Fotbolti.net
Kári Snorrason
Kári Snorrason
Sambandsdeildin
Kópavogsvöllur
Það hefur aðeins lægt en þetta eru engar toppaðstæður
Víkingur R.
Víkingur R.
2 - 0
Borac
Borac
Nikolaj Hansen 17'1 - 0Karl Friðleifur Gunnarsson 23'2 - 0
Dómari: Jan Petrik (Tékkland)
Áhorfendur: 902
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leik lokið!
EuroVikes halda áfram að skrifa söguna!
Jan Petrik flautar til leiksloka og Víkingar tryggja sinn annan sigur í Sambandsdeildinni.
Víkingar eru komnir með 6 stig í Sambandsdeildinni og eru komnir í frábæra stöðu.

Þvílík frammistaða hjá Víkingum hér í dag, sanngjarn sigur!

Næsti leikur Víkings er gegn Noah í Armeníu þann 28. nóvember. Liðið tekur á móti Djurgarden 12. desember og leikur svo úti gegn austurríska liðinu LASK viku síðar.
93. mín
Víkingar eru að sigla þessu heim, lítið eftir.
Víkingur R.
92. mín
Gult spjald

Ari Sigurpálsson

Ari pressar Herera og stígur létt á hann og fær að líta gula spjaldið, mjög soft.
90. mín
Fjórum mínútum bætt við!
89. mín
Ekroth liggur niðri en nær að harka af sér og heldur leik áfram.
88. mín
Gestirnir eru ekki að ná að brjótast í gegnum þéttu vörn Víkinga.
Víkingur R.
86. mín
InnJón Guðni Fjóluson
ÚtDavíð Örn Atlason
Arnar gerir þrefalda skiptingu
Víkingur R.
86. mín
InnHelgi Guðjónsson
ÚtErlingur Agnarsson
Víkingur R.
86. mín
InnMatthías Vilhjálmsson
ÚtAron Elís Þrándarson (f)
Matti að spila sinn fyrsta leik síðan í úrslitum Mjólkurbikarsins.
82. mín
Þarna skall hurð nærri hælum
Cavic með gott skot úr teignum en Ingvar ver meistaralega, boltinn rúllar svo rétt fyrir framan Víkinga áður en Gunnar Vatnhamar hreinsar frá.

Hættulegasta færi gestanna hingað til.
Víkingur R.
81. mín
Gult spjald

Oliver Ekroth (f)

80. mín
Víkingar vilja vítaspyrnu
Davíð Örn pressar hátt í teig Borac en Carolina varnarmaður Borac hindrar hann og Davíð fellur við.

VAR-skoðun búin og ekkert dæmt, hefði verið soft.
Borac
78. mín
Inn Pavle Dajic
Út Zoran Kvrzic
77. mín
MAAA... Rangstæða
Aron Elís með skot úr teignum sem Manojlovic ver út í teiginn, Gísli Gotti stekkur á boltann og setur hann í netið en er réttilega flaggaður rangstæður.

75. mín
Gestirnir fá aukaspyrnu milli vítateigs og hliðarlínu. Þeir taka skotið en Ingvar ver vel í marki Víkinga.
73. mín
Ari Sigurpáls sker inn af vinstri, sólar einn, sólar tvo og fer svo í skotið en boltinn fer framhjá marki gestanna.
Víkingur R.
71. mín
InnTarik Ibrahimagic
ÚtKarl Friðleifur Gunnarsson
Ágætis dagsverk hjá Karli, mark og stoðsending.
70. mín
Karl Friðleifur sest niður og þarfnast aðhlynningar. Tarik Ibrahimagic gerir sig tilbúinn að koma inn á.
Borac
68. mín
Inn David Cavic
Út Boban Nikolov
Borac
68. mín
Inn Stojan Vranjes
Út Sandi Ogrinec
67. mín
Víkingar kunna vel við sig í Kópavoginum
65. mín
Ari Sigurpáls með skot úr teignum en Manojlovic ver í marki gestanna.
59. mín
Gísli Gotti með skot á markið sem Manojlovic ver örugglega.
Borac
58. mín
Inn Srdjan Grahovac
Út Dino Skorup
Víkingur R.
58. mín
InnAri Sigurpálsson
ÚtNikolaj Hansen
Fyrirliðinn farinn af velli!
57. mín
Ogrinec með hörkuskot fyrir utan teig en Ingvar ver meistaralega.
55. mín
Frábær varsla!
Djuric aftur með frábæra takta, kemur boltanum á Nikolaj Hansen sem kemur sér í góða stöðu og tekur gott skot en Manojlovic ver frábærlega í marki gestanna.
54. mín
Sreckovic með skot úr þröngri stöðu sem Ingvar ver.
53. mín
Djuric með skemmtilega takta
Danijel Djuric með skemmtilega takta, tekur rabona sendingu og kemur Karli Friðleifi í góða stöðu. Staða sem Víkingar ná hinsvegar ekki að nýta.
49. mín
Gestirnir fá hornspyrnu en hornspyrnan er ein slakasta sem ég hef séð.

Ætluðu að reyna að koma boltanum beint á mann við D-boga sem misheppnaðist.
46. mín
Víkingar fær hornspyrnu, boltinn berst á Ekroth sem á marktilraun en boltinn í varnarmann.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað!
Víkingar byrja með boltann.
Borac
46. mín
Inn Nikola Sreckovic
Út Enver Kulasin
Kulasin var kominn á gult spjald og er tekinn af velli í hálfleik.
45. mín
Hálfleikstölfræði
Víkingur R. - FK Borac

55% - Með bolta - 45%
7 - Skot - 1
4 - Skot á mark - 0
0.53 - XG - 0.05
1 - Hornspyrnur - 0
7 - Brot - 2
45. mín
Hálfleikur
Víkingar í draumastöðu!
Jan Petrik flautar til hálfleiks, Víkingar frábærir í þessum fyrri hálfleik og leiða sanngjarnt. Borac vöknuðu undir lok fyrri hálfleiks en ógnuðu þó lítið sem ekkert.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
45. mín
Einni mínútu bætt við.
Borac
43. mín
Gult spjald

Enver Kulasin

Kulasin rífur Karl Friðleif niður í skyndisókn Víkinga og fær réttilega að líta gula spjaldið.
37. mín
Gestirnir sækja í sig veðrið, hættulegri þessa stundina.
35. mín
Borac færa sig aðeins ofar á völlinn en ógna lítið.
34. mín
Stuðningsmenn Borac í stuði
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

30. mín
Mörkunum fagnað
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

26. mín
Gísli Gotti í dauðafæri
Djuric þræðir Gísla í gegn sem fer í skotið úr teignum en skot Gísla fer langt framhjá, allt upp á tíu í þessari sókn nema afgreiðslan.
Víkingur R.
23. mín
ÞVÆLA ER ÞETTA!!

Karl Friðleifur Gunnarsson

Boltinn berst á Karl Friðleif á fjærstöng eftir langt innkast. Karl gerir sér lítið fyrir og setur boltann í þaknetið!

Hafsentapar Borac er ekki yfir 180cm, Víkingar nýta það vel.

Víkingar í draumastöðu!

Víkingur R.
17. mín
CAPTAIN FANTASTIC!

Nikolaj Hansen (stoðsending: Karl Friðleifur Gunnarsson)

Karl Friðleifur með góða fyrirgjöf frá vinstri, Nikolaj Hansen nær einhvernveginn að koma boltanum á markið. Boltinn fer af varnarmanni og í netið.

Frábær byrjun Víkinga, komnir verðskuldað yfir!

16. mín
Borac fær aukaspyrnu í fyrirgjafastöðu, spyrnan er slök og Víkingar koma boltanum frá.
12. mín
Víkingar mun hættulegri!
Búnir að einoka boltann hér þessar fyrstu mínútur og hafa komið sér í ágætis stöður.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

10. mín
Þetta er bara víti!
Varnarmaður Borac heldur Djuric í teignum sem fellur við en ekkert dæmir Jan Petrik dómari leiksins. Varnarmaður Borac ekkert að spá í boltanum!

VAR skoðun búin og engin vítaspyrna dæmd.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

7. mín
Gísli Gotti með skot af löngu færi sem Manojlovic ver en missir boltann aðeins frá sér en grípur boltann að lokum.

Fór eflaust aðeins um stuðningsmenn Borac þarna.
4. mín
Darraðadans í teig Borac eftir hornspyrnu Víkinga en Víkingar ná ekki skoti á markið og gestirnir hreinsa frá.
3. mín
Niko Hansen með gott skot!
Nikolaj fær boltann í þröngri stöðu í teignum eftir langt innkast, nær að snúa og fer í skotið sem Manojlovic ver vel og boltinn í horn.
1. mín
Þetta er farið af stað!
Gestirnir frá Bosníu og Hersegóvínu byrja með boltann og sækja í átt að Fífunni.

Víkingar klæðast sínum rauðsvörtu Evróputreyjum. Gestirnir leika í alhvítum búningum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Mínútuþögn til að minnast fórnarlamba flóðanna í Valencia.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Liðin ganga til vallar, nú styttist í að þetta hefjist!
Fyrir leik
Bosníumennirnir mæta með læti
Stuðningsmenn FK Borac gerðu sér lítið fyrir og köstuðu flugeld inn á hlaupabraut Kópavogsvallar áður en þeir komu inn á völlinn. Þó stuðningsmenn Borac séu ekki margir megum greinilega búast við látum frá þeim.
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi - Ari Sigurpálsson á bekknum
Fyrsti markaskorari Víkinga í Sambandsdeildinni, Ari Sigurpálsson byrjar á bekknum.

Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkinga gerir tvær breytingar frá leiknum gegn Breiðablik, þar víkja Ari Sigurpáls og Tarik Ibrahimagic úr byrjunarliðinu.

Inn í byrjunarliðið koma þeir Davíð Örn Atlason og Viktor Örlygur Andrason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Mladen Žižovic ber virðingu fyrir liði Víkinga
Mladen Žižovic þjálfari FK Borac sat fyrir svörum á blaðamannafundi í gær.

„Víkingar eru með gott lið og hæfileikaríka leikmenn. Liðið er vel samansett af yngri og eldri leikmönnum sem hafa náð vel saman. Við reiknum því með erfiðum leik.“

Leikurinn fer fram á Kópavogsvelli á undirlagi sem ekki er algengt í efstu stigum Evrópu gervigrasi. Mladen var ekki á því að það væri Víkingum um of til tekna að vera vanari undirlaginu.

„Við þekkjum alveg að spila á svona velli og búum að því að hafa mætt KÍ Klaksvík við sömu aðstæður. Það er líka sambærilegur völlur í Banja Luka svo að við höfum undirbúið okkur.“

Bæði Víkingar og Borac mættu liði Egnatia frá Albaníu fyrr í sumar líkt og áður kemur fram. Mladen segir að lítið sé hægt að álykta út frá þeim leikjum.

„Okkar lið hefur styrkst mikið frá viðureign okkar við Egnatia. Bæði höfum við fengið nýja leikmenn inn og liðið hefur stillt sig betur saman. Það sama má segja um Víkinga og við getum lítið lært af þeirra viðureign í Albaníu. Það sem við horfum fyrst og fremst í er hvernig þeir spiluðu gegn Cercle Brugge og í deildinni á Íslandi.“
Fyrir leik
Veðbankar telja Víkinga sigurstranglegri
Veðbankar telja Víking líklegra liðið til að fara með sigur af hólmi.

Í flestum veðbönkum er Víkingur með stuðulinn í kringum 2,2 eða 2,3 á meðan stuðullinn á Borac er í kringum 3.

Á Lengjunni er til dæmis stuðullinn á sigur Víkings 2,15.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Arnar í viðtali fyrir leikinn
Okkar maður, Sverrir Örn Einarsson, ræddi við þjálfara Víkings, Arnar Gunnlaugsson, á Kópavogsvelli í gær.

Fyrir leik
Stefna á umspilið
Víkingur vann sögulegan 3-1 sigur gegn Cercle Brugge í síðasta Evrópuleik sínum. Það var fyrsti sigur íslensks liðs í riðla- eða deildarkeppni Evrópu.

„Það er mikið undir og við erum allt í einu komnir í draumastöðu. Ef við vinnum þá erum við í þeirri stöðu að þurfa ekki mörg stig í viðbót til að tryggja okkur í umspilið í þessari keppni, sem var okkar upphaflega markmið. Það er að miklu að keppa," segir Arnar Gunnlaugsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Víkingar eru búnir að syrgja
Líkt og eflaust flestir vita töpuðu Víkingar gegn Breiðablik í úrslitaleik um Bestu-deildina fyrir tæpum tveimur vikum.

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga vonar að liðið sé komið yfir þann leik.

„Fyrstu tveir dagarnir voru hálfgert sorgarferli. Það hefur verið mikil sigurganga undanfarin ár og það er smá sjokk að tapa svona leikjum, svona ný tilfinning.

,,Það tók alveg tíma að ná þessu úr kerfinu hjá leikmönnum. Við létum það alveg vera í eina viku að greina þennan leik, menn voru bara að æfa og svo á mánudaginn þá fórum við loks yfir þann leik og hvað mátti betur gera"



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Borac mörðu Egnatia í vítaspyrnukeppni – sama lið og Víkingur sló út
FK Borac rétt mörðu Egnatia í forkeppni Meistaradeildarinnar fyrr á þessu ári. Borac hafði betur eftir vítaspyrnukeppni.

Því er ekki frá sögu færandi nema að Egnatia er lið sem Víkingur sló út í forkeppni Sambandsdeildarinnar, fyrr á þessu ári. Víkingur tapaði fyrri viðureigninni heima en vann útileikinn 0-2.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Andstæðingarnir
FK Borac Banja Luka oftast kallaðir FK Borac eru andstæðingar Víkinga. Þeir koma frá Bosníu og Hersegóvínu og eru ríkjandi meistarar í deildarkeppni þar.

FK Borac eru enn ósigraðir í sambandsdeildinni en þeir eru með fjögur stig. Þeir gerðu 1-1 jafntefli við Panathinaikos í fyrstu umferð og unnu APOEL Nicosia í annari umferð.

Víkingur og Borac eiga það sameiginlegt að vera að spila í fyrsta sinn í deildar/riðlakeppni í Evrópu.

,,Þeir virðast kunna alla þætti leiksins mjög vel og eru ófeimnir við að sýna þá hvort sem þeir eru á útivelli eða heimavelli. Ég á von á að þeir verði frekar varfærnislegir á morgun. Þeir eru komnir með fjögur stig og jafntefli fyrir þá á erfiðum útivelli væru ekki slæm úrslit."

,,Hafandi sagt það reyna þeir náttúrulega að vinna leiki og eru með skeinuhætta leikmenn og góða leikmenn innanborðs," sagði Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings í samtali við Fótbolta.net í gærdag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Útivöllur hamingjunnar
Leikurinn fer fram á Kópavogsvelli en heimavöllur Víkinga er ekki löglegur í Sambandsdeildinni.

Víkingar létu Kópavogsvöll ekkert trufla sig er þeir unnu sögulegan sigur á Cercle Brugge í síðustu umferð Sambandsdeildarinnar.

Leikurinn hefst klukkan 14:30 en ástæðan fyrir þessum óhefðbundna leiktíma er að á Kópavogsvelli eru ekki nægilega sterk fljóðljós. Því er nýtt dagsbirtuna og spilað snemma dags.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Leikdagur!
Á meðan allir eru komnir í frí halda Víkingar ótrauðir áfram í Evrópuvegferð sinni í Sambandsdeildinni. Liðið mætir nú FK Borac frá Bosníu og Hersegóvínu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.