Fotbolti.net
Besta deildin
@Johannthor21Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta-deild karla
Greifavöllurinn
KA
KA
2 - 2
KR
KR
0 - 110' Luke Morgan Conrad RaeÁsgeir Sigurgeirsson 25'1 - 1Hans Viktor Guðmundsson 32'2 - 12 - 243' Jóhannes Kristinn Bjarnason
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: Líf og fjör í fyrsta leiknum á Akureyri

Hvað réði úrslitum?

Þetta var opið á báða bóga. Færanýtingin góð í fyrri hálfleik en það vantaði upp á í seinni hálfleik. Halldór og Stubbur gerðu vel að koma í veg fyrir fleiri mörk.

Bestu leikmenn

1. Jóhannes Kristinn Bjarnason

Mjög flottur í leiknum. Góður á boltanum og stórkostleg spyrnutækni, opnaði markareikninginn í dag með glæsilegu marki.

2. Ásgeir Sigurgeirsson

Frábær frammistaða hjá Ásgeiri. Skorar og leggur upp og kom sér svo sannarlega í færi til að gera enn betur.

Atvikið

Það var hellingur af atvikum í þessum leik. Sá ekki rauða spjaldið á Aron Sigurðarson og það sést ekki í sjónvarpsútsendingu. Menn vildu meina að hann hafi verið með olnbogann á lofti. Frábært mark hjá Jóhannesi og Ásgeir skoraði eftir laglegan undirbúning hjá Bjarna Aðalsteins.

Hvað þýða úrslitin?

Liðin eru komin á blað en bæði lið eflaust svekkt að vera ekki komin með þrjú stig á töfluna.

Vondur dagur

Aron og Hjalti verða að vera nefndir hérna. Fengu rauð spjöld sem þeir hefðu klárlega geta komið í veg fyrir. Ívar Örn er ávalt traustur í vörn KA en átti slaka sendingu beint á Atla Sigurjónsson og í kjölfarið kom fyrsta mark leiksins

Dómarinn - 8

Það var nóg að gera hjá Jóhanni Inga. Rauða spjaldið á Hjalta hárrétt en ég sá ekki sjálfur rauða spjaldið á Aron almennilega en hann virðist hafa notað olnbogann þegar boltinn var ekki nálægt. Sama hvað þá má það hreinlega ekki.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.