?
Eins og svo oft áður í sumar voru Fylkismenn sprækir. Þeir misstu hinsvegar mann af velli réttilega í fyrri hálfleik og voru þegar 1-0 undir á þeim tímapunkti. Eftir það var þetta leikur sem enginn mun muna eftir. KR betra liðið en Fylkismenn ógnuðu smá í skyndisóknum en bara ekki nóg.
Bestu leikmenn
1. Aron Sigurðarson (KR)
Aron var helsta ógn KR í sóknarleiknum. Hann skoraði mark KR-inga sem var virkilega gott skot með marga varnarmenn fyrir framan sig.
2. Ólafur Kristófer Helgason (Fylkir)
Ólafur var með nokkrar góðar vörslur í leiknum og hélt þessu jöfnu lengi vel. Góð frammistaða hjá þessum unga markverði.
Atvikið
Rauða spjaldið á Nikulás Val. Nikulás fær boltan frá markmanni sínum rétt fyrir utan teig. Hann er svo bara eitthvað að dútla með boltan á meðan Birgir Steinn mætir í pressuna. Birgir stelur bara boltanum af honum og er þá sloppinn einn gegn markmanni en Nikulás kastar sér á eftir honum og tekur hann niður.
Þetta var bara hárrétt hjá dómaranum og eftir þetta var engin spurning hver úrslitin myndu verða.
Hvað þýða úrslitin?
KR á ennþá séns á 7. sætinu en þurfa að treysta á að KA tapi í loka umferðinni og að KR vinni. Fylkir féll í síðustu umferð þannig úrslitin þýða ekkert fyrir þá.
Vondur dagur
Nikulás Val lauk sínu móti í kvöld með rauða spjaldinu. Virkilega klaufalegt hjá honum og rétt að hann fékk þetta spjald á sig.
Dómarinn - 8
ÞÞÞ og hans teymi með góðan leik. Rauða spjaldið rétt og annað í leiknum bara nokkuð gott.




