Fotbolti.net
Besta deildin
@haraldur_ornHaraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Besta-deild karla
Malbikstöðin að Varmá
Hvasst og 3°
Afturelding
Afturelding
0 - 0
ÍBV
ÍBV
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Steindautt markalaust jafntefli í Mosó

Hvað réði úrslitum?

Eyjamenn áttu nokkur fín færi en fóru illa með þau. Annars var þetta tíðindalítill leikur sem átti skilið að vera markalaus.

Bestu leikmenn

1. Bjarki Björn Gunnarsson (ÍBV)

Bjarki var líflegur í fyrri hálfleik en dróst aðeins úr honum í seinni. Ég þarf víst að velja einhvern og hann átti fínan leik.

2. Jökull Andrésson (Afturelding)

Varði einu sinni mjög vel frá Alex Frey og hélt hreinu. Flottur leikur hjá honum.

Atvikið

Axel Óskar og Milan Tomic skalla saman frekar harkalega og þurftu báðir að fara af velli. Þetta leit ekkert sérlega vel út og vonandi verður fljótlega í lagi með mennina.

Hvað þýða úrslitin?

Afturelding fær sitt fyrsta stig í sögu félagsins í efstu deild. ÍBV fékk líka stig en þeir hafa fengið nokkur áður.

Vondur dagur

Áhorfendur sem eru ekki die hard stuðningsmenn. Þeim leiddist eflaust mikið og var skítkalt. Umgjörðin í Mosfellsbæ er hinsvegar alltaf mjög góð þannig það var vonandi eitthvað þarna sem var þess virði að mæta því fótboltaleikurinn var ekki skemmtilegur.

Dómarinn - 7

Nokkrir litlir dómar sem ég var ekki sammála annars bara góður leikur hjá teyminu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.